Fréttablaðið - 08.06.2008, Blaðsíða 30
ATVINNA
8. júní 2008 SUNNUDAGUR146
S n æ f e l l s b æ r
Okkur vantar garðyrkjufræðing til tímabundinna starfa
hjá Snæfellsbæ. Viðkomandi þarf að geta hafi ð störf
sem fyrst og stendur ráðningartíminn fram í október.
Um er að ræða 100% starf.
Í starfi nu felst umsjón með öllum garðyrkjustörfum á
vegum bæjarfélagsins ásamt frágangi eftir sumarið.
Reynsla og menntun á sviði garðyrkju er æskileg.
Nánari upplýsingar fást hjá Tæknideild Snæfellsbæjar
í síma 433-6900.
Skrifl egum umsóknum ber að skila til skrifstofu
Snæfellsbæjar fyrir 20. júní n.k. Umsóknareyðublöð
má fi nna á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is undir
“Stjórnskipan” og “Eyðublöð”
Snæfellsbær er ungt sveitarfélag sem vefur sig utan um Snæfellsjökul: Staðarsveit,
Búðir, Breiðuvík, Arnarstapi, Hellnar, Hellissandur, Rif, Ólafsvík og Fróðárhreppur.
Í góðu veðri erum við einungis í tveggja tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík - og
veðrið er að sjálfsögðu alltaf gott undir Jökli!
Hér býr gott fólk sem er alltaf tilbúið til að bjóða nýja Snæfellsbæinga velkomna.
Í Snæfellsbæ er sérstaklega fallegt umhverfi þar sem Snæfellsjökul ber hæst, enda
býður bæjarfélagið upp á alla fl óru landsins þegar kemur að landslagi, fugla- og
dýralífi .
Útivist og íþróttir er hægt að stunda hvenær sem er ársins, skíði og snjóbretti,
gönguferðir, golf, hestamennsku, sund og margt fl eira. Nýtt og glæsilegt íþrót-
tahús er í Ólafsvík.
Öfl ugt tónlistarlíf er í sveitarfélaginu og félagastarfsemi með miklum blóma.
G a r ð y r k j u f r æ ð i n g u r
óskast til starfa
Öryggissvið Neytendastofu óskar eftir að ráða metnaðarfullan rafmagnsiðnfræðing til starfa. Um er að ræða faglegt kref-
jandi starf þar sem reynir á tæknilega ráðgjöf um reglur er varða rafmagnsöryggismál, framkvæmd eftirlits með rafverk-
tökum og neysluveitum og fræðslu og kynningu um rafmagnsöryggi. Um er að ræða margvísleg áhugaverð verkefni er
varða rafmagnsöryggi og rafmagnseftirlit.
Umsjón með eftirfarandi starfsþáttum:
• Tæknileg ráðgjöf og fræðsla um reglur er varða öryggisstjórnun rafverktaka og öryggi neysluveitna og túlkun
og framkvæmd reglna er gilda um rafmagnsöryggismál.
• Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd lögbundins eftirlits með rafverktökum og öryggi neysluveitna.
• Þátttaka í mótun og viðhaldi á gæðastjórnunar- og öryggiskerfum í samræmi við reglur á rafmagnsöryggissviði og
aðrar almennar kröfur í starfsumhverfi nu.
• Þátttaka í rannsóknum bruna og tjóna af völdum rafmagns og úrvinnslu gagna.
• Þátttaka í samstarfi í þróun laga og reglna sem gilda um öryggi neysluveitna, öryggisstjórnun rafverktaka o.fl .
Menntunar- og hæfniskröfur
• Rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssvið)
• Sveinsbréf í rafvirkjun og reynsla af rafvirkjunarstörfum
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta og færni í einu Norðurlandamáli æskileg.
• Skipulags- og samskiptahæfni
• Frumkvæði
Vakin er athygi á því að samkvæmt frumvarpi til laga um mannvirki sem lagt hefur verið fram á Alþingi er gert ráð fyrir því
að rafmagnsöryggismál fl ytjist frá Neytendastofu til nýrrar Byggingarstofununar á árinu, ásamt þeim starfsmönnum sem
þeim sinna.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Vakin er athygli á 20. gr. laga nr. 96/2000, um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Umsóknir óskast sendar Neytendastofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, merkt “starf á
rafmagnsöryggissviði”eða rafrænt á póstfang stofnunarinnar, postur@neytendastofa.is, eigi síðar en 24. maí 2008. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfi ð veitir Jóhann Ólafsson, sviðsstjóri öryggissviðs, í
síma 510 1100. Netfang: johann@neytendastofa.is.
Öryggissvið Neytendastofu hefur m.a. yfi rumsjón með
rafmagnsöryggismálum á Íslandi, markaðseftirliti raffanga og skoðunum á raforkuvirkjum, neysluveitum og öryggisstjór-
nunarkerfum rafveitna og rafverktaka. Sviðið löggildir rafverktaka, annast skráningu og rannsóknir á slysum og tjónum af
völdum rafmagns og gefur út kynningar- og fræðsluefni um rafmagnsöryggismál.
Borgartúni 21 • 105 Reykjavík • Sími 510 1100 • Bréfasími 510 1101
postur@neytendastofa.is • www.neytendastofa.is
RAFMAGNSIÐNFRÆÐINGUR