Fréttablaðið - 25.06.2008, Page 12
MARKAÐURINN 25. JÚNÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR12
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
D
r. Tom G. Palmer er 52 ára gam-
all doktor í stjórnmálavísindum
sem starfar hjá Cato-samtök-
unum. Samtökin eru alþjóðleg
samtök, byggð á hugmyndum
frjálshyggju um baráttu fyrir frelsi, friði
og mannréttindum í heiminum. Hann
var á vegum Sumarháskóla Rannsóknar-
miðstöðvar samfélags- og efnahagsmála
(RSE) á Bifröst á dögunum.
VÍÐTÆKAR STARFSKYLDUR
„Ég hef miklar skyldur innan samtakanna.
Ég er varaforseti alþjóðamála hjá sam-
tökunum og sé um að halda námskeið og
fyrirlestra um frelsi í viðskiptum í lönd-
um þar sem lítið frelsi ríkir.“
Hvar starfarðu þá aðallega?
„Ég hef mikið starfað í Rússlandi, Kína
og Mið-Austurlöndum.“
Er ekki lítið um frelsi sums staðar í Mið-
Austurlöndum? „Það er mikill misskilning-
ur að múslimar séu ekki frelsis unnendur.
Þeir eru auðvitað mismiklir unnendur
frelsisins en öfgahóparnir skyggja á þá
hugsjón. Ég held að til skamms tíma litið
verði mikið af styrjöldum í heimi múslima
milli öfgahópa og þeirra sem vilja lýðræði
en til lengri tíma litið muni frelsi og lýð-
ræði sigra að lokum.“
RANGT AÐ RÁÐAST INN Í ÍRAK
Hvað fannst þér, sem hefur starfað mikið
í Mið-Austurlöndum, um innrásina í Írak?
„Það var röng ákvörðun að ráðast inn í
Írak. Utanríkisstefna Bush-stjórnarinnar
er auðvitað fáránleg. Það er vitað mál að
Saddam Hussein var trúleysingi og hataði
Al-Kaída. Hann drap alla Al-Kaída-með-
limi sem komu inn í Írak. Þess vegna má
segja að Bandaríkjamenn hafi í raun gert
Al-Kaída greiða með því að steypa stærsta
óvini þeirra af stóli.“
Hvað hefðir þú gert í staðinn ef þú
hefðir verið forseti?
„Ég hefði gert það sem Cato-samtökin
gera víðs vegar um heiminn. Samtökin
hafa verið að fræða fólk um frelsi og lýð-
ræði í múslimaheiminum, til dæmis með
því að þýða bækur eins og Frelsið eftir
John Stuart Mill sem var á metsölulista í
nokkrum arabaríkjum í langan tíma.“
Finnst þér stríð almennt röng leið til að
vinna baráttuna gegn hryðjuverkum?
„Já, klárlega. Það er ekki hægt að vinna
vonda hugmyndafræði nema með betri
hugmyndafræði. Því tel ég ómögulegt að
reyna að vinna það sem ég tel vonda hug-
myndafræði með byssukúlum. Í staðinn er
best að uppfræða fólk.“
SEGIR PÚTÍN HÆTTULEGAN HEIMINUM
Hvernig finnst þér staðan í öðrum löndum
sem þú hefur verið að vinna í?
„Í Rússlandi er í raun og veru einræði.
Þar hefur leynilögregla ríkisins tekið yfir
öll viðskipti landsins, fjölmiðla og annað.
Ég tel Vladimír Pútín hættulegan heim-
inum.“
En nú ert þú hægrimaður og Vladi-
mír Pútín og George Bush hægrimenn, af
hverju gagnrýnirðu þá?
„Ég vil ekki setja frjálshyggjuna á neinn
vinstri eða hægri ás. Frjálshyggjan er
stefna sem snýst um baráttu fyrir friði,
frelsi og mannréttindum. Ég studdi ekki
árásina í Írak, af því ég styð frið, en
repúblikanar gerðu það. Cato-stofnunin
hefur verið dugleg við að gagnrýna við-
skipta- og utanríkisstefnu Bandaríkjanna
undanfarin ár og því set ég mig alls ekki
í skoðanahóp með George Bush, hvað þá
Vladimír Pútín.“
OBAMA NÆSTI FORSETI BANDARÍKJANNA
Hver telur þú að vinni kosningarnar í
Bandaríkjunum?
„Ég held að það þurfi mikið til svo að
Barack Obama vinni ekki. Það eina sem
getur orðið honum að falli er ef hann segir
eða gerir eitthvað heimskulegt í aðdrag-
anda kosninganna. Ég held að Obama sé
fínn maður og að hann hlusti á fólk. John
McCain er ágætur en áhersla hans á inn-
rás í Íran finnst mér öfgakennd. Þessi
kenning margra um að kosningarnar muni
snúast um litarhátt er held ég ekki rétt.
Ég held í fyrsta lagi að John McCain muni
aldrei leggjast svo lágt. Í öðru lagi tel ég
Bandaríkjamenn vera tilbúna til að kjósa
blökkumann til áhrifa í landinu.“
EINA LAUSNIN Á OLÍUMÁLUM ER
MARKAÐURINN
Blaðamaður mátti til með að spyrja út í
olíuvandann sem hrjáir heimsbyggðina.
„Ég tel að eina lausnin sé að leyfa mark-
aðnum að ráða. Ef fólk er tilbúið fyrir aðra
orkugjafa verða þau fyrirtæki sem nota
slíkan orkugjafa ofan á í samkeppninni.
Það sem er þó merkilegt er að þeir sem
vildu á sínum tíma hækka olíu með skött-
um til að koma í veg fyrir gróðurhúsaáhrif
eru nú alveg brjálaðir út af háu olíuverði.
Það er ákveðin hræsni. Lítur út fyrir
að þeir hafi eingöngu viljað hafa bens-
ínið hærra með sköttum. Miklar breyt-
ingar hafa orðið í Bandaríkjunum eftir
að olíuverð hækkaði upp úr öllu valdi.
Bandaríkjamenn keyra miklu minna, eru
sparsamari á bensínið og nota hjólin sín
meira.“
ÞJÓÐNÝTING VITLEYSA
Heldurðu að mörg fyrirtæki verði þjóð-
nýtt í kreppunni?
„Nei, það held ég ekki. Það er auðvit-
að ekki skrýtið að fólk sem rekur einka-
fyrirtæki vilji láta ríkið grípa inn í þegar
illa gengur. Á hinum frjálsa markaði eiga
fyrirtæki að fara á hausinn þegar þau
standa sig illa, svo einfalt er það. Þá geta
önnur fyrirtæki tekið við á markaðnum
og þannig skapast hin heilbrigða sam-
keppni.“
Eykur það ekki líkurnar á einokun?
„Nei, alls ekki. Það hefur einmitt öfug
áhrif. Þetta skapar heilbrigða samkeppni
milli fyrirtækja. Hitt skapar miklu frekar
einokun þegar fyrirtæki eru keypt af rík-
inu og þjóðnýtt. Fyrirtæki eiga alltaf að
vera hrædd við að fara á hausinn því það
eykur heilbrigða samkeppni þar sem báðir
aðilar græða. Í þeim tilvikum þegar ríki
eru að fjárfesta með skattpeninga borg-
ara sinna eins og í Rússlandi og mörgum
arabaríkjum fara skattborgar að reiða sig
á ríkisvaldið frekar en að ríkisvaldið reiði
sig á borgarana. Fjárfestingar ríkisfyrir-
tækja eru oft af pólitískum toga frekar en
vel ígrundaðar og þess vegna getur þetta
skapað glundroða.“
ÞURFUM ALLTAF AÐ VERA Á VARÐBERGI
Telur þú að frelsið í hinum vestræna heimi
sé komið til að vera?
„Ég held að við þurfum alltaf að standa
vörð um frelsi okkar. Það er gamall máls-
háttur á ensku sem segir að kostnaður-
inn við frelsi sé að vera alltaf á varðbergi.
Maðurinn er í eðli sínu stjórnsamur og vill
stjórna öðrum og vera yfir aðra hafinn.
Við þurfum að temja okkur þann hugsunar-
hátt að ég lifi mínu lífi og þú lifir þínu lífi.
Þó að ég hafi kannski miklar skoðanir á
því hvernig þú ættir að lifa þínu lífi á ég
ekki að reyna að þröngva þeim skoðunum
upp á þig.“
HAFA ÍRLAND SEM FYRIRMYND
Hvernig finnst þér Ísland hafa staðið sig
í efnahagsmálum?
„Ég tel Íslendinga vera mjög vel setta.
Landið er aðlaðandi og með frekar frjálst
hagkerfi. Mörg önnur lönd ættu að taka
Ísland sér til fyrirmyndar. Til dæmis ættu
aðrar þjóðir að taka upp kvótakerfi að ís-
lenskri fyrirmynd ef þær vilja veiða fisk
til langs tíma. Mér finnst þetta álit Mann-
réttindanefndar Sameinuðu þjóðanna
mjög furðulegt því kvótakerfið skerðir
alls ekki atvinnufrelsi. Þetta er einungis
tæki til að hjálpa Íslendingum við að nýta
sér útflutning á fiski í lengri tíma.“
Að lokum fannst blaðamanni að hann
yrði að spyrja hvort Palmer hefði einhver
ráð handa íslenskum stjórnvöldum í efna-
hagsmálunum og hvort við ættum að taka
einhverjar þjóðir okkur til fyrirmyndar.
„Fyrirtækjaskattar eiga að vera mjög
lágir til þess að laða erlend fyrirtæki að
landinu. Jafnframt má ekki gleyma að
lægri fyrirtækjaskattar halda innlendum
fyrirtækjum inni í landinu. Írar hafa sett
gott fordæmi. Mikil fólksfækkun hafði
verið á Írlandi í áratugi þangað til skatt-
ar voru lækkaðir. Nú er Írland kjörstað-
ur fyrir fjárfesta og ekki nóg með að Írar
haldi sínu eigin fólki og fyrirtækjum í
landinu heldur hafa erlend fyrirtæki fjár-
fest mikið þar í landi.
Bandaríkin tapa til dæmis miklu á
fáránlegu skattkerfi. Þau eru ekki aðeins
farin að hrekja erlenda fjárfesta úr landi
með háum fyrirtækjasköttum heldur hafa
innlend fyrirtæki flust mikið úr landi á
síðustu árum en fyrirtækjaskattarnir þar
eru um 35 prósent. Vissir þú til dæmis að
ef Bandaríkjamaður býr og vinnur hér á
Íslandi, þótt það sé í tuttugu ár, þarf hann
að borga skatta bæði á Íslandi og í Banda-
ríkjunum?“
Saddam Hussein var meginóvinur Al-Kaída-samtakanna
Dr. Tom G. Palmer, varaforseti alþjóðamála hjá Cato-samtökunum, var á Íslandi á dögunum á vegum Sumarháskóla
Rannsóknar miðstöðvar samfélags- og efnahagsmála á Bifröst. Hann telur árásina í Írak hafa verið vind í segl Al-Kaída.
Víðir Smári Petersen blaðamaður ræddi við hann um störf hans og skoðanir.
DR. TOM G. PALMER Hann segir Íslendinga geta horft suður til Írlands í efnahagsmálum. Hann segir fyrir-
tækjaskatta þurfa að lækka til að halda innlendum og erlendum fjárfestum í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Úrvalsvísitalan hefur
lækkaðum rúmlega
helming á ellefu mán-
uðum. Hinn 18. júlí
síðastliðinn náði vísi-
talan sínu hæsta gildi
frá upphafi og stóð í
9.016 stigum en ellefu
mánuðum síðar stend-
ur vísitalan í 4.439
stigum. Það samsvarar
50,77 prósenta lækkun.
Á sama tímabili hafa
22 félög lækkað, eitt
staðið í stað og fimm
hækkað.
Af þessum félög-
um eru FL Group og
Tryggingamiðstöðin á
leið af markaði og þess
má geta að Spron kom
ekki á markað fyrr en í
október síðastliðnum.
- bþa
Helmingur eftir M E S T U L Æ K K A N I RSPRON -79,37
FL GROUP -78,47%
Exista -78,24%
Icelandic Group -71,52%
365 -67,35%
M E S T U H Æ K K A N I R
Century Aluminum 40,33%
Atlantic Petroleum 38,18%
Alfesca 18,37%
Tryggingamiðstöðin 18,24%
Nýherji 12,82%
L Æ K K U N V Í S I T Ö L U N N A R
Úrvalsvísitala kauphallarinnar hefur lækkað um 50,77 prósent á ellefu mánuðum.
18. JÚLÍ 2007 18. JÚNÍ 2008
10.000
9.000
8.000
7.000
6.000
5.000
4.000