Fréttablaðið - 28.05.2008, Page 1
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„Þessi verðbólguskot eru alltaf upp á við. Verð-
bólgan hefur farið vaxandi frá árinu 2003 í mjög
föstum takti. Það væri kannski nær að tala um
verðbólgustökk,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ.
Eins og sjá má á meðfylgjandi línuriti yfir hækk-
un vísitölu neysluverðs hefur vísitalan verið á
stöðugri uppleið undanfarin fimm ár.
Hagstofan birti í fyrradag vísitölu neysluverðs
fyrir þennan mánuð. Vísitalan hækkaði um 1,37
prósent milli mánaða, en tólf mánaða verðbólga
mælist 12,3 prósent.
Skuldir heimilanna nema ríflega fimmtán hundrað
milljörðum króna. Ætla má að fjórir fimmtu séu
verðtryggðar skuldbindingar, bæði hjá bönkunum
og íbúðalánasjóði. Samkvæmt því hafa um sautján
milljarðar króna bæst við höfuðstól verðtryggðra
skuldbindinga heimilanna, með aukinni verðbólgu
í mánuðinum.
Samkvæmt áætlun Hagstofunnar eru um 130
þúsund heimili í landinu. Hækkun á vísitölu neyslu-
verðs í mánuðinum hefur því þau áhrif að ríflega
130 þúsund krónur leggjast ofan á höfuðstól verð-
tryggðra lána hvers einasta heimilis í landinu, að
jafnaði.
Gylfi segir að svona hafi þróunin verið undan-
farin ár. Því hafi verðbólgan lagt mjög mikið ofan
á verðtryggðar skuldir. Upphæðirnar skipti tugum
milljarða króna í heildina.
Samkvæmt Hagstofunni rýrnar kaupmáttur al-
mennings að jafnaði nú um stundir. Fram hefur
komið í Markaðnum að stórir hópar hafa jafnframt
orðið fyrir kaupmáttarrýrnun undanfarin ár, þrátt
fyrir að kaupmáttur hafi almennt aukist.
Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar
Glitnis, segir þetta slæmt fyrir heimilin. „Þau
sitja uppi með hærra verðlag, þó svo að það dragi
úr verðbólguhraðanum. Þetta verður þó hugsan-
lega unnið til baka með auknum kaupmætti síðar.“
Ingólfur bætir því við að ekki sé allt neikvætt fyrir
heimilin í þessari þróun. „Heimilin eiga líka miklar
verðtryggðar eignir, til dæmis í lífeyrissjóðunum.“
146
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 28. maí 2008 – 28. tölublað – 4. árgangur
8-9
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
...við
prentum!
Seðlabanki Íslands hefur keypt
gjaldeyri á innlendum gjald-
eyrismarkaði eftir að skil-
yrði sköpuðust til þess haustið
2002. Frá þeim tíma og fram á
þetta ár keypti bankinn rúm-
lega tvo milljarða Bandaríkja-
dala á innlendum millibanka-
markaði með reglulegum kaup-
um, að því er fram kemur í
grein Ingimundar Friðriks-
sonar seðlabankastjóra í Mark-
aðnum í dag.
Ingimundur bendir á að lán-
taka síðla árs 2006 hafi leitt
til tvöföldunar gjaldeyrisforða
bankans. „Fyrr í þessum mán-
uði gerði Seðlabankinn gjald-
miðlaskiptasamninga við þrjá
norræna seðlabanka að fjár-
hæð 1,5 milljarðar evra. Skipta-
samningarnir eru í reynd ígildi
forða. Að þeim meðtöldum er
gjaldeyrisforði Seðlabankans í
dag um 3,5 milljarðar evra, þ.e.
um 400 milljarðar króna,“ segir
Ingimundur en forðinn var sjö
milljarðar króna árið 2001.
- bih
Gjaldeyris-
forðinn
stóraukinn
Verðbólgan kostar
fólk tugi milljarða
Um sautján milljarðar króna bætast við höfuðstól verð-
tryggðra skulda heimilanna, vegna hækkunar á vísitölu
neysluverðs í mánuðinum. Það jafngildir því að ríflega 130
þúsund krónur bætist við skuldir hvers heimilis.
2003 2004 2005 2006 2007 2008
V Í S I T A L A N E Y S L U V E R Ð S 2 0 0 3 - 2 0 0 8
300
250
200
„Ég held að þetta snúist fyrst og
fremst um hvað stærstu hluthaf-
arnir í SPRON sætta sig við að fá
fyrir félagið,“ segir Jafet Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Veigs fjár-
festingar-
félags, um
sameiningar-
viðræður
Kaupþings
og SPRON.
Tilkynnt
var um við-
ræðurnar 30.
apríl, og þá
gefið út að
þær ættu að
taka fjórar
vikur. Fjórðu
vikunni lýkur í dag. Samkvæmt
heimildum Markaðarins er útlit
fyrir að viðræðurnar teygi sig
eitthvað yfir mánaðamótin. Von
sé á tilkynningu frá félögunum
innan tíðar.
Gengi hluta í SPRON var rétt
rúmlega fimm krónur á hlut
þegar tilkynnt var um viðræð-
urnar. Síðan hefur gengið lækkað
um fimmtíu aura. Markaðsvirði
SPRON er ríflega 22,5 milljarðar
króna.
„Ég tel eðlilegt að félögin
taki sér góðan tíma í þessar
viðræður,“ segir Jafet. „En mér
finnst raunar að þau hefðu átt að
gefa sér lengri tíma til þessa í
upphafi en fjórar vikur.“
Stærstu hluthafar í Kaupþingi
eru Exista BV og Egla Invest BV,
auk þess sem Arion safnreikn-
ingur heldur utan um stóran hlut.
Stærsti hluthafinn í SPRON er
sjálfseignarstofnunin SPRON-
sjóðurinn.
„Viðræðurnar eru í fullum
gangi,“ segir Guðmundur Hauks-
son, forstjóri SPRON. Fleira vill
hann ekki segja um málið. - ikh
Viðræður
dragast á
langinn
GUÐMUNDUR
HAUKSSON Forstjóri
SPRON
Samsonarhópurinn
Órjúfanleg vinabönd
Vaxtaákvörðun Seðlabanka
Úr reykfylltum
bakherbergjum
Þorvaldur Lúðvík
Með ólæknandi
flugdellu