Fréttablaðið - 09.06.2008, Blaðsíða 8
9. júní 2008 MÁNUDAGUR
Jepparnir frá Mitsubishi hafa staðist erfiðasta prófið
og sigrað í Dakar kappakstrinum ár eftir ár. Komdu
og prófaðu þann sem hentar þér: örugga pallbílinn
L200, skemmtilega sportjeppann Outlander eða
konung jeppanna, Mitsubishi Pajero. Við bjóðum
hagstæða fjármögnun í erlendri mynt og eigum bíla
til afgreiðslu strax.
Finndu rétta kraftinn!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
3.490.000 kr.
VERÐ ÁÐUR 3.860.000 kr.
AFBORGUN 35.500 kr. Á MÁn.*
L200 Intense Dcab Sjálfsk.
4.090.000 kr.
VERÐ ÁÐUR 4.340.000 kr.
AFBORGUN 45.900 kr. Á MÁn.*
OUTLANder Intense 5 manna Sjálfsk.
5.350.000 kr.
VERÐ ÁÐUR 5.970.000 kr.
AFBORGUN 59.900 kr. Á MÁn.*
PAJERO 3.2 InVITE Sjálfsk.
370.000 kr. lækkun! 250.000 kr. lækkun!620.000 kr. lækkun!
*Miðað við 30% útborgun og gengistryggðan bílasamning til 84 mánaða.
Árleg hlutfallstala kostnaðar er frá 9,21% til 9,36% miðað við hvaða gerð af bíl er valin.
NÚ KOSTAR MINNA AÐ VERA Í VINNINGSLIÐINU
BETRA
VERÐ!
SJÁVARÚTVEGUR „Við trillukarlarnir
getum ekki staðið í samkeppni við
um 4300 sportveiðimenn sem
stunda hér veiðar ólöglega. Að
óbreyttu munum við bara binda bát-
inn og hætta þessu,“ segir Þorkell
Pétursson sem gerir út á trillu frá
Arnarstapa.
„Þessi sjóstangveiði setur líf á
annað hundrað fjölskyldna í land-
inu í rúst,“ bætir Jón Gestur Svein-
björnsson, kollegi hans, við.
Þeir segja að frá komu sport-
veiðimanna, sem verða að leigja
kvóta til að stunda veiðar yfir sum-
arið, hafi leiguverðið hækkað svo
að það sé komið upp fyrir meðal-
verð á markaði. Við þessar aðstæð-
ur segja þeir ekki rekstrargrund-
völl fyrir því að róa.
„Þar að auki verðum við að kosta
miklu til við að halda réttindum
okkar,“ segir Jón Gestur. „Við verð-
um að endurnýja vél- og skipstjórn-
arréttindi reglulega, fara í endur-
menntun í Björgunarskólanum og
vera ávallt með pottþétt læknisvott-
orð upp á vasann og þetta kostar
menn fjármuni og tíma. En sport-
veiðimenn eru réttindalausir og fá
einnig að fiska á sjómannadag sem
okkur er ekki heimilt. Við erum
orðnir annars flokks.“
Hann segir að þeir hafi sent Sigl-
ingamálastofnun erindi þar sem
þeir óska þess að þetta mál verði
tekið fyrir. Berist þeim ekki svar
innan 15 daga þá munu þeir senda
málið til umboðsmanns Alþingis.
- jse
Verð á leigukvóta hækkar vegna sjóstangveiði:
Segja sportveiði
rústa trilluútgerð
ÞORKELL PÉTURSSON Leiguverð á kvóta er orðið svo hátt síðan sjóstangveiðimenn
fóru að leigja hann í stórum stíl og segist Þorkell að óbreyttu binda bát sinn. En fyrst
segist hann ætla ásamt kollegum sínum að reyna að rétta hlut sinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN