Fréttablaðið - 21.05.2008, Page 1
146
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 21. maí 2008 – 21. tölublað – 4. árgangur
14
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
SKUGGABANKASTJÓRN MARKAÐARINS Þórður Friðjónsson, Edda Rós Karlsdóttir, Ásgeir Jónsson og Ólafur Ísleifsson skipa
Skuggabankastjórn Markaðarins sem kom saman á föstudag til fyrsta fundar síns á Hótel Holti og ræddi vaxtaákvörðun. MARKAÐURINN/GVA
Björn Ingi Hrafnsson
skrifar
Halda á stýrivöxtum óbreyttum, að mati skugga-
bankastjórnar Markaðarins, sem hefur komið saman
í fyrsta sinn í aðdraganda stýrivaxtaákvörðunar
Seðlabanka Íslands. Skuggabankastjórnin hefur
áhyggjur af mögulegri ofkælingu íslenska hag-
kerfisins og telur því ekki skynsamlegt að hækka
frekar vexti, þrátt fyrir verðbólguhorfur.
Skuggabankastjórn Markaðarins skipa Þórður
Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, Ólafur Ís-
leifsson, lektor við HR, Edda Rós Karlsdóttir, for-
stöðumaður greiningardeildar Landsbankans, og
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar
Kaupþings.
Ásgeir telur enga tilviljun að orðið hafi gengisleki
þrisvar sinnum hér á landi á aðeins áratug með til-
heyrandi verðlagshækkunum; ljóst sé að Seðlabank-
inn hafi ekki stjórn á verðbólgumarkmiðunum. „Um
leið afhjúpast ákveðnir gallar í íslenska fjármála-
kerfinu sem þarf að takast á við nú þegar,“ segir
hann.
Edda Rós bendir á að verðbólgu kúfurinn nú sé
staðreynd, en mikilvægt sé að benda á að eftir tólf
mánuði sé útlit fyrir innan við fjögurra prósenta
verðbólgu. Þórður segir dýrt að halda úti krónunni
og stórauka þurfi gjaldeyrisvaraforðann ef halda
eigi sjálfstæðri mynt, en upptaka evru þýddi að mun
veigaminni rök væru fyrir því að leggja út í gífur-
legan kostnað með harðri peningastefnu til þess að
ná trúverðugleika. Hann fengist með evru. Ólafur
segir íslensku bankana þá einu í Evrópu sem eigi sér
ekki bakhjarl í lánveitanda til þrautavara, nema að
svo miklu leyti sem Seðlabankinn geti lagt þeim til
lausafé í íslenskum krónum.
Hækkunarferli
stýrivaxta lokið
Skuggabankastjórn Markaðarins vill óbreytta stýrivexti.
Vel getur verið að við Íslendingar
séum að komast út úr þeirri efna-
hagslægð sem gengið hefur yfir
landið en hún getur einnig dreg-
ist á langinn, segir Þór Sigfús-
son, formaður Samtaka atvinnu-
lífsins, í grein sem hann ritar
í Markaðinn í dag. Í greininni
beinir Þór sjónum að tækifærun-
um sem felast í mótstreyminu og
bendir meðal annars á reynslu
Finna í því sambandi.
„Finnar komust að því að ein
ástæða samdráttarins var óábyrg
hagstjórn, miklar launa hækkanir
sem voru aftur og aftur rétt-
ar af með verðbólgu og gengi
finnska marksins. Þetta leiddi
síðan til inngöngu Finna í ESB
og upptöku evru. Við Íslendingar
höfum reynslu af álíka hagstjórn.
Eðlilega sprettur fram sambæri-
leg umræða hérlendis um hvort
svarið við þessu sé innganga í
ESB og upptaka evru. Einstaka
stjórnmálamenn af hægri væng
stjórnmálanna hafa tekið ESB-
umræðuna úr gjafaumbúðunum
og það er vel. Kannski er það
enn eitt tækifærið sem skapast
hefur í núverandi samdrætti að
sú umræða fer nú fram með opn-
ari hætti en áður hefur tíðkast,“
segir Þór.
„Þótt Finnar hafi litið á tiltekt-
ina eftir síðasta samdráttarskeið
sem góðan undirbúning fyrir
inngöngu í Evrópusambandið og
EMU má það ekki draga úr áhuga
fyrir því að svona hreingern-
ing fari fram hérlendis. Óháð af-
stöðu okkar til ESB eigum við að
líta á núverandi samdrátt sem
tækifæri til þess að gera strax
þær breytingar sem bætt geta
samkeppnisstöðu okkar og gert
okkur snjallari á næsta upp-
gangsskeiði.“
sjá bls. 10.
Formaður SA:
ESB-um ræðan
tekin úr gjafa-
umbúðunum
Óopinber sendiherra í Svíþjóð
Segir vor í lofti í
efnahagsmálum
Hugað að afþreyingu á vinnustað
Verða að
kunna að leika sér
Frístundin
Ferðalög,
heilsurækt
og lestur
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
...við
prentum!
Hagvöxtur nam að jafnaði hálfu
prósenti á fyrsta ársfjórðungi
hjá aðildarríkjum Efnahags- og
framfarastofunarinnar (OECD).
Samkvæmt fyrstu áætlunum,
sem stofnunin birti í gær, er
aukningin
sú sama og
í fjórðungn-
um þar á
undan.
Hagvöxt-
ur var hins
vegar ívið
meiri á
evrusvæð-
inu, eða 0,7
prósent, og
jókst frá
því í fyrra,
en á síð-
asta fjórð-
ungi 2007
var hagvöxtur evrulandanna 0,4
prósent. Í Bandaríkjunum nam
vöxturinn hins vegar ekki nema
0,1 prósenti, eins og á lokafjórð-
ungi 2007. Vöxtur á milli árs-
fjórðunga var mestur í Þýska-
landi, 2,7 prósent, en minnstur í
Japan, 1,1 prósent. - óká
Hagvöxtur
evrulanda eykst
NEW YORK Í BANDA-
RÍKJUNUM Hagvöxtur í
Bandaríkjunum stendur
í stað milli ársfjórðunga.