Fréttablaðið - 13.05.2008, Blaðsíða 36
13. MAÍ 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Svefnherbergi eiga að vera
griðastaður þar sem við njót-
um góðra stunda og sofum
svefni hinna réttlátu.
Hafa litir í svefnherbergjum
áhrif á líðan okkar eða erum við
háð tískusveiflum þar sem ann-
ars staðar? Valdimar Gunnar Sig-
urðsson, málarameistari og ráð-
gjafi hjá Fluggerlitum, var spurð-
ur að því.
„Það er algengt að svefnher-
bergi séu hvít og svo sé einn vegg-
ur í lit. Oft við höfðagaflinn,“ segir
Valdimar og telur tískuna líka því
sem verið hefur. „Ég styðst við
tvær meginreglur þegar tveir litir
eru valdir saman,“ segir hann.
„Að maður sjái þá báða úr dyrun-
um, en annar sé ekki falinn á bak
við hurð og að litur sé beint á móti
glugga. Spurður hvort einhver
litur sé öðrum vinsælli núna
svarar hann: „Það er alltaf
einstaklingsbundið hvað
hentar inn á heimilin.
Við búum öll svo mis-
munandi sem betur
fer og svefnherbergin
eiga að endurspegla
smekk eigenda sinna
en jarðarlitirnir hafa
verið vinsælastir í
hjónaherbergin. Brúnir
og grábrúnir tónar. Svo
er grænn líka góður litur
og róandi. En það eru til
fjögurhundruð þúsund litir
og málið er að
hitta á rétta tón-
inn. Oft er verið
að tengja saman
liti og tilfinningar og
rauður er talinn örvandi en ég
held að uppkomið fólk sé frekar
að leita að þægilegum lit í svefn-
herbergið en einhverjum æsandi
því slíkir litir verða leiðigjarnir til
lengdar.“
Þar sem oft eru fleiri barna-
og unglingaherbergi á heimilum
en fullorðinsherbergi er Valdi-
mar inntur eftir áhrifum lita á
ungviðið. „Ég mæli með sterkari
litum í herbergi unga fólksins til
að gleðja það og örva ímyndunar-
aflið. Við erum jú að fegra í kring-
um okkur.“ - gun
Fegrum herbergið með litum
Dempaðir litir henta í herbergi fullorðinna og jarðlitirnir hafa þar yfir-
burði í vinsældum.
Glaðlegir litir þykja
góðir í barnaher-
bergi og einnig
vilja ungling-
arnir oft afgerandi
umhverfi.
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
viðarparket
Atlantskaup ehf. Bæjarflöt 6,112 Reykjavík S: 533 3700
Upplýsingar á www.atlantskaup.is
STIGAR OG HANDRIÐ ÚR GLERI OG STÁLI
ÚTI SEM INNI