Fréttablaðið - 25.06.2008, Blaðsíða 9
H A U S
MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008
Ú T T E K T
miðað við ársreikninginn í fyrra, þrátt fyrir
að starfsemin sé engin.
ÞÁTTUR LANDSBANKANS
Ýmsum félögum í eigu Sambandsins og deild-
um þess var breytt í hlutafélög um 1990. Var
svo til að mynda um skipadeild Sambandsins
sem varð að Samskipum hf.
Tap var á rekstri Sambandsins árum saman
og fór svo árið 1992 að helsti lánardrottinn
þess, Landsbankinn, ákvað að leysa til sín veð
í eignum til að gera upp skuldirnar.
HÖMLUR
Heildarskuldirnar námu þá hátt í fimm millj-
örðum króna en miklar eignir voru á móti.
Þær voru meðal annars hlutur í Olíufélag-
inu, Reginn, sem meðal annars átti í Íslensk-
um aðalverktökum, Íslenskar sjávarafurðir,
Sambandshúsið við Kirkjusand og Samskip.
Auk þessara eigna átti sambandið stórversl-
unina Miklagarð, hlut í Íslenskum skinna-
iðnaði, Jötni hf., Efnaverksmiðjunni Sjöfn og
Dráttarvélum hf.
Enn átti Sambandið hlut í Goða og Kaffi-
brennslu Akureyrar.
Landsbankinn stofnaði eignarhaldsfélagið
Hömlur til þess að gera upp skuldir Sam-
bandsins. Mál þessi voru flókin og ekki
auðvelt að sjá til botns í þessu öllu saman,
líkt og fram kom í greinum Agnesar Braga-
dóttur í Morgunblaðinu frá þessum tíma. Hún
studdist einkum við ónafngreinda heimildar-
menn í skrifum sínum.
HVAÐ SVO?
Árið 1994 hafði Sambandið greitt megnið af
skuldum sínum, að því er fram kemur í yfir-
liti Ívars Jónssonar um samvinnuhreyfing-
una. En Sambandið sjálft var lagst í dvala.
Þá voru Samvinnutryggingar horfnar inn
í VÍS, og eftir stóð Eignarhaldsfélag Sam-
vinnutrygginga sem áður var fjallað um.
Samvinnubankinn rann inn í Landsbankann
og hlutinn í Olíufélaginu keypti félagið sjálft
árið 1992.
Félagið hefur farið um nokkrar hendur og
heitir núna N1.
Einnig varð sjávarafurðadeild Sambands-
ins, sem stofnuð var árið 1957, að Íslensk-
um sjávarafurðum hf. 1991. Inn í félagið rann
Iceland Seafood. Síðar urðu kaflaskil þegar
ÍS og SÍF sameinuðust í SÍF árið 2003.
Þá hefur skipadeild Sambandsins vaxið í
höndum Ólafs Ólafssonar, sem Samskip hf.,
og er nú með starfsemi víða um lönd og höf.
FRAMTÍÐIN
Mörg fyrrverandi Sambandsfyrirtæki, eða
fyrirtæki sem vaxið hafa á þeim grunni, lifa
því enn góðu lífi; þetta gufaði ekki upp.
En Sambandið sem slíkt fór aldrei á haus-
inn, líkt og fram kom hér í upphafi. Það leitaði
nauðasamninga við lánardrottna, gerði upp
og hvarf úr kastljósinu, en ekki af sviðinu.
Eignir þess eru töluverðar og þeir sem þar
eiga vettvang hafa ítök víða.
Hver veit nema Sambandið eigi enn eftir
að blómstra, ef ekki þá kaupfélögin sem þar
standa að baki.
Erfiðleikar Sam-
bandsins voru mikið
til umræðu í þjóðfé-
laginu á sínum tíma.
Ríkissjóður sam-
þykkti fjögurra millj-
arða króna fram-
lag til Landsbankans
árið 1993. Þá var full-
yrt í fréttum Stöðv-
ar tvö að Landsbank-
inn hefði teiknað
upp eftir launaáætlun
fyrir tvo forstjóra
Sambandsins og átján
framkvæmdastjóra.
Í heildina færu um 800 millj-
ónir króna í þessar eftirlauna-
skuldbindingar. Þá sagði Guð-
rún Helgadóttir á Alþingi:
„Hér er sem sagt fullyrt að
verulegur hluti þessara ævin-
týralegu skuldbindinga vegna
eftirlauna 20 manna falli hugsan-
lega á Landsbanka Íslands við
yfirtöku bankans á hlutafélög-
um sem stofnuð voru þegar
Sambandið leystist upp. Því hlýt
ég að spyrja: Voru milljarðarnir
sem Alþingi samþykkti Lands-
bankanum til styrktar fyrir fá-
einum vikum kannski að hluta
til til þess að halda þessum fá-
ránlegu greiðslum úti? Það
kynni að vera áhugavert fyrir
landsmenn að vita það. Gæti
það ekki verið forvitnilegt fyrir
starfsmennina 500 sem nú hefur
verið sagt upp störf-
um hjá Miklagarði að
vita hvað Landsbank-
inn er að fjármagna
þegar þeir leita
fyrir greiðslu bank-
ans vegna húsnæðis-
skulda sinna?“
Guðrún sagði við
sömu umræðu:
„En það kynni að
vera að saumakonan
sem er búin að sitja í
verksmiðju hjá Sam-
bandi íslenskra sam-
vinnufélaga síðastlið-
in fjörutíu ár og hefur 21 þús-
und krónur í lífeyri, það getur
vel verið að hún yrði látin skað-
ast. Það væri nær sanni. […]
Hæstvirtur forseti. Þessu gríni
verður að ljúka. Launþegar í
landinu geta ekki lengur sætt
sig við að þeir fjármunir sem
þeir vinna fyrir séu notaðir til
þess að örfáar manneskjur leiki
sér með þá.“
Þá fullyrti Jón Sigurðsson,
þingmaður Alþýðuflokksins og
viðskiptaráðherra.
„Landsbankinn hefur ekki yfir-
tekið þessa eftirlaunasamninga.
[…] Kjarni málsins er að sjálf-
sögðu sá, frá þessu þrönga sjónar-
miði, að bankinn viðurkennir þá
ekki sem forgangskröfu. Þetta
er alveg hreint og skýrt, getur
ekki skýrara verið.“
Eftirlaunamálið fyrra
GUÐRÚN HELGA-
DÓTTIR Gagnrýndi eftir-
launasamninga stjórn-
enda Sambandsins
harðlega. „Þessu gríni
verður að ljúka.“
Félög samvinnumanna og ráð-
herrar Framsóknarflokksins
voru áberandi í hópi kaupenda
á hlut ríkisins í Búnaðarbank-
anum, árið 2003.
Innan Eglu var Ker hf. sem
áður var hluti af Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga. Þá
voru einnig í hópi kaupenda
Eignarhaldsfélagið Samvinnu-
tryggingar, Samvinnulífeyris-
sjóðurinn og Vátryggingafélag
Íslands, en inn í félagið hafði
áður runnið tryggingahluti
Samvinnutrygginga.
Valgerður Sverrisdóttir, þá
viðskiptaráðherra, sá um söl-
una fyrir hönd ríkisins. Helstu
fulltrúar kaupenda voru Ólafur
Ólafsson athafnamaður, kennd-
ur við Samskip, og Finnur Ing-
ólfsson, athafnamaður og fyrr-
verandi viðskiptaráðherra,
sem hafði haft veg og vanda af
undirbúningi að sölu bankans,
meðal annars með hlutafélaga-
væðingu hans árið 1997.
Valgerður og Finnur sitja nú
saman í fulltrúaráði Eignar-
haldsfélagsins Samvinnutrygg-
inga.
Búnaðarbankinn
BÚNAÐARBANKINN KEYPTUR Gengið
frá sölunni árið 2003. Geir H. Haarde,
þáverandi fjármálaráðherra, fylgist með
en Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráð-
herra tekur í hönd Peters Gatti, frá þýska
Hauck & Aufhauser-bankanum. Ólafur
Ólafsson, einn forsvarsmanna S-hópsins
svonefnda, stendur á milli þeirra. Finnur
Ingólfsson er fjarri góðu gamni á mynd-
inni. MARKAÐURINN/GVA
En Sambandið sem
slíkt fór aldrei á
hausinn ... Það leit-
aði nauðasamninga
við lánardrottna,
gerði upp og hvarf
úr kastljósinu, en
ekki af sviðinu.
Eignir þess eru tölu -
verðar og þeir sem
þar eiga vettvang,
hafa ítök víða.
FRÁ NÝLEGUM
AÐALFUNDI Nokkrir
fulltrúar á aðalfundi
Eignarhaldsfélagsins
Samvinnutrygginga og
Andvaka sem haldinn
var fyrir skömmu.
Finnur Ingólfsson,
stjórnarformaður
Samvinnusjóðsins, lítur
í átt til ljósmyndarans.
MARKAÐURINN/GVA