Fréttablaðið - 02.06.2008, Blaðsíða 32
2. JÚNÍ 2008 MÁNUDAGUR12 ● fréttablaðið ● híbýli - baðherbergi
Fólk eyðir miklum tíma inni
á baðherbergjum og fæst
þar við ýmislegt. Andrés Þór
Björnsson innanhússarkitekt
gaf Fréttablaðinu ráðleggingar
um lýsingu.
„Baðherbergislýsing er mjög
mikilvæg þar sem þetta er staður-
inn þar sem þú byrjar daginn og
endar,“ segir Andrés Þór. Hann
segir að gera þurfi ráð fyrir mis-
munandi lýsingu fyrir mismun-
andi athafnir inni á baðherberginu
og staðsetja ljósin rétt. Til dæmis
sé ekki gott að staðsetja ljós yfir
spegli sem vísar niður.
„það framkallar leiðinlega
skugga á andlitið og erfiðara verð-
ur að athafna sig. Best er að nota
ljós sem samsett er úr mörgum
perum og staðsetja þau beggja
megin við spegilinn eða í augn-
hæð. Til dæmis eins og ljós sem
notuð eru í búningsherbergjum
leikara,“ segir Andrés.
Í loftið er best að velja ljós sem
skapi óbeina lýsingu sem dreif-
ist vel um herbergið og gott sé
að setja dimmer á loftljósið til að
eiga möguleika á notalegri birtu.
Andrés mælir einnig með möttum
perum frekar en glærum því þær
geti skapað óþægilegan glampa.
„Gott er að hafa til dæmis
60 watta glóperur eða 50 watta
halógenperur í loftljósum, inn-
felldir kastarar geta svo verið með
20 watta halógenperum. Lamp-
ar beggja vegna spegilsins með
50 watta halógenperum gefa mjög
góða spegillýsingu. Svo þurfa öll
ljós sem notuð eru að vera vottuð
til notkunar í baðherbergjum.“
Andrés segir sniðugt að gera
einnig ráð fyrir næturlýsingu sem
væri þá staðsett niðri við gólf og
jafnvel innfelld í veggi svo að rat-
fært sé um baðherbergið á nótt-
unni.
Í eldri húsum er sjaldan gert ráð
fyrir fleirum en einum rofa svo ef
gera á upp baðherbergið er ráð að
fá rafvirkja til að bæta rafmagnið.
Í nýbyggingum eru innanhússarki-
tektar oftar en ekki fengnir til að
hanna lýsinguna frá A til Ö.
Það er alltaf að færast í aukana
að fólk leiti sér aðstoðar hjá sér-
fræðingum,“ segir Andrés. „Síð-
ustu ár hefur tíðin verið mjög góð
og mikið byggt af nýbyggingum
og einbýlishúsum. Ég rek mína
eigin stofu, AE design, en starfa
einnig með THG arkitektum og
fæst við ýmis verkefni. Það sem
ég er stoltastur af er veitingastað-
urinn Silfur á Borginni en eins eru
gömlu húsin sem fólk er að rífa og
endurgera líka spennandi verk-
efni.“ - rat
Lýsing á baðherberginu
Andrés Þór Björnsson innanhússarkitekt segir mikilvægt að gera ráð fyrir mismun-
andi lýsingu fyrir mismunandi athafnir í baðherberginu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gaman er að hafa möguleika á mismunandi lýsingu eftir þeirri stemmingu sem sóst
er eftir. MYND/GETTY IMAGES