Fréttablaðið - 07.05.2008, Qupperneq 1
MK One selt | Baugur gekk undir
lok síðustu viku frá sölu á versl-
unarkeðjunni MK One. Söluverð
fékkst ekki uppgefið, en kaupandi
er Hilco Retail Investment.
Hættu við Yahoo | Microsoft
hætti um helgina við að kaupa
Yahoo þegar ekki samdist um
verð fyrir félagið. Kauptilboðið
var upp á hátt í 4.000 milljarða
króna, eða 33 Bandaríkjadali á
hlut.
Undirmálslán | Kaupþing afskrif-
aði 13 milljarða króna á fyrsta
fjórðungi ársins vegna undir-
málslána. Afskriftin er til komin
vegna láns í tengslum við fyrirhug-
uð kaup Kaupþings á NIBC sem
ekki varð af. Hollenski bankinn
fjárfesti upphaflega í undirmáls-
skuldabréfum.
Félög á förum | Stjórn Flögu
Group fór í síðustu viku fram á
það við Kauphöll Íslands að félagið
yrði skráð af markaði. Önnur félög
sem eru á leið úr Kauphöllinni á
þessu ári eru Vinnslustöðin, FL
Group, Icelandic Group og Skipti.
Stýrivaxtaspá | Greining Glitn-
is spáir því að Seðlabanki Íslands
hækki enn stýrivexti á næsta
vaxtaákvörðunarfundi sínum 22.
þessa mánaðar. Spáð er 25 punkta
hækkun, en verði af henni fara
stýrivextir hér í 15,75 prósent.
Wall Street | Warren Buffet,
fjárfestirinn heimsþekkti, lét um
helgina eftir sér hafa að að láns-
fjárkreppunni væri að ljúka fyrir
fyrirtækin á Wall Street en ekki
fyrir almenning.
146
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 7. maí 2008 – 19. tölublað – 4. árgangur
13
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Björn Ingi Hrafnsson
skrifar
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group,
segir að vissulega hafi umræða um eignarhald fé-
lagsins ávallt áhrif á starfsemi þess.
„Það er að mínu mati ekki gott að slík óvissa sé
uppi, en þetta fylgir því að vera með félag skráð
á markaði,“ segir Björgólfur enn fremur og bætir
við að ef rétt sé að stórir hluthafar í félaginu vilji
selja sinn hlut voni hann auðvitað að í staðinn komi
traustir aðilar sem horfi til lengri tíma.
Hvað varðar möguleg kaup erlendra aðila á fé-
laginu segir Björgólfur það sína skoðun að mjög
hollt væri ef unnt væri að hafa Icelandair áfram
í eigu Íslendinga, að minnsta kosti sjálfan flug-
reksturinn, enda skipti hann sköpum fyrir sam-
göngur til og frá landinu.
„Ég vil þess vegna skora á okkar sterku lífeyr-
issjóði að koma að rekstri þessa félags og tryggja
þannig að það verði áfram í eigu landsmanna,“
bætir hann við.
Gunnlaugur M. Sigmundsson, stjórnarformaður
Icelandair, segir ekki stefnu stærstu eigenda í
Icelandair Group að selja frá sér stóran eignar-
hlut í fyrirtækinu. „Nýverið var í fréttum að aðrir
stórir hluthafar væru að bjóða hlutabréf sín til
sölu erlendis, en mér vitanlega er sú frétt ekki
rétt. Hitt er svo annað mál að það væri hagur að
því fyrir alla að fá fleiri öfluga fjárfesta að félag-
inu, til dæmis lífeyrissjóði,“ bætir Gunnlaugur við
og bendir á að miðað við gengi félagsins á markaði
núna ættu kaup á hlutafé í félaginu að vera góður
fjárfestingarkostur.
Stjórnarformaðurinn segist ekki treysta sér til
að dæma um hve líklegt það sé að erlendir aðil-
ar eignist umtalsverðan hlut í Icelandair eða allt
hlutafé félagsins á næstu árum. „Fyrir liggur að
stór erlendur aðili lýsti áhuga á því síðastliðinn
vetur að kaupa félagið allt en hluthafar sem réðu
yfir því magni atkvæða sem sóst var eftir sáu sér
þá ekki hag í að selja sín hlutabréf. Sú afstaða er
óbreytt, að minnsta kosti hvað varðar þá hluthafa
sem ég fer með umboð fyrir,“ segir hann, en sam-
kvæmt heimildum Markaðarins er þar vísað til
áhuga forsvarsmanna SAS á aðkomu að rekstri
Icelandair fyrir um ári síðan.
Sjá síður 8 og 9
Skorar á lífeyrissjóði
að fjárfesta í félaginu
Forstjóri Icelandair telur mjög hollt að félagið verði áfram
í eigu Íslendinga og vill sjá aðkomu lífeyrissjóðanna.
Stjórnarformaðurinn segir útlendinga hafa reynt að kaupa.
„Við gáfum út um þúsund svona
vottorð á fyrstu þremur mánuð-
um ársins, en þau voru tólf hundr-
uð allt árið í fyrra,“ segir Gissur
Pétursson, forstjóri Vinnumála-
stofnunar.
Þar vísar hann til svonefndra E-
vottorða. Erlendir ríkisborgarar á
íslenskum vinnumarkaði fá þessi
vottorð til staðfestingar því að
hafa verið hér í tryggingaskyldri
vinnu. Vottorðin veita þeim rétt-
indi til atvinnuleysisbóta í heima-
landinu.
Gissur bætir því við að raunar
hafi nokkur hluti þeirra sem sóttu
um vottorð í byrjun árs unnið við
álverið á Reyðarfirði, þar sem
framkvæmdum er lokið.
Gissur segir að nú séu á milli
sautján og átján þúsund erlendir
ríkisborgarar við störf á íslensk-
um vinnumarkaði. „Við gerum
ráð fyrir að það fækki í þessum
hópi um þrjú þúsund manns á
árinu.“
Gissur bendir á að hingað til
hafi verið nokkuð um að fólk
bæði komi og fari, til að mynda
hafi verið nokkuð um nýskrán-
ingar útlendinga í janúar og
febrúar, en nú sé straumurinn
frekar úr landi. „Við sjáum þetta
bæði á skráningunum og finnum
þetta í samtölum við útlendinga
og vinnuveitendur.“ - ikh / Sjá síðu 12
Erlendu verkafólki snarfækkar
Álíka margir fóru heim á fyrstu þremur mánuðum ársins og allt árið í fyrra.
Lífsstíll
Kafað í
golfið
Brugðist við bensínverði
Rafmagn á
bílana
Hrávara hækkar hratt
Ólík viðbrögð við
verðbólgu
V i s t væ n
prentsmiðja
Sími 511 1234 • www.gudjono.is
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
Fjármálaeftirlitið (FME) hyggst
fljótlega meta hvort rannsókn á
skipulegum neikvæðum orðrómi
um íslenskt efnahagslíf verði
haldið áfram.
Rætt hefur verið um að vog-
unarsjóðir hafi komið slíkum
orðrómi á fót í hagnaðarskyni.
Samkvæmt upplýsingum Mark-
aðarins bíður eftirlitið eftir upp-
lýsingum erlendis frá og metur
framhaldið í ljósi þeirra upplýs-
inga. Hugsanlega er þar átt við
erlendar systurstofnanir en það
er ekki gefið upp.
Rannsókn eftirlitsins hefur nú
staðið í meira en mánuð, en fátt
hefur verið gefið upp um gang
mála.
Fjármálaeftirlitið hefur sagst
hafa kallað eftir gögnum, en
gefur ekki upp hvaðan. - ikh
FME leitar
til útlanda
JÓNAS FR. JÓNSSON Forstjóri Fjármála-
eftirlitsins hefur nú leitað út fyrir landstein-
ana í rannsókn sinni.