Fréttablaðið - 08.05.2008, Blaðsíða 4
4 8. maí 2008 FIMMTUDAGUR
LEIÐRÉTTINGAR
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
Fréttablaðið ber ábyrgð á inngangi
í grein Sigríðar Lillýar Baldursdóttur,
forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins,
í blaðinu í gær. Tryggingastofnun
áréttar að hún gerir ekki samninga við
sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfs-
menn.
Komdu núna í Bílaland B&L og kynntu þér kostina
Glæsilegt úrval lúxusbílaLÚXUS
BMW X3 2.5i
Nýskr: 08/2004, 2500cc, 4x4,
5 dyra, sjálfskiptur, ljósgrár, ekinn 56.000.
Verð 3.990.000
Opið virka daga frá kl. 10 til 18
og á laugardögum frá kl. 12 til 16
Bílaland B&L, Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík
575 1230 - luxusbilar@bilaland.is. 575 1230
ALLIR INNFLUTTIR
OG ÞJÓNUSTAÐIR
AF UMBOÐI
SVEITARSTJÓRNARMÁL Heildarlaun Jakobs Frímanns
Magnússonar, nýráðins verkefnisstjóra miðborgar-
innar hjá Reykjavíkurborg, eru 861 þúsund þegar allt
er talið. Fyrir verkefnisstjórastöðuna sérstaklega fær
hann 710 þúsund á mánuði, þar af 236 þúsund á mánuði
vegna 48 klukkustunda fastrar yfirvinnu. Þetta kemur
fram í launasamningi sem Hallur Páll Jónsson, mann-
auðsstjóri Reykjavíkurborgar, afhenti Fréttablaðinu í
gær eftir beiðni blaðsins þar um. Samningurinn gildir
til 30. apríl á næsta ári.
Til viðbótar er Jakob Frímann með 86 þúsund á mán-
uði fyrir formennsku í hverfisráði miðborgarinnar og
svo 65 þúsund á mánuði fyrir að gegna varafor-
mennsku í menningar- og ferða-
málaráði.
Svandís Svavarsdóttir, oddviti
vinstri grænna í borgarstjórn,
segir borgarstjóra þurfa að skýra
ráðninguna betur. „Launakjör af
þessu tagi eru mér vitanlega út úr
öllu korti miðað við það sem
almennt gerist í ráðhúsinu,“ segir
Svandís Svavarsdóttir, oddviti
vinstri grænna í borgarstjórn.
Sigrún Elsa Smáradóttir, borgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, segir
laun Jakobs með því hæsta sem þekkist í ráðhúsinu og
það sé ekki óeðlilegt að þau séu rökstudd betur.
Svandís segir ráðningu Jakobs Frímanns fyrst og
fremst vera pólitíska og það sé ekki í takt við verklag
sem Reykjavíkurborg eigi að sætta sig við. „Þetta er
augljóslega pólitísk ráðning. Mér finnst þetta hneyksli.
Þetta eru ófagleg vinnubrögð og þarna er gengið fram-
hjá öðrum sem sóttu um verkefnisstjórastöður hjá
borginni sem auglýstar voru í byrjun árs,“ segir
Svandís.
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, aðstoðarkona borgar-
stjóra, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær mikinn
feng vera í Jakobi Frímanni fyrir borgina. „Það er gott
fyrir Reykjavíkurborg að geta fengið jafn öflugan
mann til þess að sinna verkefnum sem varða miðborg-
ina. Mér finnst tilraunir minnihlutans til þess að gera
þessa ráðningu tortryggilega ómálefnalegar.“
Jakob Frímann segir launin ekki vera ástæðu þess
að hann tók við starfi heldur ætli hann að láta gott af
sér leiða. „Ólafur F. Magnússon hefur lofað því að efla
miðborgina á einu ári. Nú leggst það loforð á mig og ég
ætla að standa mig. Launin sem ég fæ eru ekki eins há
og þau sem ég hef fengið á mánuði undanfarin ár, enda
hefur alþjóð getað séð mín laun sem launahæsta lista-
manns þjóðarinnar í gegnum Frjálsa verslun. Ég ætla
að tala minna og láta verkin tala.“
Ekki náðist í Ólaf F. Magnússon við vinnslu
fréttar innar.
magnush@frettabladid.is
Jakob Frímann með
861.000 á mánuði
Jakob Frímann Magnússon fær 710 þúsund í mánaðarlaun sem verkefnisstjóri
hjá Reykjavíkurborg. Við bætast laun fyrir formennsku í tveimur ráðum á veg-
um meirihlutans. Launakjör út úr öllu korti, segir Svandís Svavarsdóttir.
JAKOB FRÍMANN
MAGNÚSSON
SAMNINGUR JAKOBS Jakob Frímann fær 474
þúsund í grunnlaun og 236 þúsund fyrir yfir-
vinnu á mánuði.
Í bankahólfi á baksíðu Markaðarins í
gær var sagt að Vífilfell hefði verið til
sölu í um tvo mánuði en fyrirtækið
svo verið tekið úr sölumeðferð. Rétt
er að fjárfestar hafa haft áhuga á
félaginu en það hefur ekki verið til
sölu og ekki í neinni sölumeðferð.
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
21°
23°
20°
20°
22°
25°
24°
23°
23°
22°
25°
24°
24°
24°
23°
32°
18°
Á MORGUN
8-15 m/s, hvassast með
ströndum
LAUGARDAGUR
5-15 m/s, hvassast
nyrst á Vestfjörðum
8
7
6
10
10
11
10
14
12
8
2 4
3
99
6 5
3
1010
8
KÓLNANDI FYRIR
NORÐAN
Síðustu daga hefur
yfi rleitt verið milt á
norðan- og austan-
verðu landinu og
í gær mátti heyra
hitatölur fast undir
20 stig, m.a. á
Seyðisfi rði. Í dag
og næstu daga
dregur nokkuð úr
hlýindunum nyrðra.
Þessa hvítasunnu-
helgi eru horfur á
vætu af til um allt
land.
5
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
KJARAMÁL Engin niðurstaða fékkst
á fundi fjögurra ráðherra með
fulltrúum BSRB í stjórnarráðinu í
gær, önnur en að farið verði yfir
málið og fundað í næstu viku.
Á fundinum í óskuðu fulltrúar
BSRB eftir svörum frá ríkisstjórn-
inni um það hvernig hún hyggist
efna fyrirheit í kjaramálum sem
fjallað er um í stjórnarsáttmálan-
um. Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB, sagði að lítið hefði verið
um svör en hann vænti skýrari
svara í næstu viku. Geir H. Haar-
de forsætisráðherra sagði fundinn
hafa verið ágætan.
„Svo verðum við bara að sjá til
hvort við getum fundið sameigin-
lega niðurstöðu,“ sagði Geir. - bj
Fundur BSRB með ráðherrum:
Vænta skýrra
svara eftir viku
TIL FUNDAR Ögmundur Jónasson, for-
maður BSRB, leiddi átta manna hóp til
fundar við ráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
sérstaklega hættulega líkamsárás.
Samkvæmt ákæru sló maðurinn
annan mann í höfuðið með flösku,
sem brotnaði við höggið. Síðan
gekk maðurinn í skrokk á
fórnarlambinu með höggum í
andlit og spörkum í líkama. Sá
sem fyrir árásinni varð hlaut
allmörg lítil sár á enni, nefi og
kinn, skurð á neðri vör og bólgur á
hægri mjöðm Atvikið varð að
morgni sunnudags árið 2006.
Fórnarlambið krefst um 600
þúsund króna í miskabætur. - jss
Ákærður fyrir líkamsárás:
Stórhættuleg
árás með flösku
GENGIÐ 07.05.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
153,2971
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
76,72 77,08
150,19 150,93
118,36 119,02
15,859 15,951
15,064 15,152
12,738 12,812
0,7280 0,7322
123,92 124,66
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
SAMGÖNGUR Eftir um hálfs árs hlé
eru framkvæmdir við tvöföldun
Reykjanesbrautar hafnar á nýjan
leik. Í gær voru starfsmenn
Ístaks að vinna við mislæg
gatnamót við afleggjarann að
Vogum.
Vegagerðin þurfti sem kunnugt
er að bjóða verkið út að nýju eftir
að verktakafyrirtækið Jarðvélar
þurftu að segja sig frá verkinu.
Eftir um það bil hálfs árs stopp
hófust starfsmenn Ístaks handa
við undirbúning á mánudag og í
gær fóru vinnuvélarnar í gang á
nýjan leik. Áætluð verklok eru
um miðjan október. - bj
Tvöföldun Reykjanesbrautar:
Vinnuvélar af
stað á nýjan leik
FRAMKVÆMDIR Tvöföldun Reykjanes-
brautar á að ljúka fyrir miðjan október.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Stjórnarandstæðingar
vönduðu stjórnarliðum ekki kveðj-
urnar á þingfundi í gær þegar þeir
gagnrýndu að frumvarp um
sjúkratryggingar væri lagt fram,
nú skömmu fyrir þingslit.
Í frumvarpinu, sem dreift var í
þinginu í gær, eru 73 greinar og
fjögur bráðabirgðaákvæði. Sam-
kvæmt athugasemdum er mark-
mið þess „að tryggja sjúkra-
tryggðum aðgang að fullkomnustu
heilbrigðisþjónustu og aðstoð sem
á hverjum tíma eru tök á að veita
og að allir sjúkratryggðir njóti hér
eftir sem hingað til umsaminnar
þjónustu, óháð efnahag“.
„Það er ekki boðlegt að stunda
ekki fagleg vinnubrögð á Alþingi.
Það er liðin tíð,“ sagði Siv Frið-
leifsdóttir, þingflokksformaður
Framsóknarflokks. Sagði hún ekki
hægt að moka málinu í gegn á
örfáum dögum og bætti við: „Það
er verið að niðurlægja þingið.“
Kolbrún Halldórsdóttir, VG,
sagði út úr korti að leggja fram
mál sem gengi út á að setja heil-
brigðisþjónustuna meira eða
minna á markað þegar aðeins sjö
þingfundadagar væru eftir.
Ásta Möller, Sjálfstæðisflokki,
sagði á hinn bóginn að þingmönn-
um væri vel kunnugt um efni
frumvarpsins, hægt yrði að ræða
það í heilbrigðisnefnd á komandi
nefndadögum og að áhersla væri
lögð á að afgreiða það fyrir vorið.
- bþs
Stjórnarandstaðan gagnrýnir að frumvarp um sjúkratryggingar komi seint fram:
Það er verið að niðurlægja þingið
FRÁ ALÞINGI Siv Friðleifsdóttir segir
ófagleg vinnubrögð á þingi heyra sög-
unni til. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
DÓMSMÁL Premyzlaw Plank, sem
situr í fangelsi, hefur kært
ákvörðun dómsmálaráðuneytisins
þess efnis að hann verði fram-
seldur til Póllands.
Ákvörðunin var tekin eftir að
beiðni barst frá pólskum yfirvöld-
um um að Plank yrði framseldur.
Þar er hann grunaður um aðild að
hrottalegu morði. Maðurinn
kærir ákvörðunina til Héraðs-
dóms Reykjavíkur. Niðurstöðu
hans getur Plank síðan áfrýjað til
Hæstaréttar, sé hann ósáttur.
Verði ákvörðunin staðfest á
báðum dómsstigum, verður
maðurinn sendur í lögreglufylgd
úr landi, en ella látinn laus. - jss
Grunaður um aðild að morði:
Kærir framsals-
ákvörðun