Fréttablaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 88
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Dr. Gunna Það lyftist brúnin á mörgum þegar Eurobandið komst upp úr undankeppninni. Nei sko, hugsaði fólk. Eurovision-partíin voru fjöl- menn úti um allan bæ á laugardeg- inum, enda í fyrsta sinn síðan 2004 sem við vorum með í aðalkeppn- inni. Iss, þetta er ömurleg keppni, sögðu allir en gláptu undir drep. OKKAR fólk stóð sig vel og eftir tvo tíma af rjóma evrópskrar alþýðutónlistar hófst stigagjöfin. Við fengum tólf stig frá Finnum í fyrstu atrennu og svo fjölgaði stig- unum látlaust. Sænska plastbomb- an Charlotte fylgdi þó fast á hæla okkar og á tímabili leit út fyrir að hún myndi vinna þetta. Landsmenn nöguðu neglur á sætisbrúnum þegar síðustu stigin frá Portúgal voru lesin upp. Sænska vélmennið fékk bara fimm stig... og bíddu við, Ísland douze pointe! Í hverju húsi var gargað af fögnuði þegar Friðrik og Regína stigu aftur á svið í glimmerregni og tóku sig- urlagið This Is My Life. Þjóðin söng með – loksins, loksins! – fjand- menn féllust í faðma, tárin flóðu. Seinna um kvöldið var miðbærinn útlítandi eins og þrjú gamlárskvöld hefðu runnið saman í eitt. Logar brunnu enn í gömlu Morgunblaðs- höllinni undir morgun, fjórir verð- ir í klukkubúðum lágu illa haldnir á slysadeild og sjöhundruð voru sektaðir fyrir að míga á veggi. Viku síðar fékk löggan rafbyssur. Og tvo skriðdreka. EKKI var talað um annað en sigur- inn næstu vikurnar. Þjóðin var í skýjunum, allir nema karlinn í sjónvarpsbúðinni sem þurfti að gefa átta flatskjái. Svartnættið sem hafði hangið yfir þjóðarsálinni síðan kreppan kom um páskana gufaði snarlega upp. SVAKALEG uppsveifla einkenndi sumarið. Fljótlega fóru húsbílar aftur að seljast og yfirflæðandi bílaplanið í Sundahöfn tæmdist. Krónan hækkaði og hækkaði, Elton John kom aftur og aftur og spilaði í afmælum auðkýfinga. Enginn minntist á evru og Evrópusam- band. Bankarnir fengu sjálfstraust á ný, slógu lán í útlöndum og fóru að dæla út peningum. Allt varð æðislegt á ný. GEIR Ólafsson keppti fyrir okkar hönd í Egilshöll 2009, en laut naum- lega í gras fyrir fótalausu stúlk- unni frá Aserbaídsjan. Það var samt einróma álit allra að aldrei hefði tekist eins vel upp við að halda Eurovisionkeppni. EF þessi draumsýn klikkar má svo náttúrlega bara byggja enn eitt álverið. Við vinnum Eurovision Í dag er fimmtudagurinn 15. maí, 137 dagur ársins. 4.12 13.24 22.38 3.37 13.09 22.43 F í t o n / S Í A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.