Fréttablaðið - 15.06.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
15. júní 2008 — 161. tölublað — 8. árgangur
M
EN
N
IN
G
LANDSMÓT
HELLA 2008
30. júní - 6. júlí
www.landsmot.is
15 dagar
12 13
15
12
12
VÆTA VESTAN TIL Í dag verður
víðast sunnan 3-8 en snýst í norð-
austanátt á Vestfjörðum og hvessir
þar í kvöld. Bjart allra austast í
fyrstu en þykknar upp. Lítilsháttar
skúrir á vesturhluta landsins. Milt.
VEÐUR 4
KAFFIBARSFLUGUR
Ljósmyndabókin
Barflies er komin út
en þar gefur að líta
mörg af þeim andlit-
um sem sóttu hinn
goðsagnakennda
Kaffibar árið 1994.
HELGIN 18
[ SÉRBLAÐ F
RÉTTABLAÐS
INS UM MEN
NINGU OG L
ISTIR ]menning
júní 2008
NORRÆN SAM
TÍMALIST
Í BRENNIDEPL
I
Carnegie
Art Awa
rd
ÖTBORG ■
BIRNA BJAR
NADÓTTIR
■ SIGUR RÓ
S
T ■ BENNI
HEMM HEM
MVEÐRIÐ Í DAG
How do you like Iceland?
Þrír dagar á Íslandi kosta túrista rúm-
lega þrjú hundruð þúsund krónur.
16
Besti ísinn er í
Vesturbænum
Þrír álitsgjafar fóru á milli
ísbúða í leit að besta ísnum.
30
LÖGREGLUMÁL Borgaryfirvöld
munu taka ákvörðun um það í
næstu viku hvort lögregla fái að
setja upp færanlega lögreglustöð á
Lækjartorgi í sumar. Stefán Eiríks-
son lögreglustjóri segir markmið-
ið að auka aðgengi að lögreglu í
miðborginni.
„Við höfum óskað eftir því að fá
að koma upp aðstöðu á torginu til
að auka og efla sýnileika okkar í
miðborginni,“ segir Stefán. „Við
erum að leita allra leiða til að efla
öryggið í miðborginni, og þetta er
liður í því.“
Hugmyndin gengur út á að setja
niður lítið hús, fimmtán til tuttugu
fermetra. Þar myndu lögreglu-
menn fá afdrep til að afgreiða
minniháttar mál.
Stefnt er að því að lögreglustöðin
verði á torginu í sumar. Hún verður
í notkun alla daga, og á nóttunni
um helgar þegar álagið á lögreglu
í miðborginni er mikið.
Stefán segir borgaryfirvöld hafa
tekið vel í hugmyndina, en þau séu
að skoða útfærsluna.
Jakob Frímann Magnússon,
framkvæmdastjóri miðborgar-
mála hjá Reykjavíkurborg, segir
að ákvörðun um lögreglustöð á
Lækjartorgi verði tekin í vikunni.
Geir Jón Þórisson yfirlögreglu-
þjónn segir borgina áhugasama
um að koma að því að útvega færan-
lega lögreglustöð. Engu að síður
megi reikna með því að kostnaður
lögreglu við leigu á henni verði
einhver hundruð þúsunda króna.
Lögregla og borgaryfirvöld
ræða nú einnig möguleikann á því
að aðrir en lögregluþjónar taki að
sér afmörkuð verkefni sem lög-
regluþjónar hafa hingað til sinnt.
„Við erum að kanna hvort og þá
hvernig er hægt að létta á því sem
er að taka mikinn tíma frá lög-
reglu, án þess að ganga beint inn á
hennar svið,“ segir Jakob Frí-
mann.
Hann segir rætt um að ráða til
starfa svokallaða „miðborgar-
þjóna“ að erlendri fyrirmynd.
Geir Jón leggur áherslu á að lög-
regluþjónar losni við að keyra
drukkið fólk úr miðborginni. Til
þess þurfi ekki lögreglumenn, og
slíkt muni létta undir með þeim.
Þá sé rætt um að dyravörðum
skemmtistaða verði fjölgað, og
þeir sinni næsta nágrenni veit-
ingastaðanna. - bj
Færanleg lögreglu-
stöð á Lækjartorgi
Borgaryfirvöld munu í næstu viku taka ákvörðun um hvort lögregla fái leyfi
til að setja upp færanlega lögreglustöð á Lækjartorgi. Einnig er til umræðu að
„miðborgarþjónar“ að erlendri fyrirmynd létti undir með lögreglu um helgar.
MENNTUN Háskóli Íslands stefnir
að því að fjögur til sex fræðisvið
eða stofnanir verði á næstu fimm
árum meðal þeirra fremstu á
heimsvísu. Stefnt er að því að eitt
þeirra verði meðal þeirra tíu bestu
í heiminum á sínu sviði.
Þetta kemur fram í viðtali
Fréttablaðsins við Kristínu Ing-
ólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands,
í dag.
Háskólinn setti fram markmið
fyrir tveimur árum sem miða að
því að koma skólanum á lista meðal
100 bestu háskóla heims innan
fimmtán ára. „Við sjáum að okkur
miðar vel áfram, jafnvel hraðar en
búast mátti við á ýmsum sviðum,
svo við erum tilbúin með ný og
jafnvel enn djarfari markmið,“
segir Kristín.
„Þetta verður vissulega dýrt, ég
geri mér grein fyrir því, en við
erum byrjuð að undirbúa þetta og
ætlum meðal annars að sækja í
erlenda styrktarsjóði, til erlendra
fyrirtækja og til íslensks atvinnu-
lífs. Þótt kostnaðurinn verði
drjúgur mun það hafa margfeldis-
áhrif þegar kemur að
ávöxtunum.“
Hún segir enn fremur að nánari
útfærsla á þessu liggi fyrir í árs-
lok.
Formleg afstaða HÍ til fjár-
mögnunar opinberra háskóla
verður mótuð á háskólafundi
snemma í haust. Þá mun meðal
annars liggja fyrir afstaða skólans
til upptöku skólagjalda. Kristín
segist hafa átt von á því að HÍ yrði
veitt heimild til að taka upp skóla-
gjöld í frumvarpi um opinbera
háskóla sem afgreitt var fyrir
skemmstu. „Þannig hefði boltinn
verið gefinn yfir til okkar og við
látin ákveða hvort við nýttum
okkur þá heimild og þá hvernig,“
segir hún.
Þegar hún er spurð um afstöðu
sína segir hún að þar sem málið sé
afar umdeilt væri skynsamlegast
að jafna samkeppnisstöðuna með
öðrum hætti. - jse / sjá síðu 14
Rektor segir vel miða að því takmarki að Háskóli Íslands verði meðal hundrað bestu:
Eitt svið verði meðal tíu bestu
PRJÓNAFÓLK ALLRA LANDA SAMEINIST Í gær var hinn alþjóðlegi „Prjónum úti“-dagur. Íslenskt prjónafólk hittist á þremur stöðum,
meðal annars í Hallargarðinum, þar sem það drakk kaffi, spjallaði og naut veðurblíðunnar. Prjónaklúbbur Nálarinnar stóð fyrir
viðburðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
BANDARÍKIN, AP Bandarískur
karlmaður varð nýlega fyrir því
óláni að fá nagla í hnakkann.
Vinur mannsins var að nota
naglabyssu sem skaut nagla úr
sér. Vinurinn sá svo naglann koma
út úr derhúfu Chandlers, sem
hafði ekki fundið fyrir naglanum.
Læknir á bráðamótttöku reyndi
að fjarlægja naglann, sem var
rúmir sex sentímetrar á lengd,
með töng. Það gekk hins vegar
ekki og fékk læknirinn því
lánaðan klaufhamar og fjarlægði
naglann. Chandler var svo sendur
heim með nokkur spor í hnakkan-
um. - þeb
Hitti naglann á höfuðið:
Nagli fjarlægð-
ur úr hnakka
FÓLK „Það gekk ágætlega, fyrir
utan það að eitt hólf á slöngunni á
öðrum bátnum sprakk þegar við
vorum rétt fyrir utan Viðey. Við
vitum ekki hvað gerðist, líklega
rákust þeir á eitthvað,“ segir
Alma Eðvaldsdóttir.
Hún er í níu manna hópi frá
Vestmannaeyjum sem ætlar að
sigla í kringum landið á tveimur
slöngubátum. Ætlunin er að vekja
athygli á og styrkja Kraft,
stuðningsfélag ungs fólks sem
greinst hefur með krabbamein.
Hópurinn sigldi frá Vestmanna-
eyjum til Reykjavíkur í gær. Gert
verður við bátinn sem skemmdist
í dag, áður en ferðinni verður
haldið áfram. - bj
Sigling frá Eyjum gekk vel:
Tuðran sprakk
nærri Viðey
AF STAÐ Hópurinn lagði af stað frá Vest-
mannaeyjum í gær. MYND/GÍSLI ÓSKARSSON