Fréttablaðið - 04.07.2008, Síða 26
fréttir
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Ritstjóri Marta María Jónasdóttir
martamaria@365.is
Bergþóra Magnúsdóttir
bergthora@365.is
Alma Guðmundsdóttir
alma@365.is
Forsíðumynd Ari Magg
Útlitshönnun
Arnór Bogason og
Kristín Agnarsdóttir
Auglýsingar Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462
Föstudagur Skaftahlíð 24
105 Reykjavík, sími 512 5000
FÖSTUDAGUR
E
inar Örn Einarsson leik-
ari og Garðar Thor Cort-
es söngvari hafa verið vinir
síðan þeir léku í þáttunum
um Nonna og Manna. Á meðan
tökur á fyrrnefndum þáttum fóru
fram hlustuðu þeir mikið á söngv-
arann Bon Jovi og fíluðu hann í
botn. Þegar kappinn var með tón-
leika í Lundúnum í síðustu viku
ákvað Einar Örn að fljúga út á ell-
eftu stundu, meðal annars til að
geta séð gamla átrúnaðargoðið sitt
á sviði. Saman rifjuðu þeir Garðar
Thor upp gamla takta.
„Þetta var svolítið óvænt en
ég ákvað að heimsækja Garðar
og rugla aðeins í honum,“ segir
Einar Örn hlæjandi og segir að
þetta hafi verið mikil upplifun.
„Við hlustuðum mikið á Bon Jovi
meðan á tökum stóð á Nonna og
Manna og vorum gjörsamlega
óþolandi í bílnum þegar við vorum
sóttir úr tökum því við vildum allt-
af hafa Bon Jovi í botni. Við vorum
alveg að gera út af við aðra í bíln-
um,“ segir Einar Örn. Þegar hann
er spurður að því hvort tónlist-
arsmekkurinn hafi ekkert þróast
játar hann að aðdáunin á Bon Jovi
hafi aðeins vaxið við að sjá kapp-
ann á sviðinu í Lundúnum.
Það var þó ekki bara Bon Jovi
sem dró Einar Örn til Lundúna því
daginn áður fór hann í útgáfuteiti
hjá Garðari Thor í tilefni af nýja
disknum hans. Þar var múgur og
margmenni og mikið af þekktu
fólki úr bransanum.
Þegar Einar Örn er spurður
að því hvort frægðin hafi stigið
Garðari Thor til höfuðs þverneit-
ar hann því. „Hann er ennþá alveg
negldur við jörðina,“ segir Einar
Örn og brosir. Hann segir að það
sem eftir hafi lifað ferðar hafi
þeir tekið því rólega, farið í leik-
hús á Músagildru Agöthu Christie
og notið þess að vera til. „Okkur
finnst óskaplega gott að hanga og
gera ekki neitt,“ segir Einar Örn,
sem er á ferð og flugi þessa dag-
ana. Hann vinnur sem flugþjónn
hjá Icelandair í sumar en í haust
verður hann að leika með Leik-
félagi Akureyrar en hann útskrif-
aðist úr Rose Bruford College í
Lundúnum árið 2004.
martamaria@365.is
Einar Örn Einarsson og Garðar Thor Cortes létu
drauminn rætast og fóru á Bon Jovi-tónleika í Lundúnum
Fíla Bon Jovi í botn
„Ég kem heim frá Ibiza í dag eftir
verðskuldað sumarfrí og er orðinn
jafnbrúnn og Gillzenegger. Svo er eins
gott að vera í stuði á laugardaginn því
hann verður þéttur. Ég byrja á því að
vakna og gera mig sætan. Fer svo í hljóð-
prufu á Nasa, syng svo í tveimur brúð-
kaupum yfir daginn ásamt Moniku hörpuleik-
ara, rýk svo í brúðkaupsveislu hjá vini
mínum og þeyti skífum fyrir hann, og
fer svo beint þaðan á Nasa þar sem
ég mun þeyta skífum og troða upp
á styrktar balli Gay Pride langt fram
undir morgun. Haffi Haff verður sér-
stakur gestur kvöldsins og hver
króna af miðasölunni rennur beint
til Hinsegin daga. Á sunnudaginn
sef ég út og fatta að ég er kominn
aftur heim til Íslands.“
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ
GERA UM HELGINA?
Páll Óskar Hjálmtýsson
tónlistarmaður
Nonni og Manni.
Einar Örn og Garðar Thor. Þessa mynd tóku þeir af sér á Bon Jovi-tónleikunum í
Lundúnum.
„Ég byrjaði síðastliðinn mánudag og þetta hefur
bara gengið mjög vel,“ segir Ísgerður Elfa
Gunnarsdóttir leikkona, sem gegnir nú sumaraf-
leysingastarfi í Kastljónu. „Starfið er mjög fjöl-
breytt og maður er alltaf með augu og eyru opin
fyrir spennandi efni,“ segir Ísgerður sem var í
þann mund að taka viðtal á Landsmóti hestamanna
þegar blaðamaður náði tali af henni.
Spurð hvort hún fái eitthvert sumarfrí seg-
ist hún ætla utan í lok sumars. „Tveir af vinum
mínum sem ég kynntist í Arts Education-leiklistar-
skólanum í London eru að fara að gifta sig á Ítalíu í
lok ágúst, svo ég fer líklegast þangað í brúðkaupið
ásamt fleiri gömlum skólafélögum,“ segir Ísgerður
að lokum.
- ag
Nýtt andlit í Kastljósinu
Ísgerður er í sumarafleysingum í Kastljósinu
og ætlar í brúðkaup á Ítalíu í lok ágúst.
Það er glatt á hjalla hjá Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni og Ingibjörgu Stefan-
íu Pálmadóttur því í kvöld eru þau
búin að bjóða í svakalegt garð partí
heim til sín á Sóleyjargötuna. Síð-
ustu ár hafa þau haldið sams konar
teiti og hafa þau verið fræg fyrir
flottheit og frábæran mat. Reikna
má með að allt helsta peningafólk
bæjarins verði samankomið í teitinu
ásamt fjölskyldu og nánustu vinum.
Því miður missir Lilja Pálmadóttir,
systir Ingibjargar, af partíinu því hún
verður á Landsmóti hestamanna á
Hellu með sína sex gæðinga.
Annað tölublað af sjónritinu Rafskinnu hefur loks-
ins litið dagsins ljós og var útgáfu þess fagnað
í Sirkusportinu í gær. Þema blaðsins að þessu
sinni er hús. „Það er mikið í blaðinu sem teng-
ist húsum á einn eða annan hátt,“ segir Sigurður
Magnús Finnsson, einn af útgefendum Rafskinnu.
„Til dæmis er Biggi veira úr Gus Gus með smá
fræðsluþátt um sögu hústónlistar. Svo förum við í
húsbílaferð með múm og þau sýna okkur allt það
æfingahúsnæði sem þau hafa notað í gegnum tíð-
ina. Það er líka myndband með þeim og nokkrum
öðrum. Nýja þrívíddarmyndbandið hennar Bjark-
ar er þarna og fylgja þrívíddargleraugu með tíma-
ritinu.“
Fleiri skemmtilegir fylgihlutir fylgja með sjónrit-
inu, sem kemur út á DVD-diski. Þeirra á meðal eru
minnisspil, sem að sjálfsögðu eru tengd þema rits-
ins, húsum. „Það eru myndir af húsum á Laugaveg-
inum sem á að rífa á næstunni – svo fólk geti lagt
þau á minnið áður en þau hverfa,“ segir Sigurður.
Nýja tölublaðið af Rafskinnu inniheldur um þrjá
klukkutíma af efni, en að sögn Sigurðar er lengsti
hlutinn myndin Oxsmá Plánetan í leikstjórn Óskars
Jónassonar. Myndina gerði Óskar fyrir um 25 árum
en hún hefur aldrei komið út áður.
FAGNA ÚTGÁFU NÝRRAR RAFSKINNU
Þrír klukkutímar af efni
Pétur Már Gunnarsson, Þórunn Hafstað, Sigurður Magnús
Finnsson og Ragnheiður Gestsdóttir eru fjórir af fimm að-
standendum sjónritsins Rafskinnu, sem er nú komið út í
annað sinn.
Stuart Weitzman
Þráinn Skóari Skóbúð • Grettisgata 3
2 • FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008