Fréttablaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 6
6 30. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
Sparaksturskeppni
RV
K
Þing
vallavatn Selfoss RVK
Laugardaginn 3. maí. Skráning á www.atlantsolia.is
Skemmtilegur fjölskyldubíltúr frá Bíldshöfða.
1. verðlaun 25.000 króna bensínúttekt.
flugfelag.is
Burt úr bænum
SNÆFELLSJÖKULL
DRANGJÖKULL
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Hópaferðir fyrir öll tilefni
Upplýsingar:
Sími 570 3075
hopadeild@flugfelag.is
flugfelag.is
Aðeins eitt símtal í 570 3400 og málið er afgreitt.
Flugfrakt
Sækjum og sendum
– hratt og örugglega
á hagstæðu verði.
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
FÆREYJARVESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
GRÆNLAND
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
NARSARSSUAQ
KULUSUK
CONSTABLE POINT
NUUK
Til/frá Reykjavík
Akureyri 8-12 ferðir á dag
Egilsstaðir 5-7 ferðir á dag
Ísafjörður 2-3 ferðir á dag
Vestmannaeyjar 2-3 ferðir á dag
Ljósmyndir: Rannsóknarlögreglan í Austurríki, Getty
Geymslu-
herbergi
Miðstöðvar-
herbergi
AUSTURRÍKI Kjallaraholan, sem Eliz-
abeth Fritzl og þrjú barna hennar
þurftu að hírast í, var smíðuð sem
kjarnorkubyrgi fyrir um þrjátíu
árum, þegar kalda stríðið var í
hámarki. Á þeim tíma töldu margir
þörf fyrir slíkt byrgi, þar sem fjöl-
skyldan gæti skotist í skjól og lifað
af kjarnorku styr jöld.
Josef Fritzl sótti um opinbert
leyfi fyrir slíku byrgi árið 1978 og
hafði lokið við smíði þess árið 1983.
Aðeins ári síðar, í lok ágúst árið
1984, lokaði hann átján ára gamla
dóttur sína þar inni og slapp hún
ekki úr prísundinni fyrr en nú um
síðustu helgi, nærri 24 árum síðar.
Hann hafði níðst á henni kyn-
ferðislega síðan hún var ellefu ára
gömul. Stuttu áður en hann lokaði
hana inni hafði hún reynt að strjúka
að heiman. Hann segist hafa viljað
vernda hana fyrir eiturlyfjum.
Í byrginu eru tvö lítil svefn her-
bergi, hvort um sig með tveim ur
rúmum, auk salernis-, hrein lætis-
og eldunaraðstöðu. Lofthæð er
mest 170 sentímetrar og rýmið í
heild innan við sextíu fermetrar.
Þar ól hún föður sínum sjö börn og
þrjú þeirra bjuggu þar alla ævi:
tveir drengir sem nú eru fimm og
átján ára, og nítján ára stúlka sem
liggur fárveik á sjúkrahúsi.
Drengirnir tveir eru sagðir við
merkilega góða heilsu miðað við
svo langa innilokun og sá yngri
meira að segja brosmildur og
kátur.
Í gær var skýrt frá því að rann-
sókn á lífsýnum úr Josef Fritzl
staðfesti að hann sé faðir allra
barnanna sex, sem enn eru á lífi.
Sjöunda barnið lést nýfætt árið
1996.
Fritzl var leiddur fyrir dómara í
gær sem úrskurðaði hann form-
lega í gæsluvarðhald.
„Fritzl var algerlega rólegur
og sýndi engar tilfinningar í
dómsalnum,“ sagði Gerhard
Sedlacek saksóknari. Hann sagði
að Fritzl hefði heldur ekki sagt
margt um glæpi sína. Fritzl hafði
á yngri árum hlotið dóm fyrir
nauðgun og margir nágrannar
hans vissu af því. Hann átti hús
víða í Austurríki og var því mikið
á ferðinni. Einnig ferðaðist hann
reglulega til Taí lands, og virðist
hafa séð til þess að nægar matar-
birgðir væru föngunum til reiðu
á meðan.
Fritzl á yfir höfði sér allt að
fimmtán ára fangelsi fyrir
nauð ganir. Einnig er verið að
kanna hvort hægt verði að ákæra
hann fyrir morð vegna þess að
hann hafi látið undir höfuð leggj-
ast að útvega einu barninu lækn-
isaðstoð, sem hefði getað bjarg-
að lífi þess. Barnið lést þriggja
daga gamalt og hann brenndi
líkið í miðstöðvarofni rétt fyrir
utan dýflissuna.
gudsteinn@frettabladid.is
Dýflissan var byggð
sem kjarnorkubyrgi
Lögreglan í Austurríki segir að DNA-rannsókn hafi staðfest að Josef Fritzl sé
faðir þeirra sex barna, sem enn eru á lífi af þeim sjö, sem dóttir hans eignaðist í
kjallaraholunni þar sem hún hefur verið fangi föður síns í nærri aldarfjórðung.
Fritzl var algerlega
rólegur og sýndi engar
tilfinningar í dómsalnum.
GERHARD SEDLACEK
SAKSÓKNARI Í AUSTURRÍKI
Telur þú í lagi að verslun 10-11
í Austurstræti sé opin allan
sólarhringinn?
JÁ 41,3%
NEI 58,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er launahækkun grunnskóla-
kennara með nýjum kjara-
samningi of há?
Segðu skoðun þína á visir.is
VIÐSKIPTI Bókfært tap hluthafa fjár-
málaþjónustufyrirtækisins Existu
á fyrsta ársfjórðungi nemur 43,8
milljónum evra, eða tæplega 5,1
milljarði króna miðað við gengi
evru í gær. Félagið birti uppgjör
sitt eftir lokun markaða í gær.
Á sama tímabili í fyrra nam
hagnaður félagsins 640,7 milljón-
um evra. Tap fjórðungsins skýrist
af verðbreytingum á skráðum eign-
um félagsins. Á fyrsta ársfjórð-
ungi í fyrra hækkuðu skráðar eign-
ir um 38,2 milljónir evra, en
rýrnuðu á þessu ári um sem nemur
173,2 milljónir evra.
Heildareignir félagsins nema
hins vegar 7,4 milljörðum evra,
eða tæpum 858 milljörðum króna,
og lækkuðu um 8,1 prósent í fjórð-
ungnum. Eigið fé Existu nemur 2,3
milljörðum evra (267 milljörðum
króna) og handbært fé nemur 485
milljónum evra (56,2 milljörðum
króna) við lok fjórðungsins. Tryggt
lausafé er sagt nægilegt til að
mæta endurfjármögnun félagsins
þar til í desember 2009.
Lýður Guðmundsson, stjórnar-
formaður Existu, segist sáttur við
útkomu fjórðungsins, sem reynst
hafi fyrirtækjum í fjármálaþjón-
ustu sérlega erfiður. Hann segir að
þrátt fyrir neikvæða afkomuhafi
Exista staðið vörð um „sterkar
fjárhagslegar undirstöður, öfluga
lausafjárstöðu og framúrskarandi
eignir“. - óká
Á KYNNINGARFUNDI Lýður Guðmunds-
son, stjórnarformaður Existu, segir að á
tímum umróts á alþjóðamörkuðum hafi
tekist að tryggja fjárhagsstyrk og lausafé
félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fyrsti ársfjórðungur sérlega erfiður fyrirtækjum í fjármálaþjónustu:
Exista tapar fimm milljörðum
VÍETNAM, AP Þótt fagnaðarhróp hafi
verið áberandi er hlaupið var með
ólympíukyndilinn um götur
stærstu borgar Víetnams í gær
gekk hlaupið ekki alveg truflana-
laust fyrir sig. Mótmælendur voru
handteknir í höfuðborginni Hanoi.
Ho Chi Minh-borg var einn síðasti
viðkomustaðurinn á ferð kyndils-
ins um heimsbyggðina áður en
hlaupið verður með hann um Kína.
Á svo til öllum viðkomustöðum
kyndilsins nema í N-Kóreu þurfti
öryggisgæslu til að mótmælendur
gegn framgöngu kínverskra
stjórnvalda í Tíbet og mannrétt-
indamálum almennt næðu ekki að
hindra för hlauparanna. - aa
Ólympíukyndilshlaupið:
Mótmælt víðast
nema í N-Kóreu
KJÖRKASSINN