Fréttablaðið - 28.05.2008, Qupperneq 16
135 15,5 115dalir eru nýjar hæðir sem olíutunnuverð náði síðasta fimmtudag. Verðið gekk reyndar aðeins til baka samdægurs, en hefur þó haldist vel yfir
130 dölunum.
prósent er óbreytt stýrivaxtastig landsins, en
stjórn Seðlabanka Íslands kynnti stýrivaxta-
ákvörðun sína fyrir helgi. Næstu ákvörðunar
er að vænta í júlíbyrjun.
milljarðar norskra króna, rúmlega
1.600 íslenskir milljarðar, er tap
norska olíusjóðsins á fyrsta fjórðungi
ársins.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
Fregnum af útspilum stjórnvalda
og Seðlabankans til stuðnings
íslensku fjármálakerfi hefur
verið vel tekið á markaði; fyrst
gjaldeyrisskiptasamningum við
þrjá norræna seðlabanka og nú
síðast lagafrumvarpi fjármála-
ráðherra um heimild ríkissjóðs
til að taka allt að 500 milljarða
króna að láni í útlöndum í því
skyni að efla gjaldeyrisforðann.
Yrði slík heimild fullnýtt væri
um stærstu erlendu lántöku
Íslandssögunnar að ræða, hvorki
meira né minna.
Eins og skýrt var frá í þessum
dálki í síðustu viku er einnig
talið að samkomulag sé í höfn
við finnska seðlabankann um
álíka gjaldeyrisskiptasamning
og gerður var við hina frændur
vora, auk þess sem rætt hefur
verið við Seðlabanka Evrópu,
Englandsbanka og Seðlabanka
Bandaríkjanna …
Allt í allt þúsund
milljarðar?
Telja má líklegt að forða
Seðlabankans, með lánalínum,
skiptasamningum og beinu
reiðufé, megi mæla í allt að eitt
þúsund milljörðum þegar útspil
stjórnvalda og Seðlabankans
verða að fullu komin til fram-
kvæmda. Það er umtalsverð
aukning frá forða upp á sjö
milljarða, sem Seðlabankinn réð
yfir árið 2001.
Þúsund milljarðar munu auk
þess vera nálægt þeirri upp-
hæð sem forkólfar viðskipta-
lífsins höfðu tjáð forystumönn-
um ríkisstjórnarinnar að gæti
verið nægilega há fjárhæð til
að efla að nýju trúna á íslenska
fjármálakerfið og stöðu
Seðlabankans sem lánveitanda
til þrautavara …
Hvar Davíð
keypti ölið
Innan stjórnkerfisins er almennt
talið að ekki megi vanmeta þátt
Davíðs Oddssonar, formanns
bankastjórnar Seðlabankans,
í þeim aðgerðum sem kynntar
hafa verið. Hjólin hafi farið að
snúast af alvöru þegar Davíð fór
að beita sér persónulega í við-
ræðum við erlenda kollega sína
og munu sambönd
hans úr heimi
stjórnmálanna
og úr forsætis-
r á ð u n e y t i n u
ekki hafa spillt
fyrir í þeim
efnum …
Stærsta lán
allra tíma
B A N K A H Ó L F I Ð
Hvers vegna PwC?
Þekkingarfyrirtæki í fremstu röð á Íslandi og leiðandi á alþjóðavettvangi.
Endurskoðun Fyrirtækjaráðgjöf Skatta- og lögfræðiráðgjöf
Reykjavík - Akureyri - Húsavík - Selfoss - Reykjanesbær www.pwc.com/is
*connectedthinking