Fréttablaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Í dag er þriðjudagurinn 20. maí, 142. dagur ársins. 3.56 13.24 22.55 3.18 13.09 23.03 Þó að allar kynslóðir þekki lagið Stairway to Heaven hef ég nýlega komist að því að kynslóðin sem tilheyrði hópi unglinga þegar það var efst á vinsældalistum lumar á leyndarmáli. Lagið er nefnilega ekki aðeins undurfögur klassík held- ur ku það víst einnig geyma afar leynilega uppskrift af því sem flest- ir menn leita eftir en fæstir ná full- um tökum á. FJÖLDI bóka hefur verið skrifaður um málefnið og varla er til sú mann- eskja sem ekki hefur reynt að kom- ast nær því sem það leitar að með kaupum á einhverju tóli. Útkoman sem uppskriftin á að gefa af sér er nefnilega fullkomið kynlíf. Í flest- um útgáfum er lagið átta mínútur og tvær sekúndur að lengd. Sá tími er víst lykillinn að fullkominni stund fyrir elskendur. Hvorugur þeirra verði leiður á athöfninni en báðir fái löngunum sínum svalað. Fylgi elsk- hugarnir svo tempói lagsins út í ystu æsar á það að leiða fólk á slóðir algleymis fullnægingarinnar; text- inn sjálfur geymir svo skrauthvörf um leiðina að himnasælu jarðarbúa. EFTIR að hafa fengið að bergja ögn á þeim launhelgum sem þetta lag á að geyma að mati þeirra sem voru að stíga sín fyrstu skref á einstigi ástarinnar og leyndarþing hennar þegar það hljómaði sem hæst hóf ég leit að upplýsingum um þann tíma sem flestir verja til ástundunar amorsleikja. MÉR til skelfingar komst ég að því að sá tími sem fólk ver yfirleitt í rekkju til að komast að takmarki sínu er tvær mínútur. Það fannst mér skammur tími og hneykslaðist ég smá. Svo tók ég að velta fyrir mér að ef til vill væri ég í hópi þessa fólks. Sinnuleysi vanans verður jú oft til þess að allt rennur saman í eitt, hvort sem um er að ræða æðsta unað eða verstu leiðindi. Þá ofmeta flestir frammistöðu sína og komast því líklega ekki að hinu sanna fyrr en jafn óspennandi hlutur og skeið- klukka hefur bæst í leikinn. SÁ möguleiki er þó fyrir hendi að þær samfélagslegu breytingar sem orðið hafa frá því þetta dularfulla lag hljómaði fyrst og auknar kröfur fólks um hraða og þjónustu hafi orðið til þess að átta mínútur séu bara orðnar of langur tími fyrir meðaljón makanna. Ef til vill er allur galdur horfinn úr tempói tröppugangsins, hinn leyndi kaleik- ur vikið fyrir einnota drykkjarmáli og lagið This Is My Life með Euro- bandinu leiðir til jafn mikillar sælu fyrir elskendur samtímans og Stair- way to Heaven leiddi til hjá elskend- um hér áður. Tröppugangur til himnaríkis

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.