Fréttablaðið - 08.06.2008, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 08.06.2008, Blaðsíða 38
ATVINNA 8. júní 2008 SUNNUDAGUR2214 Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og hefur vilja til að leiða skólastarf, þar sem áhersla er lögð á vellíðan og árangur nemenda og teymisvinnu starfsmanna. Starfsemin einkennist af fjölbreytni, sveigjan- leika og víðsýni þar sem tekið er tillit til mismunandi þarfa, áhuga og getu nemenda. Naustaskóli er nýr grunnskóli í Naustahverfi á Akureyri. Skólinn verður byggður í tveimur áföngum og verður sá fyrri tilbúinn haustið 2009 þegar skólinn tekur til starfa. Gert er ráð fyrir því að í skólanum geti verið allt að 500 nemendur þegar hann er fullbyggður árið 2012. Að undirbúningsvinnu við hönnun Naustaskóla kom stór hópur fólks með mismunandi bakgrunn. Byggingin samanstendur af nokkrum sjálfstæðum einingum eða klösum með sveigjanlegu kennslurými þar sem gert er ráð fyrir að samkennsla árganga sé möguleg og æskileg. Skólinn á að vera miðstöð fyrir alla íbúa hverfi sins og mikil áhersla lögð á samstarf við leikskóla og vinnu með umhverfi ð og náttúruna. Áhersla á samstarf við foreldra og þátttöku þeirra er mikil og er gert ráð fyrir sérstakri aðstöðu fyrir þá í skólanum. Nánari upplýsingar og teikningar af byggingunni má fi nna á vefslóðinni: http://skoladeild.akureyri.is/naus- taskoli.htm Starfssvið: Skólastjóri ber fag- og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórnar honum og hefur forgöngu um mótun faglegrar stefnu. Menntunarkröfur: • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla. • Framhaldsmenntun í stjórnun menntastofnana. • Menntun á sviði reksturs er æskileg. Hæfniskröfur: • Frumkvæði og samstarfsvilji. • Góðir skipulagshæfi leikar. • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi . • Áhugi og reynsla til að leiða þróunarstarf. • Reynsla af kennslu í grunnskóla. • Reynsla af störfum á sviði stjórnunar og reksturs er æskileg. Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, stjórnunar reynslu og hver þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi skólastjóra. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsæk- janda um starfi ð og hvernig hann sér starfsemina í Naustaskóla þróast undir sinni stjórn. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst nk. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Gíslason, fræðslustjóri, í síma 460 1456 og 892 1453. Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í starfi ð. Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga. Upplýsingar um kaup og kjör veitir Starfsmannaþjónusta Akureyrarbæjar í síma 460-1060. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins. Umsóknarfrestur er framlengdur til 16. júní 2008 Skólastjóri Naustaskóla Nýr skóli – nýir tímar - ögrandi og einstakt verkefni Skóladeild, Glerárgötu 26, Akureyri Lögfræðingur á stjórnsýslusviði Matvælastofnun óskar eftir að ráða lögfræðing á stjórnsýslu- svið stofnunarinnar. Um er að ræða fullt starf á aðalskrifstofu Matvælastofnunar sem staðsett er á Selfossi. Helstu verkefni: • Úrlausn lögfræðilegra viðfangsefna stofnunarinnar, s.s. afgreiðsla stjórnsýsluerinda, umsagna og álitsgerða • Ráðgjöf um lögfræðileg atriði á sviði stjórnsýsluréttar og annarra réttarsviða sem tengjast starfsemi stofnunarinnar • Framkvæmd og innleiðing löggjafar vegna EES-samningsins • Vinna við framkvæmd og innleiðingu löggjafar á sviði stofnunarinnar • Þátttaka í nefndum og samskipti við innlendar og erlendar stofnanir • Leyfi sveitingar Menntunar- og hæfniskröfur: • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði • Þekking á EES-samningnum og framkvæmd hans æskileg • Þekking og starfsreynsla í opinberri stjórnsýslu æskileg • Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í starfi • Góð tölvu- og tungumálakunnátta Nánari upplýsingar um starfi ð veita Viktor S. Pálsson (viktor. palsson@mast.is) og Hafsteinn Jóh. Hannesson (hafsteinn. hannesson@mast.is) og í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “lögfræðingur” eða með tölvupósti á mast@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2008. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Matvælastofnun tók til starfa 1. janúar 2008 og tók þá yfi r verkefni Landbúnaðarstofnunar, matvælasviðs Umhverfi sstofnunar og matvælaeft- irlitssviðs Fiskistofu. Matvælastofnun sinnir stjórnsýslu, eftirliti og þjónustu við íslenskan landbúnað og sjávarútveg, fyrirtæki og neytendur. Hlutverk stofnunarinnar er að stuðla að öryggi matvæla og neytendavernd, standa vörð um heilbrigði dýra og plantna, stuðla að aukinni velferð dýra, hafa eftirlit með áburði, fóðri, sáðvöru og veiði í ám og vötnum, sinna stjórnsýslu vegna kjötmats, almenns búfjáreftirlits og búvara. Starfsmenn eru um 75 talsins. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vefsíðu stofnunarinnar, www.mast.is. Óskum eftir vönum meiraprófsbílstjóra á vörubíl með krana Uppl í síma 6935455 6935459
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.