Fréttablaðið - 25.06.2008, Síða 2
MARKAÐURINN 25. JÚNÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Vika Frá ára mót um
Atorka -0,6% -35,3%
Bakkavör 1,7% -44,8%
Exista -4,4% -57,8%
Glitnir -0,6% -26,2%
Eimskipafélagið -0,5% -58,8%
Icelandair 5,4% -44,1%
Kaupþing 3,4% -10,9%
Landsbankinn -1,7% -34,9%
Marel 1,5% -11,5%
SPRON -5,2% -60,4%
Straumur 0,7% -32,6%
Teymi 0,5% -64,5%
Össur 0,5% -5,1%
*Miðað við lokagengi í Kauphöll á mánudag.
Century Aluminum, móðurfélag
Norðuráls á Grundartanga, hafði
sætaskipti við Glitni á mánudag
og varð þriðja stærsta félagið
sem skráð er í Kauphöllina sé
horft til markaðsverðmætis.
Ekki munar miklu á milli félag-
anna. Markaðsverðmæti Century
Aluminum nam 241,4 milljörð-
um króna í lok dags á mánudag
en Glitnis þrjú hundruð milljón-
um minna. Munurinn minnkaði
frekar í gær og höfðu félögin oft
sætaskipti.
Greiningardeild Kaupþings
bendir á að Century Aluminum
hafi notið góðs af 30 prósenta
verðhækkun áls á heimsmörkuð-
um á árinu. Á mánudag stóð það
í 3.169 dölum á tonnið. Þá á geng-
isveiking krónu gagnvart Banda-
ríkjadal hlut að máli auk þess
sem markaðsverðmæti bankanna
þriggja hefur lækkað töluverð
það sem af er ári. Á sama tíma
hækkaði gengi bréfa í Century
Aluminum um tæp 73 prósent.
Century Aluminum er skráð
á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn í
Bandaríkjunum en var skráð á
First North-hliðarmarkaðinn hér
fyrir rúmu ári. - jab
Á FYRSTA VIÐSKIPTADEGI Björgvin G.
Sigurðsson viðskiptaráðherra, Logan W.
Kruger, forstjóri Century Aluminum, og
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar-
innar, brostu breitt þegar bjöllunni var
hringt fyrir ári. MARKAÐURINN/PJETUR
Century Aluminum
þokast í þriðja sæti
Fasteignafélögin Eikarhald og
Fasteignafélag Íslands hafa verið
sameinuð undir nafninu Eik Prop-
erties. Félagið verður að mestu í
eigu Saxbygg ehf., sem fer með
52 prósenta hlut, og Glitnis banka
sem fer með 46 prósenta hlut í fé-
laginu.
FL Group átti 72 prósent í Eikar-
haldi og 32 prósent í Fasteigna-
félaginu og selur nú allan hlut
sinn í þessum félögum.
Heildareignir í hinu nýja félagi
eru metnar á 54 milljarða króna
eftir því sem næst verður kom-
ist. Helstu eignir Fasteignafé-
lags Íslands voru húsnæði Smára-
lindar og Norðurturninn sem
nú rís við Smáralindina. Helstu
eignir Eikarhalds voru meðal
annars atvinnuhúsnæði í Austur-
stræti og meðal leigjenda þeirra
þar eru Landsbankinn og Kaup-
þing. Húsasmiðjan er einnig einn
stærsti leigjandi félagsins.
Eggert Þór Aðalsteinsson, sér-
fræðingur hjá greiningardeild
Kaupþings, segir sölu FL Group
á þessum eignum hluta af stefnu
félagsins að einbeita sér að
kjarnaeignum sínum hérlendis,
þ.e. Glitni, Tryggingamiðstöðinni
og Landic Property. „Þessir hlut-
ir í Eikarhaldi og Fasteignafé-
lagi Íslands voru greinilega ekki
hluti af framtíðarstefnu félags-
ins. Með þessu dregur FL Group
úr skuldsetningu sem er jákvætt
fyrir félagið,“ segir Eggert.
FL Group hefur frá áramót-
um selt óskráðar eignir fyrir
rúma 50 milljarða króna eftir því
sem næst verður komist. Aðrar
óskráðar eignir sem þeir hafa selt
á árinu er hlutur félagsins í Geysi
Green Energy fyrir 10,5 millj-
arða króna auk þess sem þeir
seldu Landic Property verkefni í
erlendum fasteignasjóðum fyrir
um tuttugu milljarða króna.
„Það hefur legið fyrir í tölu-
verðan tíma eftir að við keypt-
um leiðandi hlut í Landic Prop-
erty að við værum á leiðinni út
úr þessum félögum,“ segir Júlíus
Þorfinnsson, forstöðumaður sam-
skiptasviðs FL Group. Aðspurð-
ur segir hann ekki hafa staðið til
að setja þessi félög inn í Landic
Property.
FL Group selur
fasteignafélög
„Ég viðurkenni að reksturinn hefur ekki verið auð-
veldur upp á síðkastið. Þegar blæs á móti þá gefum
við í,“ segir Knútur G. Hauksson, forstjóri bíla-
umboðsins Heklu. Hann vísar til aðstæðna í efna-
hagslífinu.
Hekla hefur tekið upp á þeirri nýbreytni að ráða
til sín markþjálfann Mikael Söderman til að bæta
fyrirtækið innan frá. Með þjálfuninni er leitast við að
þátttakandi verði meðvitaður um eigin hegðun, láti af
slæmum vana og reyni að laða fram það besta í sam-
starfsfólki sínu.
Stefnt er að því að árangurinn skili sér á nokkr-
um mánuðum.
Hefðbundin þjálfun starfsmanna fer oftast nær
fram utan veggja fyrirtækja. Nýbreytingin nú felst í
því að Söderman verður einn starfsmanna Heklu og
mun hann sinna verki sínu innan veggja þess. „Fyrir-
tæki eru bara fólk sem vill halda áfram og þróast,“
segir Söderman. Neiti fólk að breytast á nokkurn hátt
sé hætta á stöðnun. Það sama eigi við um fyrirtæki.
Markaðurinn hefur fengið tækifæri til að fylgjast
náið með því hvernig verkinu miðar og mun greina
frá því næstu mánuði. - jab
LÍNURNAR LAGÐAR Sverrir Viðar Hauksson, framkvæmda-
stjóri Heklu, Mikael Söderman og Knútur G. Hauksson forstjóri,
skömmu eftir að Söderman tók til starfa. MARKAÐURINN/STEFÁN
Hekla styrkir sig í niðursveiflunni
V E R Ð M Æ T U S T U F É L Ö G I N *
Félag Markaðsverðmæti (í ma kr)
Kaupþing 577,5
Landsbankinn 256,9
Glitnir 240,3
Century Aluminum 239,4
Exista 114,7
Straumur 104,8
Bakkavör 69,0
Tryggingamiðstöðin 51,2
Marel 50,6
Alfesca 41,1
* Á hádegi í gær
Icelandair hyggst grípa til um-
talsverðra sparnaðaraðgerða og
hefur félagið ákveðið að segja
upp 240 manns í 190 stöðugildum;
138 flugfreyjum, 88 flugmönnum
og öðru starfsfólki.
Birkir Hólm Guðnason, fram-
kvæmdastjóri Icelandair, segir að
spara megi mikið fé með því að
létta vélar og fljúga þeim hægar.
„Við spörum um um 2-300 millj-
ónir króna í eldsneytiskostnað á
ári með þessu móti og með því að
í hægja á vélum félagsins,“ segir
hann. Hægt verður á vélunum um
nokkrar mínútur.
Þá hyggst Icelandair létta vélar,
meðal annars með hertari reglum
um yfirvigt og handfarangur. Þá
verður minna eldsneyti um borð
en áður, auk þess sem ráðgert er
að hafa helmingi minna vatn um
borð og fjarlægja handbækur og
gögn sem ekki eru notuð.
Ekki er gert ráð fyrir að starfs-
fólkið verði ráðið aftur en reynt
verður að koma til móts við það,
að sögn Birkis. - jab
BIRKIR HÓLM GUÐNASON
Framkvæmdastjóri Icelandair segir
sparnaðar aðgerðir félagsins tímabundnar.
Icelandair dregur saman seglin
SMÁRALIND Ein af stærstu eignum hins
nýja félags Eikar Properties.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„Málið hefur verið tekið til skoðunar,“ segir Íris
Björk Hreinsdóttir, talsmaður Fjármálaeftirlitsins,
um afskriftir Eimskipafélagsins á breska dóttur-
félaginu Innovate.
Innovate reyndist vond fjárfesting fyrir Eim-
skip og var félagið afskrifað í heilu lagi í mánuðin-
um. Afskriftirnar námu níu milljörðum króna. Eim-
skip hafði einnig gert ráð fyrir tugmilljarða tekjum
af félaginu í ár. Eimskip keypti næstum helmings-
hlut í Innovate í hittiðfyrra og eignaðist það að fullu
í fyrra.
Íris Björk segir ekkert frekar um málið á þessu
stigi. Hún vill hvorki tjá sig um að hverju rannsókn
Fjármálaeftirlitsins beinist né hversu langt hún sé
komin.
Ekki er útilokað að rannsóknin beinist að hugsan-
legum brotum á upplýsingaskyldu, en ekkert verður
fullyrt um það.
Kauphöllin hefur líka rannsakað málefni Eim-
skipafélagsins. „Þetta er í ferli hjá okkur,“ segir
Þórður Friðjónsson forstjóri.
Eimskipafélagið hefur haldið því fram að
rekstrar vandræði Innovate hafi fyrst komið inn á
borð stjórnar í febrúar. Þá hafi hins vegar enginn
gert sér grein fyrir því hversu alvarlegt málið
væri. Forstjóri félagsins hætti raunar störfum þá
í mánuðinum. Það hafi síðan verið í maí sem ljóst
var að staða Innovate væri það alvarleg að afskrifa
þyrfti félagið. Ekkert kom hins vegar fram um
málið fyrr en nú í júní.
Ný stjórn tók við félaginu í mars. Þá hættu þrír
í stjórninni. Þrír nýir komu í staðinn. Þeir eru
Friðrik Jóhannsson, Orri Hauksson og Tómas Ottó
Hansson.
Eftir því sem næst verður komist er mismunandi
hvenær einstakir stjórnarmenn fréttu af málinu.
Víst er að sumir núverandi stjórnarmenn heyrðu
ekki af vandræðum Innovate fyrr en um miðjan
apríl. Svo hafi þeim verið ljóst um miðjan maí
hversu alvarlegt málið væri.
Innovate var hins vegar ekki afskrifað fyrr en
í þessum mánuði og var þá tilkynnt um það opin-
berlega.
Stjórn Eimskipafélagsins sagðist sjálf ætla að
rannsaka kaupin á Innovate rækilega þegar til-
kynnt var um afskriftirnar.
„Menn eru enn að vinna að þessu og það tekur
einhverjar vikur,“ segir Halldór Kristmannsson,
framkvæmdastjóri samskiptasviðs Eimskips.
Meðal þess sem stjórnin kannar er hvort félagið
hafi verið blekkt við kaupin.
Stephen Savage og Stephen Dargavel, sem seldu
Innovate til Eimskips, hættu störfum hjá félaginu
að því er virðist í tengslum við afskriftirnar. Peter
Osborne hætti í febrúar. Það var um svipað leyti
og stjórn Eimskips frétti fyrst af vandræðum fé-
lagsins.
Hver þeirra þriggja á 1,48 prósenta hlut í Eim-
skipafélaginu.
Samkvæmt heimildum Markaðarins hefur þegar
verið rætt við þá um söluna.
Halldór Kristmannsson vill fátt segja um málið.
„Þetta er hluti af því ferli sem menn eru í núna.“
Fjármálaeftirlitið
rannsakar Eimskip
Fjármálaeftirlitið hefur tekið málefni Eimskipafélagsins
til skoðunar. Svo virðist sem einhverjir stjórnarmenn í
Eimskipafélaginu hafi fátt vitað um stöðu mála fyrr en í apríl.
FRÁ ATHAFNASVÆÐI EIMSKIPA Eimskipafélagið er nú orðið
að athafnasvæði Fjármálaeftirlitsins. Afskriftir félagsins á dóttur-
félaginu Innovate og vitneskja einstakra manna á ýmsum tímum
er þar að líkindum undir. MARKAÐURINN/GVA
Innlend tryggingafélög högnuð-
ust um þrettán og hálfan miljlarð
króna í fyrra. Þetta er öllu minni
hagnaður en árið áður, en þá var
hann næstum tuttugu milljarðar.
Sjötíu prósent hagnaðarins í
fyrra kom til af fjármálastarf-
semi.
Fjármálaeftirlitið segir að af-
koma tryggingarekstrar hafi
batnað umtalsvert frá árinu
2005. Það skýrist meðal annars
af hækkun iðgjalda. Iðgjöld öku-
tækjatrygginga hækkuðu um
tæplega sextán prósent á föstu
verðlagi, en þau fóðra næstum
tvo þriðju iðgjalda. - ikh
Tryggingafélög
enn í plús