Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.05.2008, Qupperneq 59

Fréttablaðið - 24.05.2008, Qupperneq 59
LAUGARDAGUR 24. maí 2008 31 „Í vinnslu er frumvarp í við- skiptaráðuneytinu um greiðslu- aðlögun fyrir fólk sem lendir í greiðsluerfiðleikum og til skoðun- ar er hvort og þá hvernig hægt verði að taka á þeim málum í gegn- um Íbúðalánasjóð. Það sem skiptir meginmáli er að fólk hafi þak yfir höfuðið og missi ekki húsnæðið. Þar munum við reyna að hjálpa. En við getum ekki bjargað öllu. Ef fólk hefur farið offari í öðrum fjárfestingum og neyslulánum á slík aðstoð ekki við með sama hætti. Stjórnvöld redda aldrei bíla- lánunum svo dæmi sé tekið.“ Ingibjörg segir söguna sýna að það skiptist á skin og skúrir í efna- hagsmálum eins og í lífinu sjálfu og það viti allir. „Þá er bara að setja undir sig hausinn og reyna að vinna sig í gegnum erfiðleikatíma- bilið. Við Íslendingar erum ekki óvön því og við munum gera það nú sem endranær.“ ESB er langtímamarkmiðið Ingibjörg segir að líkt og vanalega séu efnahagsmálin stærsta við- fangsefni stjórnmálanna fram undan enda grunnurinn sem allt hvíli á. Sökum efnahagsástands- ins hér og annars staðar í heimin- um séu málin flóknari en áður. „Það er ljóst að við þurfum að tak- ast á við samdrátt í tekjum ríkis- sjóðs þannig að það verður flókn- ara og erfiðara að koma saman fjárlögum en á undanförnum árum þegar tekjuafgangurinn var umtalsverður vegna mikilla umsvifa í samfélaginu.“ Við þær aðstæður verði vandasamara en ella að búa til svigrúm til áfram- haldandi uppbyggingar velferðar- þjónustunnar. Ingibjörg hefur ekki farið leynt með þá skoðun sína að aðild að Evrópusambandinu og upptaka evru geti styrkt efnahagskerfið til langframa. „Það er langtímamark- mið. Það er ekki lausn á vandanum sem við glímum við núna. En til lengri tíma litið held ég að það eigi að vera stefnumiðið. Vandinn sem við eigum þar við að etja er hins vegar sá að ekki er um það pólitísk sátt í samfélaginu. Ég held hins vegar að það ætti ekki að vera um það ágreiningur að mikilvægt sé að við stefnum að því að uppfylla þær kröfur sem aðild að mynt- bandalaginu gerir til Evrópuþjóð- anna. Það eru bara hyggindi sem í hag koma.“ Samráðsstjórnmálin eru best Stefna stjórnarflokkanna í Evr- ópumálum er ólík. Ingibjörg segir það í lagi enda vitað að munur væri á skoðunum. Hún bendir þó á að afstaða flokkanna sé byggð á hagsmunamati og þó að Sjálfstæðis- flokkurinn telji ekki tímabært að hefja aðildarviðræður við Evrópu- sambandið líti hún svo á að það sé ekki ógerlegt út frá pólitískri hug- myndafræði flokksins. Annað dæmi um ágreining milli flokkanna skaut upp kollinum í vikunni. Samfylkingin er andvíg ákvörðun sjávarútvegsráðherra um hrefnuveiðar. „Þegar svona skoðanamunur kemur fram skiptir máli að hann sé uppi á borðum. Það er ekki verið að fela neitt, það er ekki verið að skrúfa menn niður eða kúga þá til hlýðni,“ segir hún og telur það merki um styrkleika að flokkar geti unnið vel saman þó að uppi sé ágreiningur um einstök mál. „Aðalatriðið er að samstarfið er sterkt þrátt fyrir skoðanamun í tilteknum málum. Það er ekki ágreiningslaust en það er árekstra- laust. Hin frjálsu skoðanaskipti við ríkisstjórnarborðið eru ein- faldlega góð vinnubrögð, einstök stjórnarfrumvörp hafa tekið miklum breytingum og útkoman verður betri fyrir vikið. Ég hef alltaf sagt að samráðsstjórnmál séu best og skili bestri stjórnar- framkvæmd.“ Enn eitt ágreiningsmálið er stór- iðjuframkvæmdir. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa marg- sinnis lýst sig hlynnta álveri í Helguvík en Ingibjörg Sólrún og fleiri framámenn Samfylkingar- innar eru því andvígir. Ingibjörg segir orkuöflun til álvers í Helgu- vík í óvissu eftir úrskurð Skipu- lagsstofnunar um Bitruvirkjun. Helguvíkurálver hafi þó verið komið úr höndum stjórnvalda. „Ég dreg ekki dul á að ef stjórnvöld hefðu haft tæki til að stýra þessu þá hefði ég heldur viljað að byggt væri upp á Bakka við Húsavík en í Helguvík. Til lengri tíma litið eru svo mörg önnur tækifæri til atvinnuuppbyggingar á Reykja- nesi og á höfuðborgarsvæðinu.“ Ætlum að skila sterkara samfélagi Í aprílkönnun Capacent á stjórn- málaviðhorfinu mældist fylgi Samfylkingarinnar 26 prósent, eins og í könnun Fréttablaðsins sem gerð var um miðjan apríl. Það er nokkuð lægra en í mars en svip- að og í kosningunum fyrir ári. Mat Ingibjargar er að Samfylkingin hafi í fyrri könnuninni notið góðs af réttarbótum ríkisstjórnarinnar í velferðarmálum. „Ég held að við höfum notið góðs af því, kannski umfram Sjálfstæðisflokkinn, hvort sem það er sanngjarnt eða ekki. Svo þegar harðnar á dalnum og menn sjá fram á þrengingar og óvissu bitnar það meira á okkur. Við erum nýr flokkur í ríkisstjórn og væntingarnar miklar. Þar af leiðandi eru vonbrigðin kannski meiri þegar á móti blæs. En við erum fólk til að taka tíma- bundnu andstreymi og söknum þess ekki að vera í stjórnarand- stöðu og græða á efnahagsþreng- ingum í skoðanakönnunum. Við ætlum að skila þjóðinni sterkara samfélagi og vinna kosningar á góðum verkum,“ segir hún. Sam- starfið við Geir H. Haarde forsætis- ráðherra er gott, að sögn Ingi- bjargar. „Við eigum mjög gott samstarf, erum hreinskiptin og meðvituð um að við þurfum að semja okkur að niðurstöðu. Við þurfum að láta hlutina ganga þannig upp að engum finnist að gengið sé á hans hlut, hvorki ein- stökum ráðherrum né flokkum,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. „Geir er mjög reyndur stjórnmála- maður og hefur þá rósemi hugans sem mikilvæg er á erfiðum augna- blikum. Hann veit að sá kann margt sem bíða kann, sem er mikil- vægur eiginleiki góðs stjórnmála- manns.“ Það er ljóst að við þurfum að takast á við samdrátt í tekjum ríkissjóðs þannig að það verður flóknara og erfið- ara að koma saman fjárlögum en á undanförnum árum þegar tekjuafgangurinn var umtalsverður vegna mikilla umsvifa í samfélaginu. Gildir til 29. maí eða á meðan birgðir endast. Hægindastóll Sófasett 3+1+1 8183 Hornsófi 2+h+2 6689 BORÐSTOFUSTÓLAR Á SPRENGITILBOÐI Allir borðstofustólar á 9.990.- 3ja sæta sófi Fáanlegt í Smáralind, Holtagörðum Gæða húsgögn á frábæru verði 159.000kr Verð áður 239.000.- 155.000kr Verð áður 239.000.- 135.200kr Fullt verð 169.000.- DUPEN RÚMIN komin aftur Ný sending af 120x200cm, 150x200cm og 180x200cm 80. 000 krÞÚ SP AR AR 63.200kr Fullt verð 79.000.- 84. 000 krÞÚ SP AR AR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.