Fréttablaðið - 09.06.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn 9. júní,
162. dagur ársins.
3.05 13.27 23.50
2.02 13.12 0.25
Nú er í mörg horn að líta hjá yfirvöldum. Meðal annars
þarf að setja upp „viðbragðsáætl-
un“ við innrás hungraðra hvíta-
bjarna, heimskautarefa, rostunga
og jafnvel vaxtahækkana og verð-
bólgu í landið.
„VIÐBRAGÐSÁÆTLANIR“ fel-
ast í því hvernig „viðbragð“ sé
best að taka þegar eitthvað gerist
sem ekki á að gerast. Sumar „við-
bragðsáætlanir“ hafa gefið
afbragðsgóða raun. Til dæmis
þegar glæpasamsteypur eins og
„Hells Angels“ taka upp á því að
senda fulltrúa sína til Íslands til
að innvígja nýja fáráðlinga í sel-
skapinn. Þá fer löggan til Kefla-
víkur og snýr hinum óvelkomnu
gestum aftur heim til sín í sollinn.
ÞETTA sýnir að til eru skynsam-
legar „viðbragðsáætlanir“ og slík-
um áætlunum mætti fjölga til
muna. Til dæmis mundi ekki kosta
mikið að setja upp „siðferðis-við-
bragðsáætlun“ fyrir stjórnvöld.
Sem tæki af öll tvímæli um þau
„verkferli“ sem færu af stað í
hvert sinn sem einhver ráðherra
eða stjórnin í heild ofbýður sið-
ferðiskennd þjóðarinnar. „Siðferð-
is-viðbragðsáætlun“ gæti til
dæmis fært sér í nyt venjur
nágranna þjóða um að sá ráðherra
taki pokann sinn sem ofbýður sið-
ferðisvitund almennings, til
dæmis með siðlausum embætta-
veitingum, blautlegum her-
mennskudraumum í friðsömu
landi eða hamslausri fíkn og mis-
notkun á opinberu afli og fjármun-
um.
ÞAR sem engin „siðferðis-við-
bragðsáætlun“ er til í landinu virð-
ast ráðherrar ekki enn þá hafa
áttað sig á að taka þurfi tillit til
þess að siðferðisvitund sé til meðal
þjóðarinnar. Það er skiljanlegt í
þeirri fjarlægð sem fjölmiðlum
hefur tekist að koma á milli þeirra
sem eiga og eiga ekki í þessu kalda
landi. Þegar stjórnmálamenn hafa
sett upp „siðferðis-viðbragðsáætl-
un“ fyrir sjálfa sig er kominn
grundvöllur fyrir því að takast á
við siðleysingja sem hafa svo gott
sem eyðilagt samkennd og sam-
stöðu þjóðarinnar og leyst upp það
félagslega lím sem heldur þjóðinni
saman. Svo sem hina lífshættulegu
berserki í bönkum og stórfyrir-
tækjum sem háma í sig milljónir
og milljónatugi og milljónahund-
ruð af einskærri græðgi í stað þess
að gera sér að góðu hugguleg laun
og mannsæmandi líf.
Nauðsynlegar
„viðbragðs-
áætlanir“