Fréttablaðið - 24.06.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
24. júní 2008 — 170. tölublað — 8. árgangur
ÁRNI VALDIMAR BERNHÖFT
Línuskautar holl útivist
og fjölskylduvænt sport
• heilsa • sumar
Í MIÐJU BLAÐSINS
AUSTURLAND
Margir kostir við að
búa á landsbyggðinni
Sérblað um Austurland
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
LANDSMÓT
HELLA 2008
30. júní - 6. júlí
www.landsmot.is
Komin með kærasta
Heather Mills krækti sér
í blá fátækan kærasta
í fríi á Tenerife á dög-
unum.
FÓLK 22
Prýðir plötuumslag
Meðlimum Atóm-
stöðvar innar þykir Helgi
Hóseasson heillandi og
fengu hann til að prýða
umslag nýjustu plötu
sveitarinnar.
FÓLK 30
JÓN EGILL BERGÞÓRSSON
Gerir ekki glansmynd
um Sálina
Rótarar leysa frá skjóðunni í heimildarmynd
FÓLK 24
Helgiganga á Jónsmessu
Gengið verður um gamlar þjóð-
götur með Sæmundi Kristjánssyni.
TÍMAMÓT 18
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ SUMAR O.FL.
Veðrið hefur leikið við borgarbúa undanfarna daga. Árni Valdimar Bernhöft er einn þeirra sem skauta um borgina á línuskautum.
„Ég er búinn að spila íshokkí í sautján ár og hef keppt frá því skautasvellið var opnað. Svo liggur það bein-ast við þegar ísinn þiðnar að fara á línuskautana,“ segir Árni Valdi eins og hann er jafnan kallaður. Hann vill meina að sportið sé ekki hættulegt, svo lengi sem fólk kunni að skauta Aðstæður til aðsé á lí k
að skauta frá Gljúfrasteini í Mosfellssveit og niður í Nauthólsvík, alls um 25 km leið. Alla leiðina segir Árni hægt að skauta á göngustígum og aðeins þrisvar þurfi að fara yfir umferðargötu. Nú er hann að skipu-leggja hópferð þessa leið til styrktar góðgerðarmál-um.
„Ferðin er ráðgerð í júlí en ekki er komin nákvæm dagsetning ennþá. Hún verður farin í þágu útivistar, fjölskyldu og barna en við erum að undirbúa þetta í samvinnu við barnadeild Hringsin á L d
Gott fyrir rass og læri
Árni Valdi fer borgina þvera og endilanga á línuskautunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ENGIN FEILSPOR
Hópur kvenna hittist alltaf
klukkan níu á morgnana í
Hreyfingu í Glæsibæ og
tekur á í ræktinni.
HEILSA 2
SUMAR Á SVÖLUNUM
Margrét Pétursdóttir leikkona
eyðir löngum stundum á
svölunum heima hjá sér í
Grænuhlíðinni yfir sumar-
tímann.
SUMAR 3
Almennur opnunartími Mán - Föstudagar 09 - 18Laugardaga 11 - 16
www.patti.is
Vísa/Euro/K-lán/Raðgreiðslur
AusturlandÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2008 Alcoa Fjarðaálvekur athygli erlendis fyrir framsækna jafnréttisstefnu
BLS. 2
11 12
13
12
HÆGVIÐRI Í dag verður hægviðri
eða hafgola. Skýjað og sums staðar
lítilsháttar skúrir suðvestan til ann-
ars víða nokkuð bjart veður. Hiti
10-15 stig.
VEÐUR 4
12
SKOÐANAKÖNNUN Þrátt fyrir niður-
sveiflu í efnahagslífinu er meiri-
hluti landsmanna mótfallinn því
að meira verði virkjað fyrir orku-
frekan iðnað, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
43,1 prósent svarenda sem
afstöðu tóku segist styðja frekari
virkjanir, en 56,9 prósent eru því
mótfallin. Skekkjumörk í könnun-
inni eru 3,7 prósentustig og því er
marktækur munur á milli hópa.
Mikill munur er á svörum eftir
kyni, en tæpur meirihluti karla,
52,6 prósent, er fylgjandi frekari
virkjun fyrir orkufrekan iðnað.
Tvær af hverjum þremur konum,
eða 66,7 prósent, eru hins vegar
andvígar frekari virkjunum.
Minni munur er á svörum eftir
búsetu, en 55,6 prósent svarenda
sem búsettir eru á höfuðborgar-
svæðinu styðja ekki frekari
virkjanir hér á landi fyrir orku-
frekan iðnað. 58,9 prósent íbúa á
landsbyggðinni eru einnig mót-
fallin frekari virkjun.
Ef litið er til svara eftir stjórn-
málaskoðunum er andstaðan við
áframhaldandi virkjun mest
meðal kjósenda Vinstri grænna
og Samfylkingar; 87,0 prósent
meðal kjósenda Vinstri grænna
og 68,6 prósent meðal kjósenda
Samfylkingar. Þá segjast 57,6 pró-
sent þeirra sem ekki gefa upp
stjórnmálaskoðun sína vera and-
víg frekari virkjunum fyrir orku-
frekan iðnað.
Meirihluti fylgisfólks annarra
flokka er hins vegar fylgjandi
frekari virkjunum. Minnstur er
munurinn hjá kjósendum Frjáls-
lynda flokksins, en 58,3 prósent
þeirra eru fylgjandi frekari
virkjun, sem og 61,5 prósent kjós-
enda Framsóknarflokks og 63,9
prósent kjósenda Sjálfstæðis-
flokks.
Hringt var í 800 manns á kosn-
ingaaldri laugardaginn 21. júní.
Skiptust svarendur jafnt eftir kyni
og hlutfallslega eftir búsetu. Spurt
var; Styður þú frekari virkjanir á
Íslandi fyrir orkufrekan iðnað?
85,5 prósent svarenda tóku afstöðu
til spurningarinnar. -ss / sjá síðu 6
Meirihluti segir nóg
komið af virkjunum
Tæp 57 prósent svarenda í nýrri könnun Fréttablaðsins segjast ekki styðja
frekari virkjanir á Íslandi fyrir orkufrekan iðnað. Rúm 43 prósent vilja að meira
verði virkjað. Karlar eru frekar fylgjandi áframhaldandi virkjun en konur.
FÓLK Svavar Lúthersson, fram-
kvæmdastjóri Istorrent, er
ósáttur við að nafn hans sé notað í
auglýsingum Bónusvídeós. Þar er
fullyrt að Svavar sæki nú myndir
löglega á bonusvideo.is, enda sé
hann „toppmaður“. Svavar var
ákærður fyrir að halda úti síðunni
torrent.is, þar sem hægt var að
hlaða niður kvikmyndum.
„Ég er ekki búinn að hafa
samband við lögfræðing en
útiloka ekki að ég geri það,“ segir
Svavar, sem vill að auglýsingin sé
tekin úr umferð. Eigandi Bónus-
vídeós segir ekki ætlunina að
rægja Svavar á nokkurn hátt.
- sun / sjá síðu 30
Vill auglýsingar úr umferð:
Svavar ósáttur
við Bónusvídeó
FÓLK Dorrit Moussaieff forsetafrú
færði auðugum vini sínum
nektarmynd af eiginkonu vinarins
eftir ensku listakonuna Natöshu
Archdale í sextugs afmælis gjöf.
Hin 32 ára Archdale sérhæfir sig
í myndum af nöktum kvenlíköm-
um, sem hún býr til úr snifsum úr
dagblaðinu Financial Times.
í frétt Bloomberg segir frá því að
Dorrit hafi átt í erfiðleikum með
að finna rétta gjöf handa vini
sínum, milljarðamæringnum
Stephen Schwarzman, stjórnar-
formanni Blackstone Group LP,
stærsta fjárfestingar félags
heims. Þegar Dorrit hitti lista-
konuna Archdale á hún sam-
stundis að hafa pantað portrett-
mynd af Christine, eiginkonu
Schwarzmans, til að færa honum
að gjöf. Dorrit segist ekki enn
hafa hitt þann einstakling sem
fúlsi við nektarmynd af ástvinum
sínum, ásamt texta um sjálfan
sig. Hún segir verkið hanga uppi
í íbúð hjónanna á Park Avenue í
New York, milli verka eftir
Rembrandt og Picasso.
Samkvæmt frétt Bloomberg
rukkar Archdale allt að tveimur
og hálfri milljón íslenskra króna
fyrir hvert verk. Í viðtalinu sem
vísað er í neitar Dorrit að gefa
upp verðið á verkinu.
- kg
Forstjóri stærsta fjárfestingarfélags heims fær afmælisgjöf frá forsetafrú Íslands:
Dorrit gefur vini nektarmynd
DORRIT
MOUSSAIEFF
Já
Nei
56,9%
STYÐUR ÞÚ FREKARI VIRKJANIR
FYRIR ORKUFREKAN IÐNAÐ?
Skv. könnun Fréttablaðsins 21.06
43,1%
Á ALÞINGI Dr. Saleh Abdullah Bin Himeid, þingforseti Sádi-Arabíu, er hér á landi í þriggja daga opinberri heimsókn. Þingforsetanum
verða sýndar helstu náttúruperlur Suðurlands auk þess sem hann fer á fund við forseta Íslands og iðnaðarráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fjölnir
skellti
toppliðinu
Nýliðarnir úr Grafar-
voginum sóttu þrjú
stig til Keflavíkur í
gær.
ÍÞRÓTTIR 27
VEÐRIÐ Í DAG
VINNUMARKAÐUR Hjúkrunarfræð-
ingar hafa samþykkt með yfir-
gnæfandi meirihluta greiddra
atkvæða að boða yfirvinnubann
frá og með 10. júlí. Tæp 95 prósent
sögðu já. Atkvæðin voru talin í
gær.
Elsa B.
Friðfinnsdóttir,
formaður Félags
íslenskra
hjúkrunarfræð-
inga, FÍH, segir
skilaboðin skýr:
„Niðurstaðan
segir bæði
okkur og
stjórnvöldum að
samstaða hjúkrunarfræðinga er
gríðarlega mikil og menn eru
tilbúnir til aðgerða til að knýja
fram betri samninga en okkur hafa
staðið til boða,“ segir Elsa.
„Þetta segir samninganefnd
félagsins líka; að þótt hún færi að
skrifa undir samninga í takt við
það sem okkur hefur staðið til
boða fram að þessu yrðu þeir
felldir. Fólk vill meira en okkur
hefur verið boðið.“
FÍH á fund með samninganefnd
ríkisins á morgun. - ghs
Hjúkrunarfræðingar:
Yfirvinnubann
boðað í júlí
ELSA B.
FRIÐFINNSDÓTTIR
STEPHEN
SCHWARZMAN