Fréttablaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
hvataferðirFÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 Marta Eiríksdóttirstendur fyrir hópefli með leikjaívafi
BLS. 6
Listhúsinu LaugardalReykjavík
Sími: 581 2233
Dalsbraut 1
Akureyri
Sími 461 1150
Eftir að ég fékk mér IQ-CARE hef ég ekki fundið til í bakinu!
Sölvi Fannar ViðarssonFramkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar
Ég mæli hiklaust með
6 mán.
vaxtalausar raðgr.
Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
23. maí 2008 — 138. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
HVATAFERÐIR
Hópeflisnámskeið
sífellt vinsælli
Sérblað um hvataferðir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Rúnar og Heiða í Nikita
Kusu að vinna
meira og tala
minna þegar
þau byggðu
upp fyrirtækið.
FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU
Í DAG
FÖSTUDAGUR
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
HARPA ÆGISDÓTTIR
Öllum áskorunum
í eldhúsinu tekið
matur helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
LÖGREGLUMÁL „Þetta er meiri háttar
bömmer,“ segir Óskar Jónasson
kvikmyndagerðarmaður. Hann
varð fyrir þeirri óskemmtilegu
reynslu í vikunni að innbrotsþjófur
braust inn á heimili hans og Evu
Maríu Jónsdóttur sjónvarpskonu á
Bjarnarstíg og hafði þaðan á brott
með sér tölvu og ýmsan tækjakost.
Óskar segir innihaldið sér ómetan-
legt. Í tölvu Óskars eru að finna
handritsdrög og ýmsar verklýsing-
ar. Hvarf þeirra setur öll verkefni
sem í vinnslu eru, sjónvarpsþætt-
ina Svarta engla og kvikmyndina
Reykjavík Rotterdam, í voða auk
þeirra verkefna sem fram undan
eru. - jbg / sjá síðu 46
Innbrot í Reykjavík:
Óskar rændur
ÓSKAR JÓNASSON Tölvukosti, sem
geymir ómetanleg gögn, var rænt af
heimili hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ítarleg dagskrá á
www.hafnarfjordur.is
BARNAVERNDARMÁL „Börnin mín
gengu í gegnum helvíti vegna mín,“
segir Katrín Ósk Adamsdóttir, 35
ára móðir tveggja barna sem náði
tökum á vímuefnaneyslu sinni eftir
mikla baráttu.
Katrín segir börnin sín hafa mest-
allan hluta ársins 2002 verið í tíma-
bundnu fóstri en þá hafi hún verið
meira og minna „inn og út af með-
ferðarstofnunum og geðdeildum“
sakir langvarandi fíkniefnaneyslu.
Þegar Katrín fékk börnin sín aftur
segir hún hjálpina sem starfsfólk
Barnaverndar Reykjavíkur veitti
henni hafa verið sér ómetanlega í
baráttunni við að ná aftur tökum á
lífi sínu. „Starfsfólkið var með virkt
eftirlit með mér í þrjú ár á eftir,
sem hjálpaði mér mikið. Hins vegar
hafa börnin mín, og þá aðallega
drengurinn minn, glímt við mikla
erfiðleika í kjölfar þess sem þau
þurftu að þola vegna mín. Ég fékk
alla aðstoð sem ég þurfti á að halda
en börnin mín, sem höfðu gengið í
gegnum svo margt, hefur vantað
meiri stuðning til að vinna úr þess-
ari reynslu,“ segir Katrín. Hún
segir vandamál sonar síns einkum
hafa farið að koma upp þremur
árum eftir að hún hafði hætt neyslu.
Það sé því langt frá því að vanda
barna fíkniefnaneytanda sé lokið
þótt foreldrið láti af neyslunni.
Á síðasta ári voru 357 börn í var-
anlegu, tímabundnu eða styrktu
fóstri á vegum barnaverndaryfir-
valda, samkvæmt bráðabirgðatöl-
um úr óútgefinni ársskýrslu Barna-
verndarstofu. Bragi Guðbrandsson,
forstjóri Barnaverndarstofu, segir
börn fíkniefnaneytenda einkum þau
sem send eru í tímabundið fóstur.
Fjölgað hafi í þeim hópi og segi það
ýmislegt um þróun mála. „Flest
þetta fólk getur reynst börnum
sínum vel nái það tökum á fíkni-
sjúkdómi sínum,“ segir Bragi.
Valgerður Rúnarsdóttir, yfir-
læknir SÁÁ, bendir á að stór hluti
þeirra sem fari í meðferð sé ungt
fólk sem eigi ung börn. Nái fólk að
vinna bug á fíkninni geti það orðið
börnum sínum góðir foreldrar og
því eigi að vinna að því að koma
fólkinu til hjálpar. - kdk
Börnin mín gengu
í gegnum helvíti
Móðir sem hefur losað sig úr viðjum fíkniefna segir börnum sínum tveimur hafa
liðið skelfilega í veikindum hennar og líða enn fyrir. Starfsfólk barnaverndar hafi
veitt ómetanlega aðstoð. Börnin skorti þó hjálp til að takast á við erfiðleikana. Opnar nornasafn
Spákonan Sirrý opnar heimili sitt
fyrir gestum og gangandi á sunnu-
dag, þar sem þeir geta skoðað
nornadúkkusafn hennar.
FÓLK 38
Íslenskt par í So
You Think You Can
Dance
Hjördís Lilja Örnólfsdóttir
og Steve Lorenz fóru í
prufur fyrir bandarísku
dansþættina fyrr í vor.
FÓLK 46
Aftur í
úrvalsdeildina?
Ívar Ingimarsson er undir
smásjá enskra úrvals-
deildarfélaga og gæti
verið á leið frá Reading.
ÍÞRÓTTIR 42
BJART EYSTRA Í dag verða suð-
lægar áttir, 5-13 m/s vestan til, ann-
ars hægari. Skýjað og dálítil væta
vestast og á Vestfjörðum, annars
hálf- eða léttskýjað. Hiti 8-16 stig,
mildast til landsins nyrðra.
VEÐUR 4
8 15
9
1011
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA HELGIN VINNUVÉLAR O.FL.
Harpa Ægisdóttir, sem vinnur hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur, er mikil matreiðslukona og veit
hvað hún syngur í eldhúsinu.
Harpa gefst aldrei upp viðhvaða
Kjúklingarétturinn hennar Hörpu er einfaldur og
laus við óþarfa smámunasemi. „Innihaldið er þrjár
til fjórar kjúklingabringur, hálfur poki f
einn pakki af kúskú
Toppað með fetaosti
Harpa tekur öllum áskorunum í eldhúsinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FALLEGUR
FINGRAMATURÞegar halda á
veislu er tilvalið
að búa til sitt
eigið sushi handa gestunum.
MATUR 3
STELPUNÁMSKEIÐLjósmyndun, förðun, matargerð, jóga og dekkjaskiptingar eru meðal þess sem stelpur á aldrinum 15-25 geta lært á hátíðinni Valkyrjur sem verður haldin í fyrsta sinn nú um helgina í Hinu húsinu.HELGIN 4
Ódýrt og gott
í hádeginu
Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt að fá alls kyns góðgæti á
frábæru verði: Fylltar pönnukökur (crépes), samlokur, pizzur,
súpubar, nýbökuð brauð og gómsætan salatbar. Eins er hægt
að fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls kyns ísrétti, kökur og
tertur. Nýlega bættust svo belgískar vöfflur á matseðilinn
(láttu það eftir þér – þær eru algerlega þess virði). Við Perluna eru næg ókeypis bílastæði.
4ra rétta tilboð á veitingastað Perlunnar
Léttreyktur laxmeð granateplum og wasabi-sósuKókos og engifersúpameð grilluðum tígrisrækjumLambahryggurmeð lambaskanka og rósmarínsósuBanana- og súkkulaðifrauðmeð vanillusósu
Verð: 6.490 kr.
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
UMHVERFISMÁL Starfshópur á
vegum Siglingastofnunar hefur
skilgreint þá staði á landinu sem
þjónað geta sem neyðarhafnir eða
skipaafdrep á Íslandi. Neyðar-
hafnir og skipaafdrep eiga að
draga úr mengunarhættu vegna
nauðstaddra skipa við landið.
Mengunar hætta eykst á þeim
stöðum þar sem móttaka skipa í
neyð er skilgreind.
Hermann Guðjónsson siglinga-
málastjóri segir tillögurnar settar
fram vegna tilskipana frá
Evrópu sambandinu. Hann segir
neyðarhafnir og skipaafdrep vera
staði þar sem nauðstödd skip geti
fengið aðstoð en hins vegar fylgi
því áhætta í vissum tilfellum þar
sem um löskuð eða vélarvana skip
sé að ræða.
- shá / sjá síðu 6
Siglingastofnun:
Sex hafnir lið-
sinni skipum
FÓLK „Okkur líður æðislega, þetta
er ólýsanleg tilfinning,“ sagði
söngkonan Regína Ósk Óskars-
dóttir nokkrum mínútum eftir að
ljóst varð að íslenska lagið This Is
My Life komst í úrslit Eurovision
í Serbíu. Félagi Regínu, Friðrik
Ómar Hjörleifsson, var að sama
skapi ánægður og var handviss
um hvernig áfanganum yrði
fagnað: „Nú fáum við okkur bjór,“
sagði hann.
Auk Íslands komust Úkraína,
Króatía, Albanía, Danmörk, Sví-
þjóð, Lettland, Tyrkland og Portú-
gal í úrslit í gær. Íslenska lagið
verður það ellefta í röðinni á
laugardag. Mikil gleði braust út
hjá íslenska hópnum í Belgrad í
gærkvöld og fagnaði fólk eins og
við hefðum unnið Eurovision.
Fjölskyldur söngvaranna
horfðu á keppnina á heimilum
sínum og sagði Sigþrúður B.
Stefánsdóttir, móðir Regínu, að
stemningin hefði verið ólýsanleg.
„Ég grét af gleði, bæði yfir flutn-
ingnum og svo yfir úrslitunum.
Ég er svo stolt af stelpunni,“ segir
Sigþrúður. Hún og maður hennar,
Óskar Baldursson, flugu í morgun
út til Belgrad í boði Samskipa, en
Sigþrúður vinnur þar. „Það var
ósk Regínu að ég yrði í salnum á
úrslitakvöldinu og nú fær hún
hana uppfyllta.“ - glh/kóp
Friðrik Ómar og Regína Ósk sungu sig í úrslit í Eurovision í Serbíu:
Mamma Regínu grét af gleði
ÍSLAND Í ÚRSLIT Friðrik Ómar og Regína Ósk komust í úrslit Eurovision-keppninnar í Serbíu í gærkvöld. Þau voru í skýjunum
þegar ljósmyndari Fréttablaðsins hitti á þau á leið á blaðamannafund. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA