Fréttablaðið - 25.06.2008, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 25.06.2008, Qupperneq 6
MARKAÐURINN 25. JÚNÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR6 F R É T T A S K Ý R I N G L istasöfn og sýningar eru tilvalinn vettvangur fyrir fólk til að hittast og ræða málin,“ segir Mikael Eric- son, forstjóri sænska fjárfestingar- bankans Carnegie. Hann bendir á að fjármálaheimurinn hafi lengi stutt við bakið á listamönnum með einum eða öðrum hætti. Tíminn er talinn í öldum fremur en árum. „Þeir sem hafa áhuga á fjárfestingum hafa oft auga fyrir og áhuga á listum líka. Þeir koma fljótt auga á verðmætin,“ segir hann. Bankinn stofnaði til verðlauna- og farand- sýningarinnar Carnegie Art Award fyrir ára- tug og hefur síðan þá kynnt til sögunnar, stutt vel við bakið á og sýnt verk eftir 142 norræna listamenn úr ýmsum afkimum myndlistargeirans. Þar á meðal eru tuttugu Íslendingar. Skemmst er að minnast þess að myndlistarmennirnir Eggert Pétursson og Hreinn Friðfinnsson hafa báðir hlotið önnur verðlaun á sýningunni. Tveir Íslendingar sýna verk sín nú. Það eru þau Þór Vigfússon og Þórdís Aðalsteinsdóttir. Carnegie Art Award-sýningunni hefur vaxið fiskur um hrygg í þau tíu ár sem hún hefur verið haldin og er hún í dag einn af mikilsverðustu atburðum listaheimsins á Norðurlöndunum. REYNSLUBOLTI Í BANKAHEIMI Mikael Ericson er hæstánægður með sýning- una. Gott ef hann hefur ekki sjálfur tekið lit. Júnísólin stendur hátt á lofti og silast hægt í vesturátt. Hiti er nokkuð yfir meðallagi. Himinninn er blár, heiðskír og tær. Flugvél bætir hvítri línu við verkið. Við sitjum í svalanum inni á Gerðarsafni innan um málverk og aðra nútímalist. Úr sýningarsalnum að ofan berast raddir og tónar úr þeramíni. Andrúmsloftið fær á sig einkennilegan blæ. Starfsfólk Carnegie og Gerðarsafns er á þönum enda í þann mund að opna sýninguna eftir flakk hennar frá Kiama-nútímalista- safninu í Helsinki í Finnlandi og Ósló. Hingað er hún komin frá kóngsins Kaupmannahöfn. Ericson er sjálfur nýlentur og volgur ennþá, er tiltölulega nýtekinn við forstjóra- stólnum hjá Carnegie. Ericson var í raun ráðinn í byrjun árs en tók ekki við skútunni fyrr en fyrir einum og hálfum mánuði. For- veri hans hafði setið frá því seint á síðasta ári eftir að sænska fjármálaeftirlitið mæltist til þess að stjórninni yrði skipt út fyrir nýja í kjölfar hneykslismála sem skóku bankann. Forstjóranum var sömuleiðis skipt út fyrir annan. Spurður um málið hristir forstjórinn höfuðið létt og lætur fingur leika um far- símann – nýlegan síma frá Sony Ericsson. Hann svíkur ekki lit. Mikael Ericson var aðstoðar forstjóri Handelsbanken þegar kall- ið kom frá Carnegie. Að því er Ericson segir sjálfur steig hann fyrstu skrefin í fjármála- heiminum í sænska fjármálaráðuneytinu fyrir tuttugu árum. Þar var hann í aðeins eitt ár áður en hann steig inn fyrir dyr Carnegie. Hann var í sex ár hjá sænska fjárfestinga- bankanum en fór þaðan til Handelsbanken. Í raun má segja að forstjórinn sé kominn aftur á kunnuglegar slóðir. LISTHNEIGÐIR FJÁRFESTAR Carnegie-bankinn var stofnaður árið 1803 og fagnar því 205 ára afmæli um þessar mundir. Þótt Skoti, sem nefndi bankann eftir sjálfum sér, hafi stofnað hann hefur bankinn frá upp- hafi verið rótfastur á Norðurlöndunum. „Það var þess vegna mjög auðsótt mál fyrir bank- ann að tengjast norrænum listaheimi,“ segir Ericson. Hann bendir sömuleiðis á að marg- ir af viðskiptavinum bankans séu afar áhuga- samir um listir, ekki síst nútímalist. „Það var því eðlilegt að við snerum okkur að listaheimi Norðurlanda,“ segir forstjórinn. Hann bætir við að vettvangur lista geti verið mjög skap- andi. Á sýningu sem þessari gefist tækifæri til að hittast og ræða málin. „Það getur skilað góðum árangri,“ bendir Ericson á. Fimm hundruð gestir voru væntanlegir við opnun sýningarinnar hér. Bankinn greiðir allt umstang við verð- launasýningarnar, gefur út hnausþykka bók um verkin, listamennina og tilheyrandi. HRÆÐILEGUR ÓRÓI Aðspurður um yfirstandandi erfiðleika á fjár- málamörkuðum segir Ericson þetta hræði- legan tíma. „En þetta er bara svona – það er hart í ári,“ segir hann og bendir á að niður- sveiflan og erfiðleikarnir nú séu öðruvísi en fyrri kreppur. „Þetta er alþjóðleg sveifla í fjármálageiranum sem til lengri tíma getur haft áhrif á efnahag margra landa og fólks sem þar býr. Jafnvel í nokkurn tíma eftir að jafnvægi hefur náðst. Svona áföll hafa ekki dunið yfir áður í mæli sem þessum, svo ég viti til,“ segir hann. Ericson segir þetta nær einungis eiga við um lönd utan Norðurlandanna. Málið líti öðruvísi út innan þeirra, þótt flestir hafi verið snertir af vandræðunum í Vesturheimi. Hann bendir á bankakreppuna hér á landi á vordögum 2006 máli sínu til sönnunar. Í henni hafi íslensku bankarnir treyst stoðir sínar. „Þeir komu áreiðanlega betur búnir inn í kreppuna núna en hefðu áföllin ekki dunið yfir fyrir tveimur árum,“ segir hann. MEÐ ÍSLENDINGA VIÐ STJÓRNVÖLINN Sjálfur hefur Carnegie ekki farið varhluta af vandræðum. Í fyrra urðu starfsmenn hans uppvísir að því að skrá verðmæti valréttar- samninga í eigu hans of hátt í tvö ár á undan. Við þetta urðu eignir ofmetnar og bókhald sýndi betri afkomu en raunin var. Niðurstaða sænska fjármálaeftirlitsins var á þá lund að eftirliti, stjórnun og áhættustýr- ingu bankans væri ábótavant og var um tíma útlit fyrir að bankinn yrði sviptur starfsleyfi. Óvissa ríkti um framtíð bankans. Forstjórinn yfirgaf skútuna. Eftirmaður hans tók tíma- bundið við stýrinu þar til Mikael var kallaður til eftir áramótin. Mikael Ericson segir menn sína hafa lært mikið síðan þá. Hann bendir á að Carneg- ie sé ágætlega í sveit settur hvað lausafé og áhættudreifingu varðar. Helmingur af tekj- um komi frá fjárfestingastarfsemi en af- gangurinn frá eignastýringu og úr einka- bankaþjónustu. Stefnt sé að því að bæta starfsemi tryggingafyrirtækisins Max Matt- hiessen, sem keypt var í mars í fyrra, undir stoðir fjárfestingabankans á næstunni „Ég er sérstaklega spenntur fyrir því enda mun það bæta bankann og dreifa áhættunni. Það gerir hann sterkari fyrir vikið,“ segir Ericson. Íslendingar hafa á tíðum sést í hluthafahópi Carnegie. Glitnir, Straumur og fleiri áttu um tíma hluti í bankanum en Milestone, í nafni sænska fjármálaþjónustufélagsins Moderna (áður Invik), festi kaup á tíu prósenta hlut í honum síðasta haust – á sama tíma og útlit- ið var sem svartast. Félagið hefur aukið við sig og situr nú á sautján af hundraði hluta- bréfa. Anders Fällman, forstjóri Moderna, er stjórnarformaður fjárfestingabankans. Eric- son nefnir þetta með bros á vör. STÍGUR VARLEGA TIL JARÐAR En aftur að óróleika á fjármálamörkuðum. Ericson segir erfitt að spá fyrir um fram- haldið og veigrar sér við því að geta til um hvenær þessu ljúki. Útilokar samt ekki að það verði fljótlega, jafnvel með haustinu. „Það eru komin mýmörg tækifæri og lík- lega munum við sjá auknar yfirtökur og sam- runa fyrirtækja þá,“ segir hann og bendir á að fjármálaheimurinn sé afar viðkvæmur um þessar mundir. „Ég stíg sjálfur varlega til jarðar,“ segir forstjóri Carnegie. MIKAEL ERICSON Forstjóri sænska fjár- festingarbankans Carnegie segir fjármála- heiminn einkar viðkvæman um þessar mundir en telur útlit fyrir að sjást muni til sólar síðar á árinu. MARKAÐURINN/VALLI Listir og fjármál mætast í sýningarsalnum Norræna ferða- og verðlaunasýningin Carnegie Art Awards var opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi í síð- ustu viku. Áratugur er liðinn frá því að sænski fjárfestingarbankinn Carnegie ýtti þeim úr vör. Mikael Ericson, sem nýtekinn er við forstjórastól bankans, settist niður með Jóni Aðalsteini Bergsveinssyni fyrir opnun sýningarinnar og ræddi við hann um tengsl fjármála- og listaheimsins. Vissir þú að ... Carnegie Art Award-sýningin nú var opnuð í október í fyrra í nútímalista- safninu í Kiasma í Finnlandi. Síðasta sýningin verður í Alþjóðlega nútíma- listasafninu í Nice í Frakklandi í apríl á næsta ári... Þetta er tíunda árið sem Carnegie Art Award-sýningin er haldin... Sýningin var haldin ár hvert frá árinu 1998 til 2002. Frá 2003 hefur hún verið haldin annað hvert ár... Fyrir sýninguna nú tilnefndu 35 sérfræð- ingar allt að fimm listamenn. Í ár voru 143 listamenn tilnefndir... Á sýningunni nú voru 26 listamenn vald- ir eftir tilnefningu og sýna þeir 65 verk... Síðastliðin tíu ár hafa 142 listamenn frá Norðurlöndunum sýnt 620 verk á Carnegie Art Award... Heildarverðmæti verka á sýningunni nú nemur rúmum sjö milljónum sænskra króna, jafnvirði tæpra hundrað milljóna íslenskra króna... Fyrstu verðlaun nema einni milljón sænskra króna. Önnur verðlaun eru 600 þúsund en þriðju 400 þúsund. Auk þess veitir Carnegie-bankinn ungum og efni- legum listamanni 100 þúsund sænskar krónur í styrk á hverri sýningu... Bankinn hefur greitt sextán milljónir sænskra króna í verðlaunafé á áratug. Þetta jafngildir rúmum 218 milljónum íslenskra króna... Torsten Andersson, sem hlaut fyrstu verðlaun á sýningunni nú, var í þriðja sæti á fyrstu sýningunni fyrir áratug... Af átta sýningum sem haldnar hafa verið hafa Svíar unnið fyrstu verðlaun í fimm skipti. Allar Norðurlandaþjóðirnar nema Íslendingar hafa stigið í sigur- sætið... Svíar hafa frá upphafi haft langflesta fulltrúa á Carnegie Art Award... Fæstir fulltrúarnir á sýningunni síðast- liðin tíu ár eru frá Íslandi... Tveir íslenskir listamenn hafa hlotið önnur verðlaun á sýningunni... Íslendingar eru eina Norðurlandaþjóðin sem aldrei hefur fengið þriðju verð- laun... Norðmenn er eina Norðurlandaþjóðin sem aldrei hefur fengið önnur verð- laun... Norðmenn og Íslendingar hafa fengið jafn mörg verðlaun... VERK EFTIR VERÐLAUNAHAFA Torstein Andersson frá Svíþjóð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.