Fréttablaðið - 24.05.2008, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 24.05.2008, Blaðsíða 36
[ ]Gjaldeyri þarf að hafa með þegar ferðast er um erlendis. Flestir nota kortin sín í útlöndum, en gott er að hafa lausafé í réttum gjaldeyri til að borga með í til dæmis lestar og strætó. Misjafnt er hvaða áfangastaðir eru vinsælastir fyrir útskriftar- ferðir skólanna. Allir eiga þeir það þó sameiginlegt að bjóða upp á næga sól. „Ródos og Costa del Sol eru lang- vinsælustu áfangastaðirir fyrir þessa hópa nú í ár,“ segir Þyri Gunnarsdóttir hjá Heimsferðum. Þetta er annað árið sem Heims- ferðir bjóða útskriftarhópum upp á ferðir til Ródos en Costa del Sol hefur verið vinsæll áfangastaður í áraraðir. „Í þessum ferðum vilja margir fara til staða sem eru kannski ekki alveg eins algengir, Ródos hefur því alveg slegið í gegn enda svolítið meira framandi en samt staður þar sem ferðaþjónusta er mjög þróuð,“ segir Þyri. Hún segir framhaldsskólanema gera meiri kröfur um gæði gististaða en áður en samt sem áður þurfi ferð- irnar að vera tiltölulega ódýrar. Nemendur flestra framhalds- skóla fara í útskriftarferðir og eins færist í aukana að nemendur skelli sér út í sólina við útskrift úr háskóla. Áslaug Gunnarsdóttir hjá Úrvali Útsýn segir þessa tvo hópa ansi ólíka. „Háskólahóparnir hafa meiri áhuga á að fara til fjarlægra landa og kynnast nýrri menningu. Þeir eru duglegri við að fara í skoðunar- ferðir og hafa kannski aðeins meiri peninga milli handanna. Fram- haldsskólanemendurnir hugsa hins vegar fyrst og fremst um að kom- ast í sólina og vilja að næturlífið sé fjörugt, sem á svo sem líka við um háskólanemana,“ segir Áslaug. Hún segir ferðir til Mexíkó afar vinsælar meðal háskólahópanna og gjarnan sé komið við í einhverri stórborg á leiðinni út, til dæmis New York, til að gera enn meira úr ferðinni. Meðal framhaldsskóla- nemanna er Tyrkland hins vegar vinsælast og í sumar býður Úrval Útsýn upp á ferðir á nýjan áfanga- stað í Tyrklandi, Antalya, sem ein- ungis er í boði fyrir þessa hópa. thorgunnur@frettabladid.is Unga fólkið velur sólina Háskólahóparnir fara gjarnan til framandi slóða. Cancun í Mexíkó hefur slegið í gegn. Marmaris á Tyrklandi er vinsælasti áfangastaðurinn hjá framhaldsskóla- nemum á vegum Úrvals Útsýnar. Gríska eyjan Ródos laðar til sín útskriftarnema sem sækja bæði í menninguna og skemmtanalífið. NORDIC PHOTOS/GETTY BÍLALEIGUBÍLAR SUMARHÚS Í DANMÖRKU Sumarhús Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum stærðum Fjölbreyttar upplýsingar á www.fylkir.is LALANDIA - Rødby Lágmarksleiga 2 dagar. LALANDIA - Billund Nýtt frábært orlofshúsahverfi rétt við Legoland. Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975.- pr. viku. Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. ( Afgr.gjöld á flugvöllum). Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna og minibus 9 manna og rútur með eða án bílstjóra. MasterCard Mundu ferðaávísunina! Montreal Við stöndum upp úr í nýjustu könnun Capacent Fréttablaðið er með 41% meiri lestur en 24 stundir og 93% meiri lestur en Morgunblaðið Allt sem þú þarft... ...alla daga Fí to n/ SÍ A Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgina, 18–49 ára. Könnun Capacent í febrúar–apríl 2008. 49,72% 36,30% 69,94% Fréttablaðið 24 stundir M orgunblaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.