Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.05.2008, Qupperneq 81

Fréttablaðið - 18.05.2008, Qupperneq 81
Flugskóli Íslands er stærsti og öflugasti flugskóli landsins með 17 flugvélar, þyrlu og flughermi í rekstri og á næsta ári bætist B-757 flughermir í flotann. Skólinn býður upp á allt nám sem þarfnast til að flugmaður geti hafið störf hjá flugfélagi sem atvinnuflugmaður. Að auki sinnir skólinn tegundarþjálfunum og endurmenntun fyrir flugmenn innlendra og erlendra flugfélaga. WWW.FLUGSKOLI. IS FLUGSKÓLI LANDSINS STÆRSTI OG ÖFLUGASTI ÁHAFNASAMSTARF ÞYRLUNÁM TEGUNDARÁRITANIR Flugskól i Ís lands er hluti af og í e igu Tækniskólans, skóla atvinnul ífs ins SUNNUDAGUR 18. maí 2008 21 AMMA ÖND D: Herdís Egilsdóttir föndurdrottning og kennari. Góðleg og sæt eins og amma önd. G: Guðni Ágústsson. Þessi gamalreyndi stjórnmála- maður er holdgervingur hinnar ríflega 90 ára framsókn- armaddömu. K: Hin húslega og vinalega amma önd sem býr í sveit- inni og töfrar þar fram miklar matarkrásir en er um leið á einhvern hátt þýsk í anda og nokkuð ströng í fasi á sér enga skýra samsvörun í íslenskum anda- hópi. Ef Nanna Rögnvaldardóttir og Ingibjörg Sólrún yrðu samtvinnaðar kæmi þar út amma önd. ANDRÉSÍNA K: Andrésína er stödd í eilífu tildragelsi þar sem gifting bíður við enda ganganna en verður þó aldrei því hana óar við því að verða móðir og lífsförunautur. Prótótýpa þessarar daður- drósar öðlaðist holdtekningu í Rósu Ingólfs sem boðað hefur um áratugaskeið eilífleika tildragelsisins á meðan aðrar konur misstu rómantíkina inn í reit á Excelskjali eða glutruðu henni niður um götin á innkaupakerrunni í Bónus. G: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Á Andrésína ekki í ein- hvers konar ástar/haturssambandi við Andrés? D: Dorrit. Alltaf fín, hress og bleik. RIPP, RAPP OG RUPP G: Bjarni Harðarson, Kristinn H. Gunnarsson og Jón Bjarna- son. Þeir koma einhvern veginn alltaf upp í pontu hver á eftir öðrum niðri á þingi. K: Aldrei deyja þeir ráðalausir litlu frændur Andrésar sem reyna hvað þeir geta að hafa vit fyrir ofsamanninum. Þeir eru í bullandi meðvirkni með reiðiröskun erfiða heimilis- föðurins og eyða því ævinni í sífelldri leit að lausnum á vandræðum hans. Eins og vænta má er Andrési slétt sama um hjálpsemi annarra en litlu ungarnir hafa stuðning hver af öðrum og vita sem er að þeir eru betri menn og útsjónarsamari en vanstilltur frændinn. Þeim svipar því um margt til Gísla Marteins, Kjartans Magnússonar og Júlíusar Vífils sem verða í sífellu að beita öllum brögðum til að bjarga óútreiknanlegum borgarstjóra úr sínum stöðugu klípum. Hann kann þeim litlar þakkir fyrir en það kemur ekki í veg fyrir að vart er hann búinn að koma sér í gott klandur en Ripp, Rapp og Rupp hlaupa til eins og sannir skátar og draga hann upp úr pyttinum. D: Herbert Guðmundsson, Leoncie og Geir Ólafs. JÓAKIM AÐALÖND D: Björgólfur Guðmundsson nema að hann er ekki nískur. Ég er líka eiginlega alveg viss um að hann er yfirleitt í buxum á almannafæri. K: Það er bara einn maður á Íslandi sem ræður yfir stórum peningakassa og þolir engum að seilast í þann sjóð og það er Davíð Oddsson. G: Björgólfur Guðmundsson. Margir sjá hann fyrir sér sitjandi á gullhaug eins og Jóakim. HÁBEINN K: Hinn ljónheppni og roggni glansgæi stelur senunni aftur og aftur svo Andrés fær næg tilefni til að taka nokkur góð geðvonsku- köst. Þar sem hann er líka helsti keppinautur Andrésar um hylli Andrésínu eru næg tilefni fyrir núning á milli þeirra frænda. Hvar sér maður svo myndarlegan sperrilegg í íslenskum Andabæ? Það skyldi þó aldrei vera að Björgólfi Thor Björgólfssyni svipi til Hábeins þar sem hann gengur um stræti með órætt bros í litklæðum og gerir hina seinheppnu Andrésa Íslands óða af gremju yfir lukku hans. G: Björgólfur Thor. Hábeini verður allt að fé. Þetta fer ósegjanlega í taugarnar á Andrési. D: Ólafur Ragnar – þeir eru báðir með sömu hárgreiðsluna og svo er hann jafn sjúklega heppinn - að vera forseti. BJARNABÓFAR K: Olís, Esso og Skeljungur – eru þetta ekki hinir miklu Bjarnabófar þessa lands? D: Kalli Bjarni, Einar Ágúst og Lalli Johns. G: Erlendir vogunarsjóðir. Óprúttnir aðilar sem gerðu atlögu að íslensku krónunni. Hlæja núna dátt. GUFFI D: Ástþór Magnússon – göslast áfram án þess að hafa hugmynd um hvort hann nær að klára verkefnið eða ekki. Munnsvipurinn er eins. G: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Gamli góði Guffi er alltaf með, gleymir minnisblöðum og hleypir öllu í háaloft. Verður síðan mest undrandi sjálfur. K: Maður gæti haldið að í lopapeysukynslóð krúttanna væru allir óttalegir Guffar, en krúttin eru öll flögð undir fögru skinni með skýrt markaða stefnu um heimsyfirráð og markaðs- hlutdeild. Hinir sönnu Guffar þessa lands eru gæflyndir myndasöguáhugamenn og kvikmyndaspesíalistar með mikinn áhuga á spurningakeppni framhaldsskólanna. Ætli frummyndin sé ekki Stefán Pálsson, ef hann væri ekki svona gallharður í pólitíkinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.