Fréttablaðið - 26.06.2008, Blaðsíða 78
50 26. júní 2008 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. löngun, 6. klukka, 8. skjön, 9. gagn,
11. þófi, 12. snjóhrúga, 14. drabb, 16.
mun, 17. beiskur, 18. skörp brún, 20.
skóli, 21. pottréttur.
LÓÐRÉTT
1. áfengisblanda, 3. þys, 4. milligerð,
5. blekking, 7. heimilistæki, 10. mál,
13. framkoma, 15. slabb, 16. ílát, 19.
tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lyst, 6. úr, 8. ská, 9. nyt,
11. il, 12. skafl, 14. slark, 16. ku, 17.
súr, 18. egg, 20. ma, 21. ragú.
LÓÐRÉTT: 1. púns, 3. ys, 4. skilrúm,
5. tál, 7. ryksuga, 10. tal, 13. fas, 15.
krap, 16. ker, 19. gg.
„Ég er með glútenóþol svo ég fæ
mér yfirleitt glútenlaust múslí
eða honey poppies úr quinoa
með rísmjólk út á.“
Dina Akhmetzhanova, framkvæmdastjóri
heildsölu Yggdrasils.
„Er staðfest að þetta sé Dorrit?
Þetta er líkt henni en ég útiloka
ekki að þetta sé tvífari hennar,“
segir Vilhjálmur Örn Vilhjálms-
son fornleifafræðingur.
Frétt um að líklega hafi Dorrit
Moussaieff forsetafrú setið nakin
fyrir hjá listakonunni Natöshu
Archdale fór sem eldur í sinu um
Netheima í gær. Fréttin kom í
kjölfar þeirra tíðinda að Dorrit
hefði keypt nektarmynd eftir
Natöshu til að gefa í sextugsaf-
mælisgjöf.
Skúbb er hugtak innan blaða-
mennskunnar sem felur það í sér
að vera fyrstur með fréttirnar og
um hríð var á huldu hver „átti“
fréttina. Bloggskrif Andrésar
Jónssonar almannatengils eru
lýsandi fyrir leitina að skúbbar-
anum: Vísi, Monitor og … „… svo
hafði ég samband við Andrés og
sagði að ég hefði fyrst séð þetta
hjá Vilhjálmi,“ segir Atli Fannar
Bjarkason, ritstjóri Monitors. „En
Vilhjálmur á þetta. Algerlega.
Flott hjá honum. Skemmtileg
færsla og magnað skúbb,“ segir
Atli Fannar.
Vilhjálmur Örn er búsettur úti í
Danmörku. Hann hefur verið
búsettur þar helming ævi sinnar
eða í 24 ár, þar sem hann hefur
sinnt fræðigrein sinni. En hann er
í augnablikinu atvinnulaus sem
gefur honum svigrúm til að garfa
á Netinu.
„Nú? Ég er að frétta frá þér að
þetta sé skúbb. Nei, ég hef ekki
lagt mig eftir því að „skúbba“ og
hef aldrei starfað sem blaðamað-
ur. Ætli það sé eitthvað laust?“
spyr Vilhjálmur. En hvað kom til
að Vilhjálmur rakst á þessa mynd
sem finna má á netsíðu Natöshu?
Hann segist garfa í ýmsu sem
fornleifafræðingur. „Ég er hrif-
inn af gömlum og fallegum hlut-
um eins og forsetinn. Og þetta
segi ég ekki niðrandi heldur þvert
á móti. Íslendingar eiga eina
glæsilegustu forsetafrú í heimi.
En, ég er einmitt mikill stuðnings-
maður Dorritar og þegar ég sá
þessa frétt fékk ég þessa flugu.
Hlýtur Dorrit ekki að hafa setið
fyrir líka? Og ætli Ólafur hafi
gleymt að ná í myndina?“ spyr
Vilhjálmur og vísar til þess að
fyrirmenni geri þetta gjarnan – að
eiginkonurnar sitji fyrir naktar.
„Ef þetta er Dorrit á evuklæðum
fyrir framan Tösku- og hanska-
búðina er það ekkert til að skamm-
ast sín fyrir nema síður sé.“
Ekki tókst að ná í Örnólf Thors-
son forsetaritara í gær til að fá
staðfest að Dorrit sé módelið á
myndinni. Sé vitnað í Andrés
almannatengil: „Ef Örnólfur
Thors vill þiggja PR-ráð frá mér,
þá myndi ég bara staðfesta strax
að myndin sé af Dorrit. Ekkert að
þessari mynd. Óþarfi að fjölmiðl-
arnir séu með getgátur um hana í
allan dag.“
jakob@frettabladid.is
VILHJÁLMUR ÖRN: ER MIKILL STUÐNINGSMAÐUR FORSETAFRÚARINNAR
Fornleifafræðingurinn sem
fann Dorrit á Evuklæðum
Guðbjörg Eggertsdóttir opnaði
nýverið barnafataverslunina Litlu
kistuna á Laugavegi. Þar er meðal
annars hægt að fá föt úr lífrænni
bómull, bambus og sojabaunaefni.
„Þetta hefur fengið mjög góðar
viðtökur,“ segir Guðbjörg. „Ég var
búin að halda úti vefverslun, á litla-
kistan.is, í ár áður en ég opnaði og
ég fann fyrir gífurlegum áhuga
þar,“ segir hún.
Guðbjörg segir þessi óvenjulegu
efni afar þægileg. „Þau eru eigin-
lega eins og ullin, hitastillandi og
eyða lykt og eru svona líkari húð-
inni en önnur efni. Þau eru miklu
mýkri, eins og það sé meiri raki í
þeim,“ útskýrir Guðbjrög. „Maður
finnur til dæmis alveg muninn á
lífrænni bómull og venjulegri. Hún
andar meira og manni líður betur í
henni,“ segir Guðbjörg, sem segir
fólk oft ekki átta sig á því hversu
mikil eiturefni eru notuð við rækt-
un bómullar. „Það er rosalega
mikið magn af skordýraeitri og
aflaufgunarmiðlar og fleira. Svo
eru oft notuð sterk efni við vinnsl-
una á bómullinni og að lokum notuð
litarefni sem eru búin til úr málm-
um og olíum. Þetta er alltaf að
verða meira og meira,“ útskýrir
hún. „Í rauninni er þetta bara blóm.
Bómullin er ræktuð eins og græn-
meti. Flestir vita hvað það er mikil
eiturefnanoktun í grænmetisrækt-
un, enda hafa margir skipt yfir í
lífrænt ræktað grænmeti á síðustu
árum,“ bendir Guðbjörg á.
Í sama húsnæði og Litla kistan er
að finna kvenfataverslunina Töru,
þar sem hægt er að nálgast þýska
hönnun úr afar mjúkri, tyrkneskri
bómull fyrir þá sem öfunda börnin
af bambusklæðunum. - sun
Barnaföt úr bambus og soja
ÓVENJULEG FÖT Guðbjörg Eggertsdótt-
ir í Litlu kistunni selur meðal annars
barnaföt úr lífrænni bómull, bambus og
sojabaunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á göngu í Þingholtunum fær maður
oft á tilfinninguna að maður sé
staddur í litlu sjávarþorpi frekar
en í miðborg Reykjavíkur. Gömlu
bárujárnshúsin kúra hvert upp við
annað í þröngum götum, þar er
enn að finna hverfisverslun þar
sem fastakúnnar eru í reikning og
þar er einnig lítil fiskbúð sem selur
fisk upp á gamla mátann. Þeir sem
leggja leið sína í fiskbúðina við
Freyjugötu reka eflaust margir
hverjir upp stór augu þegar inn er
komið af því að þar má oft sjá tvo
ketti sem liggja í makindum sínum
á gólfinu. Hjónin Þóra Egilsdóttir
og Einar Steindórsson hafa rekið
fiskbúðina síðustu sautján árin og
segja þau læðurnar vera miklar
vinkonur þeirra.
„Þær búa hér í nágrenninu og
eru mættar á undan okkur á
morgnana. Svo eru þær hjá okkur
yfir daginn og passa búðina og fá
smá fiskbita að launum. Okkur
finnst ósköp notalegt að hafa þær
hérna,“ segir Þóra. Hún segir að í
fyrrasumar hafi kettirnir meira
að segja staðið vaktina þrátt fyrir
að verslunin væri lokuð vegna
sumarfrís þeirra hjóna. „Það
vogar sér enginn annar köttur
hingað inn, þær eiga staðinn
alveg einar,“ segir Þóra. Það eru
þó ekki aðeins kettirnir sem gera
fiskbúðina einstaka því vöru-
úr valið er heldur „gamaldags“
líkt og Þóra orðaði það, „Við
leggjum áherslu á ferskt og
ómengað hráefni og erum því
ekki með mikið af tilbúnum fisk-
réttum. Við bjóðum þó upp á
plokkfisk, fiskibollur og alltaf
einn fiskrétt í sósu.“ - sm
Kettir vakta fiskbúð
VILHJÁLMUR ÖRN VILHJÁLMSSON Forleifafræðingingurinn í Danmörku er „skúbbari
vikunnar“ þar til annað sannara reynist.
MYND NATÖSHU ARCHDALE Sé þetta
Dorrit á Evuklæðum fyrir framan Tösku-
og hanskabúðina er það ekkert til að
skammast sín fyrir, segir Vilhjálmur.
NOTALEGUR FÉLAGSSKAPUR Þóra Egilsdóttir í fiskbúðinni við Freyjugötu ásamt
öðrum kattanna sem passa upp á búðina fyrir eigendurna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Stjörnuparið Þóra
Sigurðardóttir, úr
Stundinni okkar, og
Völundur Snær
kokkur eign-
uðust son í
fyrrakvöld.
Svo skemmti-
lega vill til að
drengurinn kom í heiminn á brúð-
kaupsafmæli þeirra, en þau gengu í
hjónaband fyrir tveimur árum.
Fjöldapóstur frá óljósum byrjun-
arreit dældist inn á rafpósthólf
landsmanna í gær. Þar voru
neytendur hvattir til að kaupa sér
bensín alls staðar annars staðar
en hjá Skeljungi og N1. Ef enginn
myndi kaupa af þessum tveimur
söluaðilum myndi bensínið lækka
og alvöru samkeppni komast á.
Olís og Atlantsolía eru eflaust him-
inlifandi með framtakið.
Hljómsveitin Mot-
ion Boys sendir
sitt fjórða lag í
spilun á föstu-
daginn, „Queen
of Hearts“. Eldri
lög sveitarinnar
hafa verið vinsæl og má búast við
að fyrsta stóra platan, sem Sena
gefur út í haust, eigi eftir að stimpla
bandið rækilega inn. Mannabreyt-
ingar hafa átt sér stað hjá Motion
Boys, bæði Viddi bassaleikari og
Árni plús Einn hafa horfið til ann-
arra starfa. Eftir eru Birgir Ísleifur,
Gísli Galdur, Bjössi í Mínus og
Tobbi í Dr. Spock. Þeir hamast nú
við að klára plötuna í Gróðurhúsinu
með Valgeiri Sigurðssyni og nota
blaut handklæði á trommusettið til
að ná rétta sándinu.
Eyjólfur Eyvindarson,
betur þekktur sem „afi
rappsins“ eða Sesar A, er
nú snúinn aftur á klak-
ann eftir fjögurra
ára nám á Spáni.
Þar nam hann bæði
spænska kvikmyndasögu og mið-
jarðarhafseldamennsku. Sesarinn
kom heim með plötuna Of gott,
sem er hans þriðja plata, og miðlar
nú hæfileikum sínum við pottana á
Kaffi Sólon. -glh
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á blaðsíðu 8
1 315.
2 Gröfin Open.
3 6,7 milljarða.