Fréttablaðið - 18.06.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
AÐ LEIKSLOKUM Þrátt fyrir góðan vilja yfirvalda og rúm fjárráð einkafyrirtækis til björgunaraðgerða var gesturinn loks skotinn á
færi. Hann tilheyrði stofni sem er í útrýmingarhættu í heiminum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Lára R. Flosadóttir, kennaranemi og fræðslu-
leiðbeinandi í Vinnuskóla Reykjavíkur, hefur
ferðast víða og ætlar að halda áfram að bæta
viðkomustöðum í safnið á komandi árum. „Ég hef ferðast mikið til Svíþjóð þúti og þar bú
myrkri. Á móti okkur tók lítill karl sem kom okkur
fyrir í litlu skápaherbergi. Strax daginn eftir
fluttum við okkur yfir á strandarhótel í borginni
Alanya,“ útskýrir Lára. Til þess að komast til Ak
Gist í litlu skápaherbergi
Lára ber hér sumarhattinn góða sem hún keypti í Tyrklandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKYGGNI ÁGÆTTSkyggni yfir útidyrum geta veitt gott skjól fyrir veðri og jafnvel vindum.
HEIMILI 3
BEINT Í MENNINGUNAIceland Express verður með beint flug til Edinborgar í október.
FERÐIR 4
Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
18. júní 2008 — 164. tölublað — 8. árgangur
Má bjóða þér
léttan kaffisopa?
Hvítlaukssmjör me› steinselju
STYRKTU
ÁTAKIÐ!
Við höfum
opnað fyrir
söfnunar-
númerin
Bein útsending á föstu-
daginn á SkjáEinum
903 1000
903 3000
903 5000
LÁRA R. FLOSADÓTTIR
Öfugt úr hringtorgi í
leigubíl í Tyrklandi
ferðir bílar heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
BEGGI OG PACAS
Brjálað að gera
eftir Hæðina
Skipuleggja ýmiss konar partí
FÓLK 30
Vilja frelsi til að mála
Vegglistamenn eru
óánægðir með að ný
stefna borgarinnar
geri ekki greinarmun
á veggjakroti og
veggjalist.
FÓLK 24
Á vespu til Akureyrar
Jóhann Norðfjörð
komst frá Reykjavík
til Akureyrar fyrir
litlar nítján hundr-
uð krónur á
vespunni sinni.
FÓLK 24
Þolinmæði og þrjóska
Líney Halla Kristinsdóttir útskrifað-
ist með tvær háskólagráður.
TÍMAMÓT 18
KÓLNANDI VEÐUR Í dag verður
norðaustan 3-10 m/s. Hætta á
stöku skúrum norðaustan og aust-
an til en yfirleitt þurrt. Hitinn verður
á bilinu 6-12 stig en 4-6 stig fyrir
norðan og austan.
VEÐUR 4
12
7
4
5
11
VIÐSKIPTI Árleg velta hesta-
mennsku á Íslandi er um fjórtán
milljarðar króna, að mati Haralds
Þórarinssonar, formanns Lands-
sambands hestamanna.
Formaðurinn telur fáa gera sér
grein fyrir raunverulegu umfangi
hestamennskunnar í hagkerfi
landsins.
Útflutningur hesta, einn og sér,
veltir í kringum sex hundruð
milljónum árlega. Síðustu ár hafa
verið seldir út allt að fimmtán-
hundruð hestar á ári.
Hestaverð rokkar frá nokkrum
hundruðum þúsunda og upp í á
annan tug milljóna króna.
Gunnar Arnarson, hrossarækt-
andi og útflytjandi, fullyrðir að í
einstaka tilfelli geti stóðhestar
selst á allt að fimmtíu milljónir
króna.
Margs konar önnur viðskipti í
kringum þessa íþrótt skila einnig
aurum í budduna. Þannig er
áætluð velta landsmóts hesta-
manna á Hellu, sem hefst í lok
mánaðarins, á bilinu 120 til 150
milljónir króna.
- kóþ, bþa, as / sjá Markaðinn
Dæmi eru um að góðir stóðhestar seljist á allt að fimmtíu milljónir króna:
Hestar velta 14 milljörðum
Ítalir áfram
Frakkar og Rúmen-
ar sátu eftir með
sárt ennið í
Dauðariðli
EM.
ÍÞRÓTTIR 27
VEÐRIÐ Í DAG
ORKUMÁL Fyrirtækið, sem bauð
Guðmundi Þóroddssyni, fyrr -
verandi forstjóra REI, að
stjórna minnst 24 milljarða
orkuútrásarfyrirtæki, er
bandaríski fjárfestingar sjóður-
inn Riverstone, samkvæmt
heimildum Markaðarins.
Fulltrúar sjóðsins voru á
landinu nýverið og ræddu
meðal annars við forsætisráð-
herra og skoðuðu Hellisheiðar-
virkjun.
Þá vinna nokkrir stórir
hluthafar í Geysi Green nú að
því að fá Ólaf Jóhann Ólafsson
í frekari fjárfestingar og
samstarf.
- kóþ, bih / Sjá Markaðinn
Orkan freistar enn margra:
Riverstone vill
í orkuútrásina
NÁTTÚRA Ekki tókst að koma deyfi-
lyfjum í hvítabjörninn á Skagatá í
gær. Sérfræðingar komu frá Dan-
mörku með deyfilyf og búr, en
þeir komust aldrei í skotfæri.
Til að koma deyfilyfinu í björn-
inn má færið ekki vera lengra en
um þrjátíu metrar. „Þá vegalengd
hleypur björninn á örfáum sek-
úndum,“ segir Bjarni Pálsson,
deildarstjóri hjá Umhverfis-
stofnun. Farið var að dýrinu á
tveimur bílum, en við það fældist
það og lagði á flótta. Ekki var talið
óhætt að missa dýrið á haf út og
var það því fellt.
Þórunn Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra fylgdist með
aðgerðum á vettvangi. Hún harm-
aði endalok málsins mjög. Gaman
hefði verið að flytja björninn til
heimkynna sinna, en það hefur
aldrei verið gert hér á landi.
Ekki eru allir á eitt sáttir með
björgunartilraunirnar og kallar
Ingólfur Jón Sveinsson bóndi á
Lágmúla þær brjálæði. Þá segir
Steinn Leó Rögnvaldsson, bóndi á
Hrauni, það umhugsunarefni að
átt hafi að þyrma lífi dýrs sem
murki lífið úr öðrum dýrum.
Björninn hafðist við í æðarvarpi
við Hraun.
Ekki er ljóst hver mun greiða
kostnaðinn, sem var umtals-
verður, enda komu um fimmtíu
manns að aðgerðinni. Björgólfur
Thor Björg ólfsson hafði boðist til
að borga kostnað við að koma dýr-
inu til síns heima en Ásgeir Frið-
geirsson, talsmaður hans, segir
löggæslukostnað ekki innifalinn í
því boði.
Þorsteinn Sæmundsson, for-
stöðumaður Náttúrustofu Norður-
lands vestra, segir að björninn
hafi verið máttfarinn og særður
við framfætur. Óvíst sé hvort
dýrið hefði lifað deyfingu og
flutning af.
- kóp, jse, kóþ / sjá síðu 8
Dýrið fellt á flótta
Hvítabjörninn á Skagatá var felldur í gær þegar hann stefndi á haf út. Kostnaðar-
samar björgunaraðgerðir báru ekki árangur. Óljóst hver ber kostnaðinn.