Fréttablaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 10
10. maí 2008 LAUGARDAGUR
Gegnheilt Yberaro
Ármúla 23
108 Reykjavík
sími 568 1888
Njarðarnesi 4
603 Akureyri
sími 464 7878
www.pog.is
Ómeðhöndlað
Þykkt: 14 mm
Breidd: 70 mm
Lengd: 450 mm
Tilboð: 3.000 kr m
²
Fáðu sýnishorn hjá
okkur!
FRAMHALDSSKÓLAR Yfir helmingur stelpna í fram-
haldsskólum segist neyta grænmetis daglega eða oft
á dag, og það sama á við um ávexti. Hins vegar
neytir tæplega helmingur stráka grænmetis og
ávaxta daglega.
Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknarinnar
„Ungt fólk 2007 – framhaldsskólanemar“ sem nýlega
var kynnt. Rannsóknin snerti líðan og framtíðarsýn
íslenskra framhaldsskólanema og var lögð fyrir
nemendur í öllum framhaldsskólum landsins haustið
2007.
Í niðurstöðunum kom fram að þriðjungur stelpna
borðar sælgæti eða sætt kex daglega eða oft á dag,
og fimmtungur drekkur sykraða gosdrykki daglega
eða oft á dag. Þriðjungur stráka borðar sælgæti eða
sætt kex daglega og tæplega helmingur stráka
drekkur sykurgos svo oft. Fimmtungur stelpna og
stráka stunda nær aldrei íþróttir eða líkamsrækt og
jafn stór hluti fer í partý í hverri viku. Stelpurnar ná
meiri nætursvefni en strákarnir. Þær sofa í sjö til
átta klukkustundir á nóttu en strákarnir í sex
klukkustundir eða skemur.
Fimmti hver framhaldsskólanemi fer vikulega eða
oftar í partí. Stelpur fara gjarnan á kaffihús en
verulega hefur dregið úr bíóferðum. Strákarnir fara
hins vegar frekar í bíó en stelpurnar og þeir vilja
frekar fara í bíó en á kaffihús.
Framhaldsskólanemendum sem fara reglulega í
leikhús, á söfn og klassíska tónleika hefur fækkað.
Tónlistarnám hefur hinsvegar aukist hjá báðum
kynjum. Strákarnir eru líklegri en stelpurnar til að
spila í hljómsveit með vinum sínum. Fáar stelpur
stunda skátastarf, ungliðastarf björgunarsveita eða
ungmennastarf Rauða krossins, en tíundi hver strák-
ur utan höfuðborgarsvæðisins tekur þátt í ungliða-
starfi björgunarsveita.
Þátttaka nemenda í félagslífi í skólanum hefur
haldist jöfn, þriðjungur til fjórðungur stráka og
stelpna tekur þar mikinn þátt.
Álfgeir Logi Kristjánsson, aðjunkt við Háskólann í
Reykjavík, segir að niðurstöðurnar séu jákvæðar.
„Ungt fólk á Íslandi er vel statt,“ segir hann. „Við
sjáum hækkandi hlutfall varðandi tengsl við
foreldra og fjölskyldu og meiri líkamlega hreyfingu.
Heilt yfir sýna niðurstöðurnar flotta mynd af ungu
fólki á Íslandi.“ ghs@frettabladid.is
VEL STATT „Ungt fólk á Íslandi er vel statt,“ segir Álfgeir Logi
Kristjánsson, aðjunkt við Háskólann í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fleiri ungir borða
grænmeti og ávexti
Neysla framhaldsskólanema á grænmeti og ávexti hefur aukist verulega síðustu
árin, en samt borðar um þriðjungur sætt kex og helmingur stráka drekkur syk-
urgos á hverjum degi. Fimmti hver framhaldsskólanemi stundar ekki íþróttir.
HEILBRIGÐISMÁL Guðmundur Arason, kvensjúkdóma-
læknir hjá Art Medica, segir breytingar á lögum
sem heimila einhleypum konum að gangast undir
tæknifrjóvgun fagnaðarefni. Væntanlegt er frum-
varp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráð-
herra sem þegar hefur verið lagt fyrir ríkisstjórn.
Guðmundur segir að árlega hafi tugir einhleypra
kvenna leitað til Art Medica sem hafi viljað gangast
undir tæknifrjóvgun. Erfitt hafi verið að vísa þeim
konum frá á grundvelli þess að lög heimiluðu ekki
einhleypum konum að gangast undir slíka aðgerð.
„Þetta hefur verið sérstaklega erfitt þegar konur
eru orðnar um það bil 35 ára og þaðan af eldri og því
þótt skammur tími til stefnu,“ segir hann.
Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar, segist
telja að mikil eining ríki um málið innan þingflokk-
ana og hún eigi von á að frumvarpið verði afgreitt
innan skamms. Hún bendir einnig á að eftir að þetta
mál hefur verið leiðrétt sé nauðsynlegt að vekja upp
umræðu um staðgöngumæðrun en slíkt getur verið
konum, sem misst hafa legið, nauðsynlegt úrræði
vilji þær eignast börn. - kdk
Tugir fyrirspurna frá einhleypum konum hafa árlega borist læknum Art Medica:
Hefur verið erfitt að vísa þeim frá
LÍBANON, AP Að minnsta kosti ellefu
manns létust og yfir tuttugu særð-
ust í átökum í Beirút undanfarna
daga milli liðsmanna Hizbollah,
sem eru sjía-múslimar, og súnní-
múslima sem Bandaríkjamenn
hafa stutt.
Liðsmenn Hizbollah höfðu á
fimmtudag náð flestum hverfum
súnnía í Beirút á sitt vald. Í gær
mátti hins vegar sjá hermenn úr
her landsins fara inn í þau hverfi,
sem Hizbollah hafði náð á vald sitt,
og stilla sér þar upp í varðstöðu.
Markmiðið hafði greinilega verið
að sýna fram á styrk samtakanna
fyrir næstu samningaviðræður um
pólitíska framtíð landsins.
Meðal annars höfðu um eitt
hundrað Hizbollah-liðar gengið
vopnaðir í gær niður Hamrastræti,
sem er vinsæl verslunargata í
hverfi súnnía. Hizbollah-mennirn-
ir stilltu sér upp á götuhornum og
gangstéttum og stöðvuðu þær fáu
bifreiðar sem hættu sér inn á göt-
una.
Herinn hefur ekki skipt sér af
átökum súnnía og sjía og lét yfir-
töku Hizbollah á hverfunum
afskiptalausa. Meðal annars stóð
herinn hjá þegar liðsmenn Hiz-
bollah brenndu byggingu helsta
dagblaðs andstæðinga sinna í borg-
inni.
Átökin síðustu daga vekja upp
minningar um borgarastríðið í Líb-
anon árin 1975-90, sem kostaði 150
þúsund manns lífið. - gb
Hizbollah afhenti stjórnarhernum yfirráð í Beirút eftir þriggja daga hörð átök:
Hizbollah sýnir mátt sinn
HERMENN STANDA VÖRÐ Stjórnarher Líbanons fékk hvert hverfi súnnía á fætur öðru
afhent á ný átakalaust. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GUÐMUNDUR ARASONÁSTA MÖLLER
NIÐURSTÖÐUR
Þriðjungur stelpna ver 2 tímum eða meiru á dag í
heimanám en aðeins 16 prósent stráka.
Sextíu prósent stráka verja hálftíma eða minni tíma á
dag til heimanáms en aðeins þriðjungur stelpna.
Um helmingur stelpna og stráka myndu læra meira ef
þau fengju að ráða meiru um námið.
Tíundi hver nemandi telur lesblindu hafa mikil áhrif á
námsframmistöðu sína.
Tveir þriðju stráka og stelpna á höfuðborgarsvæðinu og
rúmlega helmingur stráka og tæplega 63 prósent stelp-
na utan höfuðborgarsvæðisins telja líklegt að þau fari í
háskóla á Íslandi strax að loknum framhaldsskóla.
Tveir þriðju stelpna og tæplega helmingur stráka vinnur
með námi.
Þrír fjórðu stelpna og rúmlega helmingur strákar tala oft
við fjölskyldu sína.
Heimild: „Ungt fólk 2007 – framhaldsskólanemar“.