Fréttablaðið - 29.06.2008, Blaðsíða 66
26 29. júní 2008 SUNNUDAGUR
HANDBOLTI Uwe Schwenker,
framkvæmdastjóri Kiel, segir
Alfreð Gíslason fyrsta kost sem
næsti þjálfari þýska stórliðsins.
„Við viljum helst fá Alfreð. Ef
við náum saman þá gæti þetta
klárast í næstu viku,“ sagði
Schwenker í viðtali við þýska blað-
ið Kieler Nachrichten en hann
fullvissar alla um það að það verði
allir hjá Kiel ánægðir með næsta
þjálfara liðsins, hvort sem það eru
leikmenn, stjórnarmenn eða stuðn-
ingsmenn.
Meðal annara þjálfara sem hafa
verið nefndir til sögu, gangi ekki
upp að ráða Alfreð, eru Svíarnir
Staffan Olsson (þjálfari Hammar-
by IF) og Ola Lindgren (þjálfari
HSG Nordhorn). Þá er talið líklegt
að Stefan Lövgren leikmaður
liðsins verði spilandi aðstoðar-
þjálfari. - óój
Framkvæmdastjórinn hjá Kiel:
Alfreð er fyrsti
kostur hjá Kiel
EFTIRSÓTTUR Alfreð Gíslason er með
samning við Gummersbach til ársins
2010. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
GOLF Golfklúbbur Vestmannaeyja
verður 70 ára á þessu ári en GV
er þriðji elsti golfklúbbur
landsins á eftir GR og GA.
Íslandsmótið í höggleik mun af
þessu tilefni fara fram í Eyjum
og nú er komin út glæsileg bók,
Saga Golfklúbbs Vestmannaeyja í
70 ár, en þetta er í fyrsta sinn sem
golfklúbbur á Íslandi ræðst í slíka
útgáfu.
Þetta er fyrsta golfsögubókin á
Íslandi og er hún 250 blaðsíður og
prýdd fjölmörgum myndum.
Höfundurinn Sigurgeir Jónsson,
blaðamaður og kennari, vann að
bókinni í tvö ár en hún er til sölu
hjá GV. Hægt er að nálgast
upplýsingar með því að senda
tölvupóst á golf@eyjar.is. - óój
70 ára afmæli hjá GV:
Fyrsta golfsögu-
bókin komin út
HÖFUNDURINN Sigurgeir Jónsson með
bókina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Hólmar Örn Eyjólfsson
hefur samið við enska úrvals-
deildarliðið West Ham og hefur
leikið sinn síðasta leik með HK í
Landsbankadeildinni í sumar.
Hólmar skrifar undir samninginn
í næstu viku en hann er til þriggja
ára.
„Þarna er draumurinn að ræt-
ast og það verður skemmtilegt að
fá að takast á við þetta verkefni,“
segir Hólmar en þessi félaga-
skipti eru búin að vera í vinnslu
síðan í febrúar. HK og West Ham
náðu saman í maí en West Ham
hefur síðan verið í viðræðum við
Hólmar Örn sem naut góðs af því
að faðir hans Eyjólfur Sverrisson
hefur þrettán ára reynslu sem
atvinnumaður í knattspyrnu.
„Í þessum samningi West Ham
við HK þá var klausa um það að
ég myndi hætta að spila þannig að
ég fengi frí eins og hinir áður en
undirbúningstímabilið hæfist.
Það er mjög erfitt að fara frá HK
sem er mitt uppeldisfélag og sér-
staklega að fara frá þeim þegar
þeir eru í svona erfiðri stöðu. Ég
hefði alveg viljað hjálpa þeim
áfram,“ segir Hólmar Örn sem
hefur samt trú á Kópavogsliðinu
sem er sem stendur í neðsta sæti
Landsbankadeildar karla með
aðeins 4 stig út úr 8 leikjum. „Þeir
redda sér pottþétt,“ segir Hólmar
sem ætlar að styðja sína menn í
Grindavík í dag.
Hólmar skilur HK þó ekki alveg
eftir tómhent því hann er dýrasti
leikmaðurinn sem farið hefur frá
íslensku liði og HK hefur því
fengið góða upphæð fyrir strák-
inn. Hólmar er hugsaður sem
miðvörður eða afturliggjandi
miðjumaður en hann hefur verið
að spila þær stöður í Landsbanka-
deildinni bæði í ár og í fyrra.
„Ég er ekki alveg búinn að
mynda mér skoðun á því hvar
möguleikar mínir liggja á að kom-
ast í aðalliðið. Ég ætla bara að
fara út, byrja að æfa og sjá hvar
ég stend. Ég ætla að gera mitt
besta til þess að komast í hópinn,“
sagði Hólmar að lokum.
Hólmar Örn hefur alls leikið 19
leiki í Landsbankadeildinni og
hefur verið í byrjunarliði liðsins í
þeim öllum. Hann á að baki 25
leiki fyrir yngri landslið Íslands
og náði því að spila fyrir 17, 19 og
21 árs landsliðið í fyrra. - óój
Hólmar Örn Eyjólfsson samdi við West Ham til þriggja ára og verður ekki með í Grindavík í dag:
Erfitt að fara frá HK í svona erfiðri stöðu
EFNILEGUR Hólmar Örn Eyjólfsson
hefur byrjað alla 19 leiki sína í
Landsbankadeildinni á ferlinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/XXX
FÓTBOLTI Allar líkur eru nú á því
að það verði fjölgað um átta lið í
lokakeppni EM og hún verði því
með 24 liðum í framtíðinni.
Formenn allra 53 aðildarlanda
UEFA styðja þessa breytingu en
þeir funduðu með Michel Platini,
forseta UEFA, í Vín fyrir
úrslitaleikinn sem fram fer í
kvöld. Fyrsta úrslitakeppnin með
24 liðum ætti að fara fram árið
2016 en lokaákvörðunin verður
tekin hjá framkvæmdanefnd
UEFA á fundi þeirra í Bordeaux í
Frakklandi í lok september.
Líkur Íslands á að komast í
lokakeppnina ættu að aukast
verulega með þessu en Ísland er
nú 42. besta lið Evrópu sam-
kvæmt styrkleikalista FIFA. - óój
Líkur Íslands aukast:
Fjölgað upp í 24
lið á EM 2016
FÓTBOLTI Það verður mikil fótbolta-
veisla á Suðurlandi og Suðurnesj-
um í næstu viku þegar Ísland held-
ur Norðurlandamót 16 ára landsliða
kvenna.
Á mótinu taka þátt auk Íslands
sjö sterkar þjóðir sem eru allar á
topp tuttugu á Styrkleikalista
Alþjóðaknattspyrnusambandsins,
þar af fimm þeirra meðal tíu bestu.
Hér er því kjörið tækifæri til þess
að sjá bestu knattspyrnukonur
framtíðarinnar. Riðill Íslands sem
inniheldur Þýskaland, Noreg og
Danmörku fer fram á Suðurlandi
en hinn riðillinn með Svíþjóð, Hol-
landi, Frakklandi og Finnlandi fer
fram á Suðurnesjum.
Verður mjög erfitt
„Þetta verður mjög erfitt. Það
verður gaman að sjá hvar við
stöndum og það er frábært að fá
tækifæri til þess að spila á móti
þeim. Þessi Norðurlanda-
mót eru gríðarlega sterk
þar sem þessar þjóðir
sem eru að spila þarna
eru eigileg bestu liðin í
heiminum. Þetta er því
mjög góður undir-
búningur hjá
okkur fyrir Evr-
ópukeppnina sem
fram fer á Ítalíu í
október,“ segir
Kristrún Lilja
Daðadóttir,
þjálfari liðsins.
„Við lentum í
því í millriðli
Evrópu-
keppninnar í
Danmörku að
við vorum að
skora flest mörk
en fengum að
sama skapi á
okkur flest mörk
líka. Við þurfum
því að vinna í
varnarleiknum
hjá okkur og
það verður lögð
áhersla á það á
þessu móti að
allir í liðinu þurfa að spila
vörn,“ segir Kristún.
Berglind Björg Þor-
valdsdóttir, framherji
liðsins, var valin í A-
landsliðshóp á dögunum
og hefur skorað fimm
mörk í sjö leikjum í
Landsbankadeild
kvenna í sumar.
Berglind hefur skor-
að 10 mörk í 6 leikj-
um fyrir 17 ára landsliðið
og er markaskorari af guðs náð.
„Hún er með mjög þroskaðan
leikskilning, er greinilega búin
að fylgjast mikið með fótbolta og
læra af því. Hún er ótrúlega mark-
heppin og nýtir færin sín venju-
lega mjög vel,“ segir Kristrún um
Berglindi.
Miðjumennirnir Arna Sif
Ásgrímsdóttir úr Þór Akureyri og
Heiða Dröfn Antonsdóttir úr Val
hafa einnig náð sér í reynslu með
því að spila stórt hlutverk með 17
ára landsliðinu, bæði síðasta haust
og í milliriðlinum í vor.
Berglind og Arna Sif eru fasta-
menn í sínum liðum í Landsbanka-
deildinni og það eru líka varnar-
maðurinn Silvía Rán Sigurðardóttir
frá Þór og framherjinn Guðrún
Ólöf Olsen úr Keflavík.
Erfitt að velja liðið
„Það er mikil breidd í þessum
árgöngum og ég held að það hafi
aldrei verið jafn erfitt að velja í
hópinn sem er frábært,” segir
Kristrún sem segir ennfremur að
leikmennirnir séu mjög jafnir.
„Það getur verið kostur að vera
með mjög jafnt lið því það er oft
erfitt að vera með tvær hetjur í
liðinu og þurfa síðan að treysta á
að þær geri allt,” segir Kristrún og
bætir við. „Það er mikil metnaður
hjá þessum stelpum og ég er mjög
ánægð með að sjá hvað þær eru
óhræddar við að vera fótbolta-
stelpur út í gegn. Þær eru ekkert
feimnar við það.“
Kristrún segir oft vera mikinn
mun á stelpunum milli fyrstu
landsliðsverkefna þeirra og þegar
þær snúa síðan aftur reynslunni
ríkari.
Allar saman á hóteli
Landsliðið dvelur allt saman á
Hótel Örk á meðan á mótinu stend-
ur og dagskráin er svipuð og ef að
liðið væri statt á móti erlendis.
„Það er mjög gott að hafa aðgang
að þeim allan sólarhringinn því
það eru ekki of margar æfingar
sem maður fær með þær. Við náum
vonandi með þessu að mynda
sterka liðsheild og ná upp stemn-
ingu,“ segir Kristrún. Kristrún
vonast líka til þess að það verði
góð mæting á leiki liðsins.
„Það er frábært að við séum
komnar með svona flottar fyrir-
myndir í A-landsliðinu. Þar sjá
þær að það er allt hægt. Ég vona
líka að þetta lið fái góðan stuðning
og að fólk komi og styðji við
okkur,” segir Kristrún að lokum.
ooj@frettabladid.is
Eru allar fótboltastelpur út í gegn
Íslenska 16 ára landslið kvenna spilar á heimavelli á Norðurlandamótinu sem hefst á mánudaginn. Íslenska
liðið er í riðli með þremur af bestu knattspyrnuþjóðum heims, Þýskalandi, Noregi og Danmörku.
TÍU MÖRK Í SEX
LEIKJUM Berglind
Björg Þorvaldsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FYRIRLIÐARNIR Heiða Dröfn Antonsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir bregða
á leik í myndatökunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ÍSLENSKA LIÐIÐ
Markverðir
Birna Berg Haraldsdóttir FH
Þórunn Sigurjónsdóttir Fylkir
Varnarmenn
Fjolla Shala Leiknir R.
Hanna María Jóhannsdóttir Fylkir
Hulda Sigurðardóttir Leiknir R.
Rebekka Sverrisdóttir KR
Silvía Rán Sigurðardóttir Þór Ak.
Miðjumenn
Arna Sif Ásgrímsdóttir Þór Ak.
Ásta Eir Árnadóttir Breiðabliki
Freyja Viðarsdóttir KR
Heiða Dröfn Antonsdóttir Valur
Katrín Ásbjörnsdóttir KR
Katrín Gylfadóttir Valur
Kristín Sverrisdóttir Þrótti
Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir FH
Stefanía Valdimarsdóttir Breiðabliki
Sóknarmenn
Berglind Björg Þorvaldsd. Breiðabliki
Guðrún Ólöf Olsen Keflavík
LEIKIRNIR Í RIÐLINUM
Ísland-Danmörk á Selfossi
mán 30. júní Kl. 16:00
Ísland-Noregur í Þorlákshöfn
þri 1. júlí Kl. 16:00
Ísland-Þýskaland á Hvolsvelli
fim 3. júlí Kl. 16:00
16 ÁRA LANDSLIÐ KVENNA Stelpurnar
eru góðir félagar og ætla að gera þetta
saman á NM. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR