Fréttablaðið - 22.05.2008, Blaðsíða 36
[ ]
Blessuð sólin elskar allt. Allt
með kossi vekur. Nema góð
myrkvunartjöld skapi næturró
á íslenskri sumarnótt.
Nú er tæpur mánuður í að aftur
taki að skyggja eitt hænufet á
dag. Íslendingar elska bjartar
sumarnætur og mörgum finnst
aldrei eins gott að sofa í eins og
þegar nætursólin skín á koddann
meðan hvílst er. Aðrir geta illa
lokað auga í dagsbirtu næturinn-
ar og loka fyrir ljómann með
öllum tiltækum ráðum, en þá
koma myrkvunargluggatjöld sér
vel.
Rúllugluggatjöld eru enn lang-
vinsælust fyrir myrkvun í svefn-
herbergjum. Hvíti liturinn hefur
lengi ráðið ríkjum þó að í seinni
tíð hafi ljósir jarðarlitir og
dökkir, eins og grátt og svart,
rutt sér til rúms, en margir litir
eru fáanlegir. Undanfarið hafa
strimlagluggatjöld komið sterk
inn með funkís-straumum í arki-
tektúr. Skilvirkasta lausnin í
myrkvun þykir þó plíseruð
gluggatjöld, því þar er ljósbil
meðfram tjaldi minnst.
Sjá nánar um alhliða þjónustu
og vöruval á heimasíðunum www.
solar.is og www.ljori.is.
thordis@frettabladid.is
Myrkvaðar sumarnætur
Ljóri býður viðskiptavinum upp á nýtt
myrkvunarefni á gömul rúlluglugga-
tjaldakefli, en þá þarf ekki að bora
fyrir nýjum festingum. Hér má sjá ljóst
screen-efni fyrir gluggum, en „screen“ er
meðal þess heitasta nú í rúllugardínum
og margir litir í boði.
Plíseruð gluggatjöld eru best til að loka
dagsbirtuna úti því þau leggjast vel upp
að veggjum og hleypa síst birtu inn með
hliðunum. Falleg lausn sem hér sést frá
Sólar Gluggatjöldum.
Strimlagluggatjöld, eins og margir muna
eftir í stofnunum og fyrirtækjum á árum
áður, eru nú það heitasta fyrir glugga
heimilisins. Hér sjást ljós strimlaglugga-
tjöld í svefnherbergi frá Sólar Glugga-
tjöldum.
Veggklukkur eru sniðugar á vegg í eldhúsið eða borðstof-
una. Þær lofa okkur að fylgjast grannt með tímanum. Fallegar
veggklukkur geta einnig verið hin mesta veggprýði.
Supra lyklaboxin henta frábærlega fyrir sumarbústði, heimili og
fyrirtæki. Surpa lyklabox eru úr zink og álblöndu, nautsterk, höggþétt,
vind- og veðuheld og ryðga ekki. Auðvelt aðgengi fyrir þá sem vilja
komast inn. Má skipta um PIN númer hvenar sem er. Algerlega
mekanist, ekkert rafmagn eða battarí.
2 ára ábyrð
margra ára reynsla
Auglýsingasími
– Mest lesið
Hjálpaðu umhverfinu með
Blaðberanum
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...