Fréttablaðið - 27.06.2008, Blaðsíða 36
27. JÚNÍ 2008 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● brúðkaup
Linda Ásgeirsdóttir leikkona og Sigurður Gunnar Gissurarson
eiga tveggja ára brúðkaupsafmæli í haust en þau giftu sig 16.
september árið 2006. Brúðkaupsdaginn bar upp á afmælisdag
brúðgumans.
„Það er hálfgerð hefð fyrir því í fjölskyldunum báðum að velja
afmælisdag brúðgumans til að gifta sig,“ segir Linda en foreldrar
Sigurðar giftu sig á afmælisdegi pabba hans og bróðir hans gifti
sig á sínum afmælisdegi. „Svo komst ég að því að amma mín og
afi giftu sig líka á afmælisdegi afa míns. Kannski er þetta gert til
þess að karlarnir muni eftir brúðkaupsdeginum.“
Linda segist ekki hafa þurft að hugsa sig tvisvar um þegar
unnustinn bar upp bónorðið. „Ég var búin að finna rétta manninn
og var alveg tilbúin þegar hann bar það upp. Bónorðið var mjög
einlægt og fallegt en hann var að koma heim frá útlöndum úr
vinnuferð, færði mér gjafir og var búinn að kaupa á mig fallegan
kjól. Svo fór hann bara á hnén og spurði hvort ég vildi giftast sér.
Þetta var í maí og við giftum okkur í september.“
Hjónaefnin opinberuðu trúlofun sína á eins árs afmæli Karls
Kristjáns, sonar þeirra, hinn 18. maí og skáluðu í kampavíni.
Giftingarathöfnin sjálf fór svo fram í Fríkirkjunni í Hafnar-
firði enda brúðguminn Hafnfirðingur. Veislan var haldin í Hauka-
húsinu á Ásvöllum og þar samfögnuðu 210 gestir.
„Þetta var fallegur dagur, sólskin og blíða og við vorum hæst-
ánægð.“ - rat
Giftu sig á afmælisdegi
brúðgumans
Linda og Sigurður á brúðkaupsdaginn með drengjunum sínum Karli Kristjáni
og Gissuri Atla. MYND/ARNALDUR HALLDÓRSSON
BÓNORÐIÐ
Tískustrauma í brúðarkjólum er alltaf gaman að skoða. Kjólarnir
í ár eru margir fremur óhefðbundnir en um leið bæði rómant-
ískir og kvenlegir.
Óvenjulegt er að sjá brúði í öðru en skósíðum kjól, en í ár klipptu marg-
ir hönnuðir neðan af kjólunum sínum. Fyrirsæturnar báru sig vel í hnés-
íðum og jafnvel styttri kjólum og voru ferskar og sumarlegar. Kjólarnir
voru heldur ekki einskorðaðir við hvíta litinn og mátti finna efni í bláum,
fjólubláum, bleikum og grænum litum. Kjólar með einn hlýra sáust
oft en það snið er einstaklega kvenlegt og leyfir líkamanum að
njóta sín vel. Slaufur og blómaskraut settu síðan lokahnykkinn á
marga kjóla, bæði stórt skraut sem og íburðarlítið. - mþþ
Óhefðbundnar brúðir
Íburðarmiklar slaufur
og blómaskraut hjá
Veru Wang.
Sumar-
legur kjóll
frá Angel
Sanchez.
Stuttur
fjaðrakjóll
frá Angel
Sanchez.
Kvenlegt
frá Claire
Petti-
bone.
Djarfur kjóll
frá Veru Wang.
Carolina
Herrera
sýndi
rómantíska
kjóla.