Fréttablaðið - 09.06.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
fasteignir 9. JÚNÍ 2008
Fasteignasalan Remax Torg hefur til sölu stórt
einbýlishús hannað af Halldóri Gíslasyni. Með
eigninni fylgir sérhannaður garður og verönd
með heitum potti.
U m er að ræða stórt einbýlishús með góðu útsýni í Garðabæ. Góður garður fylgir hús-inu, hannaður af Pétri Jónssyni, með fallegri lýsingu og fjölbreyttum gróðri. Á verönd er h ipottur.
salerni er nýuppgert með sérsmíðaðri innréttingu
og nýjum blöndunartækjum. Í holi er fallega steypt-
ur veggur sem skilur að stofuna og holið.
Eldhúsinnréttingin er sérsmíðuð með graníti á
borðum og rúmgóðum eldhúskrók. Útgengt er út
í garð úr eldhúsinu. Inn af eldhúsi er rúmgott búr
með innréttingu og góðri vinnuaðstöðu. Gengið er
inn í borðstofu frá eldhúsi. Stofan er rúm óð
mikilli lofthæð i f
Garðurinn sérhannaður
Húsið er sérstakt að lögun og með stóra glugga.
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Í rólegri götu í Árbænum finnst Guðrúnu Péturs-
dóttur best að sitja í sólstól úti í garði á sumrin.
„Á sumrin er uppáhaldsstaðurinn minn í húsinu ekki
einu sinni í húsinu heldur á stéttin i f
er að segja á ól
garði af því að Ólafur maðurinn minn er svo dugleg-
ur í garðinum. Þá er hann nálægt og við getum
að spjalla saman hvortfi
Alltaf logn á pallinum
Á pallinum hennar Guðrúnar er alltaf logn og þar er notalegt að setjast niður til að lesa blöðin.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Eldhús frá ýmsum tímum eru meðal þess sem hægt er að skoða á sumarsýningu Minjasafns-ins á Akureyri. Sýningin kallast Hvað er í matinn og er helguð íslenskri matarhefð.
Vefsíðan www.ehow.com lumar á góðum húsráðum. Þangað er tilvalið að kíkja vilji maður vita hvernig á að losna við bletti, byggja bílskúr og allt þar á milli.
Handverksfólk sem hyggst taka þátt í sýningunni Handverk og hönnun í ráðhúsinu dagana 31. október til 3. nóvember getur nú sótt um. Tekið er við umsóknum til 30. júní.
63.316
UPPLÝSINGAR O
is
ing MjóddStaðsetning í Mjóddwww.ovs.is
upplýsingar og innritun í síma 588 1414
Vinnuvélanámskeið
Næsta námskeið hefst 13. júní n.k.
híbýli - svefnherbergi
MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 2008
Listhúsinu LaugardalReykjavík
Sími: 581 2233
Dalsbraut 1
Akureyri
Sími 461 1150
Eftir að ég fékk mér IQ-CARE hef ég ekki fundið til í bakinu!
Sölvi Fannar ViðarssonFramkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar
Ég mæli hiklaust með
6 mán.
vaxtalausar raðgr.
Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
9. júní 2008 — 155. tölublað — 8. árgangur
Glefsur af því sem gerðist
Sverrir Ólafsson
ritaði sögu IBM
eftir 43 ára starf.
TÍMAMÓT 16
HÍBÝLI - SVEFNHERBERGI
Fleiri fá sér
fataherbergi
Sérblað um svefnherbergi
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
SJÁVARÚTVEGUR Stjórnvöld hafna
kröfu mannréttindanefndar Sam-
einuðu þjóðanna um að greiða
tveimur íslenskum sjómönnum
bætur. Vísað er í gagnstæðan
úrskurð Hæstaréttar og því eigi
kröfur um skaðabætur ekki stoð í
landsrétti. Þá er því hafnað að
íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu
verði umbylt í einu vetfangi, en
breytingar á því boðaðar. Svar til
nefndarinnar fór í póst um helgina.
Nefndin hafði úrskurðað að
íslenskum stjórnvöldum bæri að
endurskoða fiskveiðistjórnunar-
kerfið og greiða tveimur sjómönn-
um bætur fyrir að njóta ekki jafn-
ræðis við kvótaúthlutun. Nefndin
er alþjóðleg stofnun og Ísland
hefur skuldbundið sig til að hlíta
úrskurðum hennar.
Einar K. Guðfinnsson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra,
segir að hann sé þess fullviss að
nefndin fallist á útskýringar
íslenskra stjórnvalda. „Það er ekki
hægt að búast við því að á sex mán-
uðum komum við fram með full-
mótaðar hugmyndir um breytingar
á fiskveiðistjórnunarkerfi sem
hefur verið við lýði í um aldar-
fjórðung,“ segir Einar.
Hann segir að í svarinu hafi
verið vísað í stjórnarsáttmála þar
sem segir að gerð verði sérstök
athugun á reynslunni af aflamarks-
kerfinu og áhrifum þess á þróun
byggða. Sú athugun fari í gang á
næstu vikum og verði lokið á kjör-
tímabilinu.
„Ég vil hafa áhrif á það hvernig
fiskveiðistjórnunarkerfið mun líta
út til framtíðar og tel mikilvægt að
á því verði ekki kollsteypa, heldur
verði því leyft að þróast. Ég mun
því beita mér fyrir því að þeirri
vinnu verði lokið á kjörtímabil-
inu.“
Einar segir ítarlega lögfræðilega
greinargerð hafa fylgt svarinu og
sé það til marks um hve alvarlega
íslensk stjórnvöld hafi tekið málið.
„Ég átti náið samráð við forystu-
menn stjórnarflokkanna og við þrjú
vorum sammála um það álit sem ég
sendi mannréttindanefndinni,“
segir Einar. - kóp
Íslensk stjórnvöld
hafna skaðabótum
Sjávarútvegsráðherra hafnaði kröfu mannréttindanefndar SÞ um skaðabætur
til tveggja sjómanna. Endurskoðun á kvótakerfinu boðuð á kjörtímabilinu.
FLÓTTAMENN Flóttafólki fjölgaði
umtalsvert á heimsvísu í fyrra og
var það viðsnúningur á þróun síð-
ustu fimm ára þar á undan. Íraks-
stríðið er helsti orsakavaldurinn
og nú eru rúmlega 14 milljónir
flóttamanna á vergangi víða um
heim.
Þeir sem flæmdir hafa verið af
heimaslóðum, en teljast ekki
flóttamenn, voru 24,5 milljónir í
fyrra. Frá því að Bandaríkjamenn
og Bretar, með stuðningi ýmissa
þjóða, þar með talið Íslendinga,
réðust inn í Írak hefur ein og hálf
milljón Íraka leitað hælis í öðrum
löndum. Flestir eru þeir í
nágrannalöndunum, Sýrlandi og
Jórdaníu.
Flestir flóttamenn dvelja í Pak-
istan, rúmlega ein milljón, tæp
milljón er í Íran og um 800 þúsund
í Bandaríkjunum. Hvert Norður-
landanna tekur á móti svokölluð-
um kvótaflóttamönnum, en það
eru þeir sem verða að flýja til
þriðja lands. Svíar taka við flest-
um, 1.800 á ári, Norðmenn taka við
um 1.000 flóttamönnum, Finnar
750 og Danir 500. Íslensk stjórn-
völd hafa sett sér þá stefnu að taka
við 25 til 30 flóttamönnum árlega.
- kóp/sjá síðu 10
Flóttamönnum í heiminum fjölgaði í fyrra í fyrsta skipti í fimm ár:
Flóttafólki fjölgaði eftir Íraksstríðið
GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR
Finnst best að vera
í sólstólnum á sumrin
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
FASTEIGNIR
Garðurinn
sérhannaður
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Helgi gerir
hestaplötu
Helgi Björnsson
syngur gömul
hesta lög og hesta-
vísur á nýrri
sólóplötu sinni.
FÓLK 22
101 Ísland
Páll Ásgeir Ásgeirsson velur 101
áhugaverðan áfangastað á Íslandi í
nýrri leiðsögubók.
FÓLK 20
Öruggt hjá
Þjóðverjum
Þjóðverjar unnu
öruggan sigur á
Evrópumótinu
í fótbolta í gær.
ÍÞRÓTTIR 24
NORÐAUSTLÆG ÁTT um allt
land, bjartviðri sunnantil en skýjað
og súldarloft fyrir norðan. Hiti á bil-
inu 12-15 stig sunnantil, en 8-12 stig
fyrir norðan, búast má við síðdegis-
skúrum inn til landsins suðvestantil.
VEÐUR 4
12
14
8
99
FÓTBOLTI Óhætt er að segja að
kappið hafi ekki verið með forsjá
á Íslandsmótinu í knattspyrnu í
gær. Sex rauð spjöld fóru á loft í
leikjunum fimm og að auki fengu
þjálfari og framkvæmdastjóri
Grindavíkur rautt spjald að leik
loknum.
Stefán Þór Þórðarson ÍA var
einn þeirra sem fékk að líta rauða
spjaldið. Þetta var fyrsti leikur
hans eftir eins leiks bann sem
hann fékk vegna rauðs spjalds.
Guðjón Þórðarson gat ekki stýrt
ÍA-liðinu í gær þar sem hann var í
leikbanni. - kóp/sjá síður 25 - 27
Átök á Íslandsmóti í fótbolta:
Átta rauð spjöld
Í ÁRBÆJARSAFNINU Handverksdagur Heimilisiðnaðarfélagsins var í gær. Af því tilefni voru opnaðar sýningar á faldbúningum og
íslenskri tóvinnu í Árbæjarsafninu í gær. Þær Birta Gunnarsdóttir og Freyja Björgvinsdóttir voru þjóðlega klæddar í safninu og
virtust kunna vel við sig í búningunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNMÁL Árni Páll Árnason,
þingmaður Samfylkingar, undrast
ummæli Sigurðar Kára Kristjáns-
sonar, þingmanns Sjálfstæðis-
flokks, sem telur óeðlilegt að
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra skuli hafa tjáð
sig um niðurstöðu Hæstaréttar í
Baugsmálinu með yfirlýsingu.
Þetta kemur fram í grein Árna
Páls í Fréttablaðinu í dag. Segir
hann þau rök Sigurðar Kára að
utanríkisráðherra eigi ekki að tjá
sig um einstakt dómsmál vera
fráleit. „Þetta er auðvitað fráleit
staðhæfing og sýnir mikinn á
misskilning á hlutverki stjórn-
málamanna,“ segir Árni Páll.
Hann veltir því fyrir sér hvað
Sigurður Kári óttist í máli
Ingibjargar Sólrúnar. „Er það sú
setning að stjórnvöld eigi að
draga lærdóm af þessari
útkomu?“ spyr hann. - jse
Árni Páll Árnason:
Undrast orð
Sigurðar Kára
ÓSÁTTUR Heimir Guðjónsson þjálfari FH
var ósáttur við rauða spjaldið sem Davíð
Þór Viðarsson fékk og lét Þórodd Hjalta-
lín dómara heyra það. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VEÐRIÐ Í DAG