Fréttablaðið - 04.06.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Lögreglan hefur legið undir nokkru ámæli að undanförnu.
Fólk hefur ítrekað tuðað undan
harðræði nokkurra lögregluþjóna.
Lögreglan hefur svo ávallt brugðist
við slíkum fregnum með því að
ræða um aukið álag innan lög regl-
unnar, glæponar séu harðsvíraðri,
hingað streymi stórhættulegir
erlendir glæpa hópar og ég veit
ekki hvað og hvað. Við þessari
þróun verði að bregðast með raf-
byssum og vald beitingarhundum.
Ekki dettur mér í hug að vefengja
orð lögreglumanna.
VÖRUBÍLSTJÓRAMÓTMÆLIN
verðskulduðu til að mynda án efa
þær aðgerðir sem lögreglumenn
gripu til að mínum dómi. Löggan
sem öskraði gas gas þótti mér
standa sig með mikilli prýði; aug-
ljóst að drengurinn sá hefur verið
til fyrirmyndar í lögreglu skólanum
og kom mér því ekki á óvart að sjá
að þessi sami ungi maður hefur
verið heiðraður fyrir frækilegt
björgunarafrek.
10-11 niðursveiflan veldur mér
ögn meiri vandkvæðum. Líklega
hafa viðbrögð lögreglumannsins
ekki verið þau allra ákjósanlegustu
og því vil ég síður verja þau. Hins
vegar lýsi ég yfir skilningi með
öllum þeim sem hafa misst stjórn
á sér gagnvart unglingum á bíl-
prófsaldri sem geta ekki komið í
verslun án þess að lögregla sé
kölluð til.
TILVERU Ríkislögreglustjóraemb-
ættisins hef ég svo varið með því
að vísa til þess að alþjóðlegir glæpa-
hringir virðast vera að bíta sig í
íslenska þjóðarsál samkvæmt emb-
ættismönnunum sem þar starfa.
Ekki efast ég um mikilvægi þess að
sporna við þeirri þróun þótt mér
finnist ég heyra fremur lítið af
afköstum þessa risaembættis. Þótt
Ríkislögreglustjóri hafi heilt
almannatengslafyrirtæki á sínum
snærum – Kynningu og markað – er
ljóst að lögregluna sárvantar
almennilegan ímyndarsérfræðing.
Mann sem hringir í fjölmiðla í
hvert sinn sem laglegur lögreglu-
þjónn leiðbeinir barni í umferð,
bjargar kisu úr voða eða vinnur
aðrar dáðir.
Í GÆR varð mér ljóst að það er
við ramman reip að draga. Sjálf
hef ég keypt sparperur, hjólað í
vinnuna og flokkað rusl til að
bjarga ísbjörnum frá drukknun í
hlýnandi heimi. Loksins þegar
einu aumingjans bjarndýri tekst
að svamla á land mætir lögreglan
á svæðið og lætur skjóta það!
Almennilegur ímyndar sérfræð-
ingur hefði vitaskuld bent þeim á
að nota kolefnisjafnaða rafbyssu.
En hey, ísbjörninn drukknaði að
minnsta kosti ekki.
Bangsabanar
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
20
58
0
6/
08
Toyota – sumarið sýnir sig um helgina
Sumarið sýnir sig hjá Toyota og því verður sérstaklega bjart yfir
bílunum á Sumarsýningu Toyota á Nýbýlavegi um helgina.
Sumarsýning á Akureyri og Egilsstöðum á laugardaginn.
Gjafabréf fyrir tvo með Icelandair til Evrópu fylgir hverjum
seldum bíl.
Opið laugardag kl. 12.00 – 16.00
sunnudag kl. 13.00 – 16.00
Komdu, skoðaðu og reynsluaktu spennandi sumarsmellum.
Það verður grill og gaman á Sumarsýningunni.
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 2 - 8
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
TOYOTA
SUMARSÝNING
...ég sá það á visir.is
Segir grafhýsi Kleópötru fundið
Myndir berast frá Mars
Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett
Býst við minni verðbólgu
MEST LESIÐ:
Í dag er miðvikudagur 4. júní,
157. dagur ársins.
3.15 13.26 23.39
2.21 13.11 0.04