Fréttablaðið - 27.06.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Sem borinn og barnfæddur Vest-firðingur, sem nú býr í sollinum
101 Reykjavík, hef ég fengið að
kynnast ófáum ranghugmyndum
sem borgarbúar hafa alið með sér
um okkur dreifarana. Ein er á þá
leið að við hljótum að þekkja svo
gott sem alla sem búa í sama fjórð-
ungi. Þegar ég segist til dæmis
vera frá Patreksfirði er gengið að
því sem vísu að ég þekki þennan
eða hinn í Bolungarvík. Þótt þetta
sé álíka rökrétt og að Kjalnesingar
hljóti að þekkja alla í Stykkishólmi
hefur þessi bábilja reynst merki-
lega lífseig.
SVO allrar sanngirni sé gætt má
ekki gleyma að úti á landi er fólk
ekki síður lúsiðið við að sjóða
saman skrýtnar hugmyndir um
borgarbúa, sérstaklega miðbæjar-
rotturnar. Algengasta staðal-
ímyndin er á þá leið að í 101 búi
bara kjaftastéttir og listaspírur,
fólk sem hefur aldrei dýft hendi í
kalt vatn og tapað tengslum við
gömul og rótgróin gildi sem færðu
okkur hagsæld. Hugmyndin um
hinn velmeinandi borgarbúa, en
barnslegan og fáfróðan í firringu
sinni, á sér margar táknmyndir,
enga þó skýrari en kaffi latté.
NÚORÐIÐ getur Reykvíkingur
ekki viðrað minnstu efasemdir um
álitamál sem snerta landsbyggðina
án þess að vera afskrifaður sem
„lattéþambandi miðbæjarrotta“.
Meðan fólkið handan Vatnsmýrar-
innar stendur í hinni sönnu lífsbar-
áttu hefur kaffifroðan stigið íbúum
í 101 Reykjavík til höfuðs og lamað
þær heilastöðvar sem stjórna skyn-
bragði fyrir ábyrgri nýtingu nátt-
úruauðlinda. Sá sem eitrar líkama
sinn með mjólkurkaffi að ítölskum
sið getur ekki tjáð sig skynsamlega
um kvótakerfið, landbúnaðartolla
eða stóriðju.
ÍSLENDINGAR til sjávar og
sveita eru hvorki ókunnugir kaffi
né mjólk; á hverjum sveitabæ er
gestum boðinn molasopi og mjólk
með. Meinsemd ítalska mjólkur-
kaffisins hlýtur þess vegna að fel-
ast í því að mjólkin er hituð áður en
henni er hellt út í. Svona á kaffi
ekki að vera, mjólkin er til þess að
kæla – ekki bragðbæta. Einhvers
konar stökkbreyting hefur átt sér
stað, úrkynjun.
KAFFI með flóaðri mjólk virðist
með öðrum orðum vera fleinninn
sem skilur að sveit og borg – mið-
borg að minnsta kosti. Fræðimanna
framtíðarinnar bíður það verðuga
verkefni að rannsaka hvernig það
atvikaðist. Hvenær byrjuðu þessi
rof? Þegar Mokka var opnað? Þetta
verður líklega ein af ráðgátum 21.
aldar. Kaffimóðuharðindin.
Flóuð meinsemd
3.00 13.31 0.00
1.44 13.15 0.44
Í dag er föstudagurinn 27. júní,
180. dagur ársins.
Ferðaskrifstofa
Gott fjölskyldurekið hótel með rúmgóðum
herbergjum. Heilsurækt með saunu, tyrknesku
baði, nuddpotti og hvíldaraðstöðu. Örstutt frá
skíðalyftu svo hægt er að renna sér í lyftu og
heim að hóteli.
Verðdæmi: 104.500,-Verðdæmi: 129.710,-
Staðsett rétt við Ciampinoi-skíðabrekkuna,
æfingarbrekkuna og skíðaskólann. Hótelið er
miðsvæðis í bænum en jafnframt ríkir þar þögul
kyrrð. Skíðabrekkurnar renna beint upp að
hótelinu sjálfu og inn í hlýjuna.
Ítalía hefur verið einn vinsælasti áfanga-
staður skíðaunnenda undanfarin ár
og ekki að ástæðulausu. Madonna di
Campiglio er fallegt fjallaþorp þar
sem þú finnur þægilegustu brekkurnar
og frábæra aðstöðu fyrir snjó-
brettafólk. Selva Val Gardena
er einn þekktasti skíðabær
Ítalíu og jafnframt eitt
besta skíðasvæði heims.
Skelltu þér á skíði í vetur!
Hótel Garni Miara (Selva Val Gardena) Hótel Montana (Madonna di Campiglio)
Skíðaveisla
á Ítalíu
Vikuferð með morgunverði
Á mann í tvíbýli m.v. brottför 7. febrúar 2009
Vikuferð með morgunverði
Á mann í tvíbýli m.v. brottför 20. desember 2008
Innifalið: Flug, flugvallaskattar, gisting í 7 nætur og íslensk fararstjórn.
Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis
er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega.
Salan er hafin!
Jólaferð: 20. des. í 7 eða 14 nætur
Áramót: 27. des. í 7 nætur
3. janúar í 11 nætur
14. janúar í 10 nætur
Vikulegt flug frá 24. janúar til 7. mars