Fréttablaðið - 17.06.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 17.06.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 ...ég sá það á visir.is Segir grafhýsi Kleópötru fundið Myndir berast frá Mars Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett Býst við minni verðbólgu MEST LESIÐ: Rostahjöðnun er óhjákvæmi-legur fylgifiskur verðbólgu. Hún lýsir sér þannig að þegar sjóðir tæmast og efnahagskerfi veikist þykir þjóðinni hún síður hafa efni á að vera með rosta. EINKENNI rostahjöðnunar eru meðal annars þau að útrásarhetjur verða að skúrkum og frægðar sögur af íslenskum tónlistarmönnum á erlendri grund missa flugið. Þó ber þess að minnast að Einar Bárðar- son er það oft fjarverandi að hann hefur farið nokkuð á mis við verð- bólgu og þar af leiðandi rosta- hjöðnun. Einnig eiga Disney- umbúðirnar, sem ferðafrömuðir hafa brugðið utan um ímynd Íslands, það til að verða að álpappír. BESTA ráðið við þessum kvilla, sem fer okkur Íslendingum afar illa, er að minnast sögunnar af Gretti Ásmundarsyni og Þorsteini Drómundi hálfbróður hans. Þegar þeir voru að hátta eina kvöldstund í Noregi var rosti mikill í Gretti þar sem Þorsteini þótti mikið til trölls- legra handleggja hans koma. Átti Þorsteinn þá við mikla rostahjöðn- un að etja þegar hann fór úr að ofan. Gretti þótti nefnilega lítið til koma og kvað Þorstein hafa kerl- ingahandleggi hangandi undir öxlum. Þorsteinn sagðist þá óska þess að hendur Grettis væru ögn snauðari af afli en ríkari af gæfu. SÖGULOK urðu á þá leið að Þor- steinn Drómundur brá sér til Miklagarðs, ekki þó við Sunda- höfn. Hafði hann þar uppi á Þor- birni öngli, sem var að monta sig af því að hafa höggvið Gretti í spað. Það var ekki létt verk þó að Grettir hafi verið rúmfastur í lokabardaganum því hann var svo þrjóskur að þegar hann var höggv- inn í hausinn brotnaði saxið. (Ef til vill er þaðan komið enska orðatil- tækið „hard headed“ sem notað er yfir þrjóska menn.) Þorsteinn hjó Þorbjörn öngul í herðar niður með sínum kerlingahöndum og hefndi þannig fyrir víg Grettis. Var það þjóðþrifaverk því ófleygum íbúum í Drangey hafði aldrei fækkað jafnmikið og eftir að Grettir fór í sundur og hefur byggðarþróun aldrei náð sér á strik eftir það. EN Þorsteinn gerði gott betur en það og stakk undan Sigurði bónda og gekk að eiga Spes húsfreyju. VILJI menn flýtimeðferð gegn rostahjöðnun má einfaldlega minnast þess að sitt er hvað gæfa og gjörvileiki. Menn þurfa hvorki tröllahandleggi né digra sjóði til að vera Spes ... innan handar á síð- kvöldum. Ráð við rostahjöðnun BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Í dag er þriðjudagurinn 17. júní, 170. dagur ársins. 2.56 13.29 0.02 1.35 13.13 0.55

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.