Fréttablaðið - 08.06.2008, Blaðsíða 73
SUNNUDAGUR 8. júní 2008 17
blaðamanni að daginn eftir „giggið“ í Cavern, þar
m hópurinn gisti, hefðu komið til hans hjón frá
mynd lýsir stærð þessa mesta rokkara Íslands en
raman Adelphi til að fara í mikla skoðunarferð á
purinn við á Penny Lane og hinir einu sönnu
þessa einhverja frægustu götu heims sem Paul
inlega hamförum í funheitum Cavern-klúbbnum
n var á heimavelli sem og þeir Erlingur Björnsson
ögufrægt giggið í Cavern en missti ekki úr bít 44
Ð ER ÞAÐ FYRSTA SEM MENN GERA Á LEIFS-
Ð? Alþingismaðurinn Grétar Mar Jónsson lét
ekki vanta í ferðina miklu. Mætti fyrstur allra á
sstöð. Funheitur eftir að hafa gert allt brjálað á
ngi. Grétar var að sögn ekki síður að fara til að sjá
ma, sína menn, í Cavern en Paul á Anfield.
„Liverpool er og hefur alltaf verið miðpunktur alheimsins í mínum augum,“ sagði Allan Willi-
ams, fyrsti umboðsmaður Bítlanna, þegar blaðamaður tók hann tali á Hard Day‘s Night-hótel-
inu í miðborg Liverpool. Íslenski hópurinn snæddi saman kvöldverð á hótelinu og var Williams
sérstakur heiðursgestur kvöldsins.
Williams hélt stutta tölu að kvöldverði loknum. Sagði hann sögur af samstarfi sínu við
Bítlana á sokkabandsárum sveitarinnar og gerði að gamni sínu við mikinn fögnuð gesta. Hann
gantaðist meðal annars með gremju sína út í Paul McCartney, sem hann sagði ekki enn hafa
greitt sér fimmtán punda skuld frá því í fyrndinni þrátt fyrir að vera orðinn margfaldur millj-
ónamæringur.
Williams sagðist afar stoltur af heimaborg sinni, sem hann hefur búið í alla ævi. „Það var
mikið happ fyrir borgina að vera valin menningarborg Evrópu í ár. Bæði vænkast efnahagurinn
og svo er löngu kominn tími til að Liverpool sé sett á þann stall sem hún á skilið.“ Williams
sagðist oft fá boð um að vera viðstaddur Bítlasamkomur af ýmsu tagi, en hann þægi slík boð
afar sjaldan. „Þegar ég frétti að þetta væri hópur frá Íslandi þá varð ég forvitinn og ímyndunar-
aflið fór af stað. Ég veit lítið sem ekkert um Ísland, nema að þar ku vera déskoti kalt,“ sagði
Williams. Hann kvaðst vera meira en til í sækja Ísland heim einhvern daginn, ef honum yrði
boðið. - kg
➜ LIVERPOOL ER MIÐPUNKTUR ALHEIMSINS
HEIÐURSGESTUR Allan Williams, í miðið, nýtur veiganna á Hard
Day‘s Night-hótelinu ásamt dóttur sinni, Óttari Felix Haukssyni
og Jakobi Frímanni Magnússyni.