Fréttablaðið - 13.06.2008, Blaðsíða 56
heima
gleði og glysgjörn húsráð
Donald Trump
á arinhillunni
É
g hef oft heyrt um fólk sem þorir hrein-
lega ekki út úr húsi beri þrettánda dag
mánaðarins upp á föstudag vegna ótta um
að eitthvað hræðilegt gæti komið fyrir
það. Sjálf er ég ekki sérlega hjátrúarfull þótt ég
hafi tekið mínar andlegu syrpur á unglingsár-
um. Það var þó aðallega út frá ástarpælingum
enda hélt maður í þá daga að hægt væri að sál-
greina menn út frá stjörnumerkjabókum. Gall-
inn var hins vegar sá að gæjarnir voru yfirleitt
búnir að finna sér aðrar kærustur á meðan ég
sat sveitt við að reikna út persónuleika þeirra
samkvæmt leiðbeiningum sem voru aftast í bókinni.
Ég verð þó að játa að á dögunum velti ég því fyrir mér hvort örlaði
kannski á pínulítilli hjátrú hjá sjálfri mér þegar
ég rakst á myndina af Donald Trump þegar ég var
að taka til í skúffum heimilisins. Sagan af mynd-
inni af auðkýfingnum byrjaði fyrir tæpum tveim-
ur árum þegar húsbóndinn á heimilinu ákvað að
kanna hversu vel húsmóðirin þekkti sitt eigið
heimili. Húsbóndinn hafði tekið eftir því að á
arinhillunni var auður rammi og í einhverju flippi
klippti hann út mynd af Donald Trump og setti í auða myndarammann. Það
er kannski ekki hægt að undrast það en ég var búin að vera heima í um það
bil átta mínútur þegar ég tók eftir glæpnum. Í stað þess að fleygja mynd-
inni úr rammanum ákvað ég að hafa Trump á arinhillunni því ég var stað-
ráðin í því að vera hans væri ávísun á velmegun. Þegar vinir og vanda-
menn komu í heimsókn helltust yfir okkur spurningar um þennan dular-
fulla mann á arinhillunni, einhverjir könnuðust við kauða á meðan aðrir
spurðu hver þessi frændi minn væri aftur því hann væri svo kunnuglegur.
Eftir jólin þegar ég var að tína saman jólaskrautið ákvað ég að hressa
aðeins upp á „dekkóið“ og fjarlægði herra Trump úr rammanum og setti
brúðkaupsmyndina af okkur hjónum í staðinn. Ekki veit ég hvort Trump er
jafn áhrifamikill og haldið er fram en mér finnst merkilegt að um leið og
hann hvarf af arinhillunni heima hjá mér þá fór allt á aðra hliðina í þjóðfé-
laginu. Krónan féll, vextir hækkuðu, húsnæðismarkaðurinn hrundi og olíu-
verð náði sögulegu hámarki. Þegar ég hnaut um myndina af Trump vini
mínum í vikunni sá ég að myndin yrði að komast aftur á arinhilluna hið
snarasta, ekki þó vegna þess að hann væri svo ofurfagur og mikið stofu-
stáss. Heldur vegna peningaheilsu þjóðarinnar og fyrir alla
þá sem elska kampavín, kraftmikla bíla, kavíar og enda-
laust góðæri. Það sakar að minnsta kosti ekki að prófa.
Þ
að er kannski skiljanlegt
að fólk endurnýi ekki bað-
herbergið sitt á hverju
ári því það er líklega ekki
hægt að upplifa meira rask en
þegar öllu er breytt á baðinu. Í
dag kveður við nýjan tón í ný-
hönnuðum baðherbergjum. Hin
óbaðherbergislegu baðherbergi
eru að taka við af hefðbundnum
þar sem allt átti að vera flísalagt
í hólf og gólf, með skápasam-
stæðu í kringum vaskinn. Það
þýðir þó alls ekki að hafa bað-
herbergið svo arfasmart að ekki
sé pláss fyrir praktíska hluti. Í
dag ber töluvert á því að baðher-
bergi séu eingöngu flísalögð að
hluta til, aðallega í kringum bað
kar og sturtu og svo er svokölluð
sundlaugarmálning (fæst í Slipp-
félaginu) notuð á aðra veggi.
Þegar kemur að fúgum á milli
flísanna er stranglega bannað
að hafa þær áberandi, flísarnar
eiga helst að mynda eina heild og
þar fyrir utan er ekkert gaman
að þrífa skítugar fúgur. Stór-
ir speglar eru áberandi og lýs-
ingin á að vera flauelsmjúk svo
við tökum okkur vel út þegar við
fækkum fötum á þessum heil-
aga stað. Innfelldir skápar hafa
tekið við af skápasamstæðum og
mikið er lagt upp úr því að bað-
herbergin séu þrifaleg og hrein.
martamaria@365.is
Hvernig viltu hafa baðherbergið þitt?
Ný baðáhrif
Korkurinn er kominn aftur. Svona vilja Ítalarnir hafa baðherbergin, svolítið retró og
kósý. MYND/MARTA MARÍA
Hver er ekki búinn að fá leiða á hefð-
bundnum handklæðaofni sem er oftar
en ekki eins og illkynja æxli inni á bað-
herberginu. Hér er frábær lausn á
handklæðaofnum. MYND/MARTA MARÍA
Hér sést vel hvernig hægt er að leika
sér með lýsingu. MYND/MARTA MARÍA
Prófaðu að setja stofulampa inn á bað
og sjáðu hvernig það kemur út. Takið
eftir speglinum, hann hangir niður úr
loftinu og er festur með vír.
Frístandandi vaskar eru mikið í tísku núna. Þessi er frá Alessi.
Er svart klósett ekki
hámark smartheitanna?
Marta María Jónasdóttir
martamaria@365.is
Onion snið
fataefni
Dalvegi 18, Kóp. Sími 568 8500 www.föndra.is
opið 10-18 virka daga, lokað laugardaga í sumar.
KRÓKÓDÍLAFLÍSAR Hvernig væri að hugsa
út fyrir rammann og flísaleggja einn vegg í stofunni eða
allt baðherbergið með krókódílamynstursflísum? Þess-
ar eru nýlentar í Álfaborg og sanna það að dýramynst-
ur eiga svo sannarlega heima inni á heimilum. Svalara
getur það varla orðið.
Eitt af best geymdu leyndarmálunum í Epal er Bestlite lampinn.
Hann er fágaður og einfaldur en samt svo ógurlega smart og fer
vel inn á hvert heimili. Hann er til í ýmsum myndum, sem stand-
lampi, borðlampi, loftljós og svo eru til nokkrar tegundir af veggl-
ömpum. Það er til dæmis mjög fallegt að hafa mörg Bestlite ljós
yfir borðstofuborðinu til að fá öðruvísi fíling nú eða að festa
lampann upp á vegg.
BESTLITE INN Á HVERT HEIMILI
12 • FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2008