Fréttablaðið - 29.06.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
29. júní 2008 — 175. tölublað — 8. árgangur
LANDSMÓT
HELLA 2008
30. júní - 6. júlí
dagur
í Landsmót
1
BESTA TÍMAKAUP
SEM ÉG HEF HAFT
Tattúfólkið úr Bingó-
þætti Villa Naglbíts
ber húðflúrið með
stolti.
FÓLK 30
VINSÆLUSTU BARIR SUMARSINS
Leiðarvísir fyrir þá sem vilja
fara á svölustu staði bæjarins 16&17
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABL
AÐSINS UM FERÐALÖ
G ]
ferðalög
JÚLÍ 2008
FRÁ SÖGUSLÓÐU
M GRIKKLANDS
UPP Á TINDINN Á
MONT BLANC
FERÐIR FYRIR FÓ
LK SEM ÞRÁIR
AÐRA HLUTI EN S
ÓL, BJÓR OG STU
Ð
RÉTTSÝNI
FERÐALANGURIN
N
GÖNGUFERÐIR
UM EVRÓPU
VEÐRIÐ Í DAG
NORÐANÁTTIR Í dag verða norð-
an 5-10 m/s víðast hvar. Rigning
norðaustan og austan til, stöku
skúrir norðvestan til en bjart með
köflum syðra með síðdegis-skúrum.
Hiti 6-14 stig, mildast syðst.
VEÐUR 4
7 9
10
1310
EVRÓPUMÁL Það er löngu tímabært
að vinna fordómalausa úttekt á
helstu kostum og göllum Evrópu-
sambandsaðildar, eigi Ísland ekki
að dragast aftur úr öðrum þjóðum.
Þetta kemur fram í grein Eddu
Rósar Karlsdóttur, forstöðumanns
greiningardeildar Landsbankans, í
Fréttablaðinu í dag.
Edda Rós segir alþjóðlegu
fjármálakreppuna óvenju mikla
hér á landi. „Þessi staða lýsir í
hnotskurn stöðu Íslands í breyttum
heimi og er í sjálfu sér nægjanleg
rök fyrir því að skoða inngöngu í
efnahagsbandalag án tafar. Mér
finnst Evrópusambandið hljóta að
vera fyrsti kosturinn í því sam-
bandi. - bs / sjá síðu 8
Edda Rós Karlsdóttir:
Vill skoða ESB-
aðild tafarlaust
LÖGREGLUMÁL Sérsveit lögreglunnar var kölluð til
Grímseyjar um klukkan sex í gærdag til að hand-
taka drukkinn mann sem hótaði fólki með hnífi og
grjóthnullungi. Maðurinn var í byrjun mánaðarins
dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi í Héraðsdómi
Norðurlands eystra fyrir þrjár hnífstungur, alvar-
legar líkamsárásir og fíkniefnabrot.
Að sögn sjónarvottar hafði ölvaður maðurinn
verið með háreysti og hótanir á tjaldsvæðinu á
staðnum í fyrrinótt. Um klukkan sex síðdegis í gær
varð hann sér úti um hníf í fiskihúsi á innri-bryggju-
svæðinu, þar sem meðal annarra voru stödd börn í
ratleik og bátasjómenn að störfum. Maðurinn gekk
um með hnífinn og ógnaði fólki, og gerði tilraun til
að stinga einn mann. Sá náði hnífnum af tilræðis-
manninum með snarræði. Dró hann þá upp grjót-
hnullung og hélt áfram hótunum í um 45 mínútur,
þar til þyrla með sérsveitarmönnum frá Akureyri
lenti í eyjunni og yfirbugaði manninn.
Óvenju margt fjölskyldufólk var statt í Grímsey í
gær vegna tíu ára mótsafmælis Sjóstangafélags
Akureyrar. Sjónarvotturinn sagði mikla hræðslu
hafa gripið um sig meðal fólks, en þó aðallega
yngstu barnanna sem urðu vitni að tilburðum
mannsins.
Garðar Ólason, sveitarstjóri Grímseyjar, segir
fólk hafa verið harmi slegið yfir hegðun mannsins.
„Við erum ekki vön svona löguðu hér í Grímsey.
Þetta er eitthvað sem gerist ekki nema á tíu eða tut-
tugu ára fresti,“ segir Garðar.
Maðurinn gisti fangageymslur lögreglunnar á
Akureyri í nótt. - kg
Maður með hníf og barefli ógnaði fólki að börnum aðsjáandi í Grímsey:
Vopnaður maður ógnaði fólki
VINNUMARKAÐUR Samkomulag
hefur náðst milli 23 stéttarfélaga í
BHM-samstarfinu og fjármála-
ráðuneytisins um framlengingu á
kjarasamningum til marsloka á
næsta ári. Félagsmennirnir fá, að
sögn Gunnars Björnssonar, for-
manns samninganefndar ríkisins,
krónutöluhækkun upp á 20.300
krónur eða sömu krónutöluhækkun
og samið var um í febrúar. Í yfir-
lýsingu frá BHM segir að laun
hækki um rúm sex prósent að
meðaltali frá 1. júní.
Misjafnt er milli félaga hvernig
krónutöluhækkunin kemur út. Guð-
laug Kristjánsdóttir, formaður
BHM, vildi í gærkvöld ekki upp-
lýsa hvaða hópar fengju mesta
hækkun og hverjir minnsta.
Gunnar segir að hækkunin sé á
bilinu fjögur til átta prósent eftir
félögum. Vísindasjóður sé lagður
niður og það komi til hækkunar á
launatöflu. Samkomulagið felur
einnig í sér endurskoðun á starfs-
menntunarmálum.
Guðlaug segir að félagsmennirn-
ir taki á sig kjaraskerðingu í sam-
ræmi við markmið ríkisstjórnar-
innar. „Við völdum skásta kostinn í
þeirri þröngu stöðu sem við vorum
í,“ segir hún.
Ljósmæður hafa sagt sig úr
BHM-samstarfinu. Bára Hildur
Jóhannsdóttir, formaður kjara-
nefndar, segir að þær vilji að ríkið
meti meistaranám þeirra í launum
og grípa þurfi til aðgerða til að
sporna við fækkun í stéttinni.
Samkomulag BHM nær til um
fimm þúsund launþega. - ghs
Háskólamenn semja um
20.300 króna hækkun
Samkomulag náðist í kjaraviðræðum 23 stéttarfélaga háskólamanna við ríkið í
gærkvöld. Háskólamenn fá jafnframt endurskoðun á starfsmenntunarmálum.
Í NAFNI NÁTTÚRUNNAR Jónsi í Sigur Rós kærir sig kollóttan um skort á gítarstrengjum, meðan Björk slær taktinn á Náttúrutónleikunum í Laugardalnum í gær. Talið er að allt
að 30 til 40.000 manns hafi lagt leið sína í dalinn í veðurblíðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON