Fréttablaðið - 25.06.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Tryggvi Áki Pétursson nemi í viðskiptafræði
hefur ferðast víða um ævina. Tryggvi Áki var
landsliðsmaður í borðtennis og hefur ferðast
tvisvar sinnum til Kína vegna íþróttarinnar.„Ég hef farið tvi
staddir á McDonalds þegar yfirmaðurinn þar heimt-
aði myndatöku og setti myndina af okkur upp á vegg,“
segir hann. Því má segja að Tryggva Áka og félög
hans hafi verið tekið sem tjÞeir ý
Voru mjög vinsælir í Kína
Tryggvi Áki með húfu sem hann keypti í annari ferð sinni til Kína.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FLOTTUR AÐ INNANVolvo C30 hlaut nýverið viðurkenningu fyrir hönnun á innréttingum.
BÍLAR 2
GISTING Á STRÖNDUMÍ Reykjarfirði nyrðri á Ströndum er rekin svefnpokagisting í gömlu íbúðarhúsi og tveimur litlum gestahúsum.
FERÐIR 4
er önnur stærst
a borg Kanada.
Í borginni mæt
ast gamli og ný
i timinn, rík sag
an og
iðandi nýbreytn
in á einstaklega
skemmtilegan
hátt. Það er frá
bært að skoða s
ig
um, versla og n
jóta lífsins í Mo
ntreal; fallegar
byggingar, enda
laust úrval vers
lana
og veitingastað
a og mjög hags
tætt verðlag. Gr
íptu tækifærið o
g smelltu þér ti
l
Montreal og njó
ttu þess besta s
em þessi spenn
andi heimsborg
hefur að bjóða
.
Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
25. júní 2008 — 171. tölublað — 8. árgangur
Blóminn fagur
Einar Már Jónsson fjallar um
hvernig það getur komið Frakk-
landsforseta í bobba að geta ekki
sagt nei við konur.
Í DAG 18
BÖRN
Hressir, skapandi og
fróðleiksfúsir krakkar
Sérblað um börn
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
börnMIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 Klassískar klippingaráberandi í hártísku barna í sumar
BLS. 2
Keramiknámskeiðfyrir unga og upprennandi listamenn
BLS. 4
26
79
/
IG
02
Þú færð Shimano
í næstu
sportvöruverslun
hjól
TRYGGVI ÁKI PÉTURSSON
Til Kína til að æfa og
keppa í borðtennis
• ferðir • bílar • heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
HALLDÓR ÞORGEIRSSON
Fékk hjartaáfall
við garðsláttinn
Gat ekki fylgt Veðramótum á kvikmyndahátíðina í Moskvu
FÓLK 34
Spilar á Hróarskeldu
Andri Freyr Viðarsson er
farinn að æfa sig fyrir
neðanvatnstónleika á
tónlistarhátíðinni.
FÓLK 26
Viðrar vel á Sigur Rós
Haraldur
Ólafsson
spáir
þokkalegu
veðri fyrir Nátt-
úru-tónleikana.
FÓLK 34
EFNAHAGSMÁL „Stjórnvöld hljóta
fyrir sitt leyti að grennslast fyrir
um rætur þessarar veikingar
krónunnar. Á svona grunnum
markaði er ekki fráleitt að
ímynda sér að bankarnir geti haft
töluverð áhrif á gengið ef þeir
kæra sig um,“ segir Ólafur
Ísleifsson, lektor við Háskólann í
Reykjavík.
Ólafur bendir á að gengi krón-
unnar hafi veikst töluvert í lok
fyrstu tveggja ársfjórðunganna
og veltir upp þeirri spurningu
hvort framvegis verði um að
ræða ársfjórðungslegan atburð.
„Þetta minnir mig á stöðuna í
mars,“ segir Grétar Þorsteins-
son, forseti Alþýðusambands
Íslands. Hann segist þó ekkert
hafa í höndunum til að fullyrða
að bankarnir þrýsti genginu
niður nú.
Gengi krónunnar hefur lækkað
um ríflega tíu prósent í mánuðin-
um. Frá áramótum hefur gengið
lækkað um fjörutíu prósent. Það
hrundi í mars og hefur svo tekið
skarpa dýfu niður á við undan-
farið.
„Gjaldeyrisstaða bankanna
skýrist af vörnum þeirra fyrir
gengisbreytingum og áhrifum
þeirra á eigið fé. Bankarnir eru
að verja fjármálalegan stöðug-
leika sem hér þarf að vera.
Gengis lækkun er ekki að hjálpa
hagkerfinu né stórum hluta við-
skiptavina bankanna sem kemur
bönkunum ekki vel,“ segir
Ingólfur Bender, forstöðumaður
Greiningar Glitnis.
„Með því að hafa eigin gjald-
miðil búum við yfir sveigjan-
leika,“ sagði Geir H. Haarde for-
sætisráðherra í ávarpi á málþingi
fjárfesta í Lundúnum í gær.
-bþa/ sjá Markaðinn
Stjórnvöld rannsaki
veikingu krónunnar
Gengi krónunnar hefur lækkað um ríflega tíu prósent í mánuðinum, en um
fjörutíu prósent frá áramótum. Aftur mikil gengislækkun í lok ársfjórðungs.
Kemur bönkunum ekki vel, segir Ingólfur Bender. Lektor við HR vill rannsókn.
GENGI KRÓNUNNAR Krónan veiktist
umtalsvert í lok mars þegar fyrsta
ársfjórðungi lauk. Nú virðist sama uppi á
tengingnum við lok annars ársfjórðungs.
100
120
140
160
180
ÞRÓUN GENGISVÍSITÖLU
1. janúar
1. apríl
24. júní
Gengisvísitala
SÍÐDEGISSKÚRIR Í dag verða
norðlægar áttir, 3-8 m/s. Bjart með
köflum en hætt við síðdegisskúrum,
einkum norðaustan og austan til.
Hiti 10-17 stig, hlýjast til landsins á
landinu sunnan- og vestanverðu.
VEÐUR 4
12 12
12
1413
VEIÐIMENN FRAMTÍÐARINNAR Ungir veiðimenn hópuðust niður á Flensborgarbryggju í gær þar sem dorgveiðimót Hafnarfjarðar
fór fram. Þessar þrjár hressu stelpur höfðu ekki mikla reynslu af veiði fyrir keppnina. Lovísa og Heiða höfðu aldrei áður dregið fisk
úr sjó. Hlökk hafði þó náð sínum jómfrúrfiski í veiðiferð með föður sínum. „Pabbi er ekki góður að veiða,“ sagði Hlökk. Ég veiddi
einn krossfisk en hann veiddi ekki neitt.“ Sjá síðu 14 FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VIÐSKIPTI Eimskipafélagið er nú til
skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu
(FME). Þetta staðfestir Íris Björk
Hreinsdóttir, upplýsingafulltrúi
FME. Málið snýst hugsanlega um
upplýsingaskyldu vegna afskrift-
ar á dótturfélaginu Innovate.
Eimskip er skráð félag og eru
hluthafar þess um tuttugu
þúsund. Stjórn félagsins hafði
vitneskju um erfiðleika dótturfé-
lagsins þegar í febrúar og vissi
fyrir víst í maí að félagið þyrfti að
afskrifa. Þar með fóru níu
milljarðar króna auk tugmilljarða
áætlaðra tekna. Hins vegar
fréttist ekkert af málinu fyrr en í
þessum mánuði. - ikh / sjá Markaðinn
FME ákveður um rannsókn:
Eimskip skoðað
SKIPULAGSMÁL Það mun kosta fjóra
og hálfan milljarð að setja
Sæbraut og Geirsgötu í stokk við
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið
samkvæmt frumkostnaðaráætlun.
Ekki er ljóst hver hlutdeild
Reykjavíkurborgar yrði, en þess
er vænst að kostnaður skiptist á
milli ríkis, borgar og eigenda
lóðanna tveggja við húsið;
Portusar og Landsbankans.
Hugmyndir eru um að tengja
þann stokk við annan stokk við
Mýrargötu sem mun ná að
Ánanaustum. Óljóst er hver kostn-
aður við það yrði.
Málið verður tekið fyrir í
fagráðum borgarinnar á næstu
vikum. - kóp
Stokkur við tónlistarhús:
Kostar fjóra og
hálfan milljarð
STÓRFRAMKVÆMDIR Stokkurinn fer niður
við hringtorgið sunnan Tónlistar- og ráð-
stefnuhússins og kemur upp við Tollhúsið.
HÚSNÆÐI Byggingafélag náms-
manna hefur hækkað húsaleigu á
meirihluta íbúða félagsins um 15
prósent frá næstu mánaðamótum.
Kemur þetta til vegna óvænts
rekstrarvanda sem bregðast þurfi
við að því er fram kemur í bréfi
sem íbúum barst í gær.
„Við erum að styrkja rekstur
félagsins og þetta er einn liður í
því,“ segir Sigurður Páll Harðar-
son, framkvæmdastjóri félagsins
en einnig stendur til að leita leiða
til endurfjármögnunar og lækkun-
ar rekstrarkostnaðar.
Sigurður Páll neitar að tjá sig
um það hvort hækkunin hafi komið
til vegna fjártjóns sem fyrirtækið
hefur orðið fyrir vegna umsvifa
fyrri stjórnarformanns og fram-
kvæmdastjóra félagsins. Þeir
sæta nú rannsókn efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra vegna
gruns um að þeir hafi hagnast
verulega á félaginu eins og fram
hefur komið í Fréttablaðinu.
„Málið er í rannsókn og í eðli-
legum farvegi, við getum ekkert
sagt á þessu stigi málsins,“ segir
Sigurður.
Bygging stúdentagarða á vegum
félagsins við Einholt og Þverholt
liggur enn niðri vegna rannsókn-
arinnar.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafði húsaleigan í íbúðum
félagsins við Háteigsveg þegar
hækkað um 12 prósent um síðustu
mánaðamót. - ht
Byggingafélag námsmanna bregst við rekstrarvanda með því að hækka leiguna:
Hækkar um fimmtán prósent
Vítaspyrna réði
úrslitum
Arnar Gunnlaugsson
tryggði FH sigur á
Val í uppbótar-
tíma.
ÍÞRÓTTIR 30
VEÐRIÐ Í DAG