Fréttablaðið - 24.06.2008, Blaðsíða 10
10 24. júní 2008 ÞRIÐJUDAGUR
SIMBABVE, AP Lögregla í Simbabve
réðst í gær inn í höfuðstöðvar
stjórnarandstöðuflokksins MDC í
Harare og rændi þaðan sextíu
manns auk tölva og húsgagna. Leið-
togi stjórnarandstöðunnar, Morgan
Tsvangirai, hefur leitað hælis í
sendiráði Hollands. Hann hefur þó
ekki óskað formlega eftir pólitísku
hæli, að því er talsmaður hollenska
utanríkisráðuneytisins greindi frá.
Tsvangirai dró í fyrradag til
baka forsetaframboð sitt þar sem
ekki væri útlit fyrir sanngjarnar
kosningar næstkomandi föstudag.
Stjórnvöld hafa sagt að kosning-
arnar muni engu að síður fara fram
og hafa kallað Tsvangirai heigul.
Stjórnarandstæðingar segjast
hafa verið beittir ofbeldi af stjórn
Roberts Mugabe í aðdraganda
seinni umferðar forsetakosning-
anna. Samkvæmt opinberum tölum
fékk Tsvangirai fleiri atkvæði en
Mugabe í fyrri umferð kosning-
anna en ekki hreinan meirihluta
svo önnur umferð var nauðsynleg.
Javier Solana, aðaltalsmaður
Evrópusambandsins í utanríkis- og
öryggismálum, segir afturköllun
Tsvangirai á framboði sínu skiljan-
lega í ljósi ofbeldisöldunnar. Kosn-
ingarnar séu orðnar „afskræming
lýðræðis“. Utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Condoleezza Rice,
hefur sagt ríkisstjórn Simbabve
ólögmæta án sanngjarnra kosninga
og fordæmir ofbeldisölduna í land-
inu. - gh, aa
Lögregla í Simbabve rænir stjórnarandstæðingum og rústar höfuðstöðvum þeirra:
Tsvangirai leitar hælis í sendiráði
ÓTTAST UM LÍF SITT Sendiráð Hollands í
Harare, þangað sem Morgan Tsvangirai
forðaði sér á sunnudag. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Þrítugur Pólverji
sem lögregla telur leika grun á að
látist hafi af óeðlilegum orsökum
var höfuðkúpubrotinn á hnakka
þegar komið var með hann á
sjúkrahús fyrir tæpum tveimur
vikum. Hann var meðvitundarlaus
við komuna á spítalann og komst
aldrei til meðvitundar. Hann lést á
föstudaginn. Engir ytri áverkar
voru á hnakka mannsins, svo talið
er að hann hafi látist við fall aftur
fyrir sig. Rannsókn lögreglu bein-
ist meðal annars að því hvort
manninum hafi verið hrint.
Samlandi mannsins, sem bjó í
sama húsi og hann, sat í gæslu-
varðhaldi þar til í gær. Þá rann
það út. Hann var í héraðsdómi
úrskurðaður í sex vikna farbann.
Sá maður er 28 ára.
Mennirnir tveir höfðu báðir
verið í vinnu hér á landi um skeið.
Þeir höfðu búið á Frakkastíg 8.
Þar eru leigð út allmörg herbergi,
einkum til útlendinga sem eru við
störf hér. Samkvæmt upplýsing-
um Fréttablaðsins fundu nágrann-
ar mannsins hann meðvitundar-
lausan á gangi hússins að kvöldi
mánudagsins 9. júní, báru hann
inn í herbergi hans og hlúðu að
honum. Þegar hann kom ekki til
meðvitundar hringdu þeir í
sjúkrabíl. Það var ekki fyrr en
morguninn eftir.
Áfengi var haft um hönd
kvöldið sem atburðurinn varð og
mun hafa komið til orðaskaks
milli manna, samkvæmt upplýs-
ingum Fréttablaðsins.
Ofbeldisbrotadeild lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu hóf
þegar rannsókn á málinu. Tveir
Pólverjar voru handteknir
skömmu síðar og úrskurðaðir í
gæsluvarðhald, annar í tæpa viku
og hinn til dagsins í gær. Sá fyrr-
nefndi var einnig úrskurðaður í
sex vikna farbann í gær. Þriðji
Pólverjinn, vitni í málinu, sætir
líka sex vikna farbanni.
Lögreglan hefur yfirheyrt hóp
fólks vegna málsins. Hún heldur
rannsókn áfram af fullum krafti,
að sögn Sigurbjörns Víðis Eggerts-
sonar, yfirmanns ofbeldisbrota-
deildar lögreglunnar á höfuð-
borgar svæðinu. jss@frettabladid.is
Skoða hvort manni
sem lést var hrint
Lögregla rannsakar hvort Pólverja sem lést á föstudagskvöld hafi verið hrint.
Maðurinn var höfuðkúpubrotinn við komu á sjúkrahús. Áfengi var haft um
hönd þar sem hann bjó og til orðaskaks kom milli manna. Þrír eru í farbanni.
FRAKKASTÍGUR 8 Maðurinn sem lést bjó á Frakkastíg 8. Hann fannst meðvitundar-
laus á gangi hússins fyrir um tveimur vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið dæmdur til að
greiða tæplega þrjátíu þúsund
króna sekt fyrir að að kaupa og
selja eitt gramm af hassi.
Maðurinn keypti gramm af
kannabisefnum af ókunnum
manni í Reykjavík í september
síðastliðnum, að því er fram
kemur í ákæru. Hann flutti það
síðan til Vestmannaeyja og seldi.
Helmingur efnisins fannst við
húsleit lögreglu í herbergi
ákærða.
Maðurinn hefur tvisvar frá
árinu 2004 hlotið dóm fyrir brot
gegn ávana- og fíkniefnalögum.
- sh
Fíkniefnafundur við húsleit:
Dæmdur fyrir
gramm af hassi
LÖGREGLUMÁL „Samstarfið við mið-
borgarþjóna gekk ljómandi vel,“
segir Geir Jón Þórisson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík.
Miðborgarþjónar hófu störf um
helgina í miðborg Reykjavíkur og
fór allt vel fram enda rólegt í
borginni að sögn Geirs Jóns.
„Veðrið var gott og mun færra
fólk en við hefðum getað búist við
enda stærri ferðahelgi en við
áttum von á,“ segir Geir Jón.
Geir Jón neitar því að lögreglu-
þjónar hafi leitað eftir aðstoð mið-
borgarþjóna. „Miðborgarþjónarn-
ir eiga að vera á ferðinni og geta
haft samband við okkur gegnum
fjarskipti ef þeir sjá eitthvað
alvarlegt.
Aðalmálið er þó bragurinn við
skemmtistaði, að reyna að fá fólk
til að skapa ekki óþarfa hávaða og
núning.“
Ekki kom til þess nema eitt
skipti um helgina að miðborgar-
þjónar kölluðu lögreglu til að sögn
Geirs Jóns. - ht
Fyrsta helgin var róleg hjá miðborgarþjónum:
Kölluðu lögreglu
einu sinni til
MIÐBORGIN Rólegt var á fyrstu vakt
miðborgarþjóna.
ATBURÐARÁSIN
■ Þrítugur Pólverji var höfuð-
kúpubrotinn fyrir tæpum tveim
vikum.
■ Hann fannst meðvitundarlaus að
kvöldi 9. júní.
■ Hringt var á sjúkrabíl morguninn
eftir.
■ Tveir menn voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald.
■ Annar var í varðhaldi í tæpa viku.
Hinn var í varðhaldi þar til í gær.
■ Báðir mennirnir, auk vitnis, sæta
sex vikna farbanni.
BARNAÞRÆLKUN MÓTMÆLT Marg-
menni mótmælti barnaþrælkun fyrir
utan útibú verslanakeðjunnar Primark
á Oxford-stræti í London í gær.
Rannsóknarfréttamenn BBC-sjónvarps-
stöðvarinnar halda því fram að fata-
framleiðendur á vegum keðjunnar noti
börn sem vinnuafl. NORDICPHOTOS/GETTY