Fréttablaðið - 02.06.2008, Blaðsíða 21
fasteignir
2. JÚNÍ 2008
Fasteignasalan Ás hefur til sölu tæplega tvö
hundruð fermetra einbýlishús á einni hæð.
Fullbúinn bílskúr fylgir eigninni. Eignarlóðin
er 1.100 fermetrar og á henni er stór og mikill
garður með pöllum, heitum potti, gosbrunni og
fjölbreyttum gróðri.
F orstofan er flísalögð með skápum. Gestabað-herbergið er nýuppgert, flísalagt í hólf og gólf og með nýjum blöndunartækjum. Gluggi er á
baðherberginu. Forstofuherbergi er með plastpark-
eti. Þvottahús er flísalagt, með innréttingu og útgengi
út á verönd.
Holið er flísalagt. Stofan, borðstofan og holið eru
samliggjandi. Flísar eru á gólfi og á milli skápa í eld-
húsi. Borðkrókur er í eldhúsi og innréttingin hvít.
Barnaherbergið er rúmgott og flísalagt, var áður tvö
herbergi. Hjónaherbergið er einnig flísalagt. Inn af
því er fataherbergi með innréttingu og glugga.
Baðherbergið er nýuppgert, flísalagt í hólf og gólf
með gólfhita, nuddbaðkari og sturtu. Gluggi er á bað-
herberginu.
Sólstofan er nýleg með flísum og gólfhita. Út af
henni er gengið í gegnum tvöfalda hurð út á stóran
pall með heitum potti. Umhverfis húsið eru pallar í
garðinum, ásamt verönd með stórum rennifleka sem
opnar veröndina út í garðinn.
Húsið hefur fengið gott viðhald og mikla endur-
nýjun. Þak, hitalangir og gler hefur verið endurnýj-
að. Sólstofa og baðherbergi hafa verið tekin í gegn.
Innfelld lýsing er í þakkanti.
Pottur og gosbrunnur
Norðurtún 5 er einbýlishús á einni hæð.
Símar 551 7270, 551 7282 og 893 3985
Til sölu eitt hagstæðasta
farþegaskip landsins
Skipið tekur 90 farþega auk áhafnar. Skipið hent-
ar mjög vel í hvers kyns ferðamannaþjónustu, í
hvalaskoðun, sjóstangaveiði og m.fl. Fjármögn-
unarmöguleikar til staðar.
Nánari upplýsingar og
myndir á hibyliogskip.is,
á skrifstofu og í símum 892 6113 & 893 3985
Þuríður Halldórsdóttir hdl., lögg. fasteigna- og skipasali
www.hibyliogskip.is - hibyliogskip@hibyliogskip.is
Fr
um
Gengið frá greiðslumati
Sótt um íbúðalán
Sótt um lengingu og
styttingu á lánstíma
Á ils.is getur þú:
Bráðabirgðamat
Ýmsar reiknivélar
Netsamtal við ráðgjafa
Umsókn um rafrænar
afborganir lána
Önnur þjónusta á ils.is: