Fréttablaðið - 30.05.2008, Blaðsíða 46
30. MAÍ 2008 FÖSTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● útivera
Hópefli, afþreying og
adrenalínflæði eru eftirsótt
atriði þegar samstarfsfólk
skemmtir sér saman. Liðsheild-
arþrautir með laserbyssum
sameina þetta þrennt eins
og Lárus Halldórsson hjá M16
Hópefli kann að lýsa.
„Við skiptum hópum upp í tvær
hersveitir og leikirnir reyna á
samvinnu og samskipti innan
hvorrar sveitar. Stjórn sveit-
anna er líka grundvallaratriði. Ef
menn eru skipulagðir og vinna vel
saman er sigurinn nánast örugg-
ur, nema hitt liðið sé enn skipu-
lagðara,“ segir Lárus glaðlega og
tekur dæmi um þann lærdóm sem
falist geti í leikjunum. „Stjórn-
andi innan fyrirtækis trúði mér
fyrir því að hann væri í stökustu
vandræðum því á fundum hjá
honum færu allir að tala saman.
Svo var hópurinn hans að berj-
ast á móti annarri stoðdeild innan
fyrirtækisins og við létum hvern
og einn hafa talstöð. Allir fóru að
tala í einu og enginn skildi neitt.
Stjórnandinn hefur getað vitnað í
talstöðvarleikinn á fundum síðan
ef honum finnst masið verða of
mikið.“
Lárus byrjaði með M16 Hóp-
efli árið 2002 og til hans leita
fyrirtæki, skólahópar og íþrótta-
félög svo nokkuð sé nefnt. Hann
segir meira að segja gamla her-
stöðvaandstæðinga hafa tekið
þátt og vera einhverja ánægð-
ustu viðskiptavini sem hann hafi
fengið. Yfirleitt fara þrautirn-
ar fram úti í náttúrunni, helst í
skóglendi. „Fólk byrjar á að fara í
hermannabúninga utan yfir fötin
sín, svo fær það byssur og hjálma
og litur hjálmanna segir til um
hverjir eru saman í liði. Miðað
er á hjálma andstæðinganna og
geislarnir eru algerlega skaðlaus-
ir. Það er hægt að skjóta hvern og
einn tíu sinnum og eftir það dett-
ur hann úr leik.“ En skyldi fólk
ekkert eiga erfitt með að miða
hvað á annað? „Nei og það kemur
okkur skemmtilega á óvart hvað
stelpur á öllum aldri skemmta
sér vel. Þær virðast ekkert hrifn-
ar fyrst af að taka sér byssu í
hönd en þegar þær eru byrjaðar
fara þær í heilmikið stuð og gefa
strákunum ekkert eftir.“
Lárus tekur fram að hann sé
ekki hlynntur stríðsrekstri en
auðvelt sé að nota leikinn á já-
kvæðan hátt ef skilaboðin eru rétt.
„Margir unglingar segja: „Úff, ég
vildi ekki vera í þessu í alvöru,“
þannig að þeir átta sig fyllilega á
að það er ekki hættulaust að vera
hermaður og vita að hvert skref
getur verið manns síðasta.“ Hann
kveðst einnig bjóða upp á aðrar
þrautir þar sem byssum er sleppt
og sumir blandi þessu öllu saman.
„Klassískt mynstur er að fólk
byrji á að koma til okkar og taka
aðeins á því, fari svo í sund og
heita potta og fái sér svo einhvers
staðar að borða,“ segir hann og
kveðst hafa verið í samvinnu við
staðarhaldara víðs vegar. - gun
Öðruvísi útivera í góðum hóp
Lárus segir hvern og einn spila leikina á
sínum hraða.
Mikilvægt er að skipulagning, undirbún-
ingur og stjórn takist vel.
Ýmsum brögðum þarf að beita í leikjunum. MYNDIR/M16
Á morgun mun Ferðafélag
Íslands í samvinnu við Trex-
hópferðamiðstöðina fara í
dagsferð í eina mestu nátt-
úruperlu Íslands, Þórsmörk.
Lagt verður af stað klukkan
átta um morguninn frá Ferða-
félagshúsinu í Mörkinni 6.
Ekið verður í Þórsmörk
sem þegar er farin að skarta
sumarskrúða, en þangað
verður komið undir hádeg-
ið. Deginum verður eytt í
gönguferð frá Langadal á vit
þjóðsagna og ævintýra, en
áætluð heimkoma er klukk-
an átta um kvöldið. Þátttak-
endur hafa með sér nesti og
eitthvað á grillið, en kynt
verður undir kolunum í lok
göngunnar.
Bókanir eru hjá Ferðafé-
lagi Íslands í síma 568 2533.
- mmr
Sumri fagnað
í Þórsmörk
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
kr
is
to
11
@
si
m
ne
t.i
s