Fréttablaðið - 05.07.2008, Side 2
2 5. júlí 2008 LAUGARDAGUR
DÓMSMÁL Ákæra fyrir stórfelld skattsvik og bók-
haldsbrot hefur verið gefin út á hendur Jóni
Ólafssyni, fyrrverandi eiganda Norðurljósa, þar á
meðal Stöðvar 2, Skífunnar og fleiri fyrirtækja. Þrír
aðrir fyrrum starfsmenn Norðurljósa og undirfyrir-
tækja þeirra eru ákærðir með Jóni fyrir eigin
skattsvik og brot framin í rekstri fyrirtækjanna.
Efnahagsbrotadeild Ríkis lögreglu stjóra hefur
rannsakað málið í sex ár. Ákæran verður þingfest
16. júlí.
Jóni er gefið að sök að hafa á tímabilinu 1999 til
2002 vanrækt að telja upp til skatts um 350 milljónir
af eigin launatekjum, fjármagnstekjur upp á um tvo
milljarða og eignir upp á tæpar þrjú hundruð
milljónir. Þannig hafi hann komist hjá því að greiða
rúma 361 milljón króna í skatt.
Jón er jafnframt ákærður, ásamt öðrum, fyrir
brot í rekstri þriggja fyrirtækja sem hann stýrði
sem stjórnarformaður, Norður ljósa, Skífunnar og
Íslenska útvarpsfélagsins.
Hreggviður Jónsson, fyrr ver andi framkvæmda-
stjóri Norður ljósa, er ákærður fyrir að svíkja rúmar
24 milljónir undan skatti af eigin launum. Honum er
meðal annars gefið að sök að hafa kallað tekjur
endurmenntunargjöld sem í raun voru persónuleg
útgjöld. Hann er jafnframt ákærður ásamt Jóni
fyrir meiriháttar skattalaga brot í störfum sínum
fyrir Norðurljós.
Ragnar Birgisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Skífunnar, er ákærður fyrir að hafa svikið tæpar
fimm milljónir undan skatti af eigin launum og auk
þess fyrir skattalagabrot í rekstri Skífunnar í félagi
við Jón.
Þá er Símon Ásgeir Gunnarsson, fyrrverandi
endurskoðandi Íslenska útvarpsfélagsins, ákærður,
líkt og Hreggviður og Jón, fyrir brot gegn skattalög-
um í rekstri þess fyrirtækis. stigur@frettabladid.is
Arnþór, er embættiskerfið
blint á kosti þína?
„Já, næstum því alblint.“
Hinn blindi Arnþór Helgason sótti um
stöðu mannréttindastjóra Reykjavíkur, en
var ekki boðaður í viðtal vegna starfsins.
Hann segir vinnubrögð embættiskerf-
is Reykjavíkurborgar forkastanleg og
ófagleg.
SAFARÍKAR
KJÚKLINGABRINGUR
869 kr/pk.
ÓTRÚLEGT
VERÐ!
900g
Jón ákærður fyrir
stórfelld skattsvik
Saksóknari efnahagsbrota hefur gefið út ákæru á hendur Jóni Ólafssyni fyrir að
svíkja rúmar 360 milljónir króna undan skatti. Þrír aðrir fyrrverandi starfsmenn
Norðurljósa og undirfyrirtækja eru ákærðir. Rannsókn málsins hefur tekið sex ár.
Jón Ólafsson er staddur erlendis og hafði ekki séð
ákæruna þegar Fréttablaðið hafði samband við hann.
Hann vill ekki tjá sig um efnisatriði ákærunnar að svo
stöddu en fagnar því að biðin eftir henni sé loks á
enda.
„Nú fer þessu loksins að ljúka. Núna fæ ég tækifæri
til þess að hreinsa mannorð mitt,“ segir hann.
Jón gagnrýnir hversu langan tíma rannsóknin hefur
tekið. „Það er skýrt mannréttindabrot að ég fjölskylda
mín skulum hafa þurft að sitja undir þessu í allan
þennan tíma.“
Hann segir málið hafa rýrnað mjög frá því sem lagt
var upp með í upphafi rannsóknar.
„NÚ FER ÞESSU LOKS AÐ LJÚKA“
Sigurður G. Guðjónsson, annar lögmanna Jóns, segir
málið snúast um ágreining um skattalög. „Stærstu tölurn-
ar í þessu snúast um ágreining um það hvort þetta eru
persónulegar tekjur Jóns eða hvort hann hefur rétt til að
taka þær inn í gegnum fyrirtæki,“ segir Sigurður.
Hann segir að eftir eigi að fara yfir það hvort Jón muni
hafna öllum ákæruatriðunum. „Það er búið að takast á
við skattayfirvöld um fjölmörg þessara atriða og greiða þá
skatta sem á hafa verið lagðir með álögum. Hins vegar er
ekki þar með sagt að Jón hafi sætt sig við þær niðurstöð-
ur.“
Hann segir að refsimálið snúist nær eingöngu um atriði
sem skráð eru í bókhaldi. Allt sé það uppi á yfirborðinu.
ÁGREININGUR UM SKATTALÖG
LÖGREGLUMÁL Maður sem hand tek-
inn var í fyrradag grunaður um að
hafa stolið felgum undan bíl Páls
Stefánssonar ljósmyndara
reyndist hafa fengið felgurnar hjá
öðrum manni, sem nú er grunaður
um þjófnaðinn.
Á heimili þess manns fannst
umtalsvert magn af öðru þýfi,
meðal annars tölvum og mynda -
vélum. Farið hefur verið fram á
gæsluvarðhald yfir meintum þjófi.
Nokkuð hefur verið um þjófnaði
á felgum og hjólbörðum undan
bílum upp á síðkastið og rannsak-
ar lögregla hvort málin tengist. - sh
Farið fram á gæsluvarðhald:
Mikið þýfi hjá
felguþjófnum
JÓN ÓLAFSSON Jón segir
það mannréttindabrot
að þurfa að sæta rann-
sókn svo árum skipti.
Hann tjáir sig ekki um
efnisatriði ákærunnar
að svo stöddu.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/ VA
LLI
Abramovitsj hættur
Dmítrí Medvedev, forseti Rússlands,
hefur leyst auðjöfurinn Roman
Abramovitsj, eiganda Chelsea-knatt-
spyrnufélagsins, frá embætti héraðs-
stjóra í Tsjúkotka, austlægasta og einu
minnst þróaða héraði Rússlands. Kvað
Abramovitsj sjálfur hafa óskað eftir
að hætta. Hann hefur fest mikið fé úr
eigin sjóðum í innviðum Tsjúkotka.
RÚSSLAND
HEILBRIGÐISMÁL Læknavaktin á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
verður að loka
vegna fjár-
skorts. Sigríður
Snæbjörnsdótt-
ir, forstöðumað-
ur stofnunar-
innar, segir
fjárveitingar
mjög lágar í
samanburði við
aðrar stofnanir,
Heilbrigðis-
stofnunin fái
um 50 til 75
prósent af því sem aðrar stofnan-
ir fái. „Við berum okkur saman
við heilbrigðisstofnanir um allt
land. Til dæmis á Ísafirði,
Selfossi og Akranesi.“
Frá og með 10. júní var
hraðmóttöku heilsugæslunnar
lokað og stefnt er á að loka
læknavaktinni þann 16. júlí.
„Vegna þess hve illa sett heilsu-
gæslan er verður þeim sem þurfa
á hefðbundinni þjónustu lækna-
vaktar að halda vísað til Reykja-
víkur,“ segir Sigríður. - hþj
Lokun á Suðurnesjum:
Sjúkum vísað
til Reykjavíkur
SIGRÍÐUR SNÆ-
BJÖRNSDÓTTIR
VIÐSKIPTI Þinglýstum kaupsamn-
ingum um fasteignir hefur fækkað
um 80 prósent frá því í fyrra. Þetta
kemur fram á vef Fasteignamats
ríkisins.
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga
á höfuðborgarsvæðinu í júní var
208 og nam heildarvelta 7,4
milljörðum króna. Í júní á síðasta
ári voru kaupsamningar 1.037 og
var heildarveltan 28,8 milljarðar.
Kaupsamningum fækkaði um
tæp átján prósent frá því í maí og
fram í júní en heildarveltan var sú
sama í báðum mánuðum.
Meðalupphæð kaupsamninga í
júní í fyrra var 27,8 milljónir en í
júní í ár er hún 35,5 milljónir
króna. - hþj
80 prósenta samdráttur:
Kaupsamning-
um fækkar enn
FISKVEIÐAR Verstu úthafskarfa-
vertíð skipa HB Granda frá
upphafi er nýlokið. Skipin veiddu
um 3.200 tonn en á vertíðinni í
fyrra veiddust 5.770 tonn.
Birkir Hrannar Birkisson,
rekstrarstjóri togarafélagsins,
segir að erfitt hafi verið að komast
að torfunni. „Það varð aldrei nein
veiði, torfan gekk ekki inn eins og í
fyrra nema að litlu leyti.“
Sökum hækkunar á olíuverði var
ekki hægt að leita eins mikið að
fiski og áður. „Þetta þýðir að
sjálfsögðu eitthvert fjárhagstjón
en sem betur fer erum við það
kvótasterkir að við höfum getað
sett skipin í önnur verkefni.“ - hþj
Lítið fiskað af úthafskarfa:
Versta vertíðin
hjá HB Granda
SLYS Ekið var á átta ára dreng við
gangbraut á Fjallkonuvegi í
Grafarvogi laust eftir hádegi í gær.
Drengurinn var fluttur á
slysadeild með hraði en meiðsl
hans voru ekki talin alvarleg að
sögn lögreglu. Þó var grunur um að
hann hefði hlotið heilahristing og
lítilsháttar blæðing var úr eyra.
Ökumaðurinn hafði stöðvað
bifreið sína við gangbraut en varð
ekki drengsins var þegar hann ók
af stað að nýju. Drengurinn varð
því fyrir bílnum sem ekið var á
litlum hraða þegar slysið varð. - ht
Umferðarslys í Grafarvogi:
Ekið á átta ára
dreng á hjóli
FÓLK Óprúttnir aðilar stálu í gær
iPod-tónlistarspilara af Ásdísi
Jennu Ástráðsdóttur sem er fjöl-
fötluð og bundin við hjólastól sem
hún þarf að keyra með hökunni.
Þetta er annar iPodinn sem stolið
er af henni á árinu auk þess sem
stolið var af henni síma fyrir
nokkrum árum.
„Það er ekki hægt að leggjast
lægra en að stela af manneskju
sem getur enga björg sér veitt,“
segir Ástráður B. Hreiðarsson,
faðir Ásdísar. „Það er ömurlegt að
vita að til sé fólk sem er svo sam-
viskulaust að það geti gert svona.“
„Mér þótti vænt um þennan iPod
bæði af því að hann var gjöf frá
bróður mínum en aðallega af því
ég var byrjuð að heyra aftur,“
segir Jenna sem er mjög heyrnar-
skert en eignaðist í janúar sér-
stakt heyrnartæki sem hægt er að
tengja við svona spilara. Það var
mikið áfall þegar fyrri spilaranum
var stolið í febrúar en þjófnaður-
inn í gær var þó sárastur.
„Ég skil ekki að báðum iPodun-
um mínum hafi verið stolið strax
og ég fékk þá. Ég er svo fötluð að
ég get ekkert gert til að verja mig.
Afhverju er ekki hægt að láta mig
í friði?“
Ástráður hvetur hinn seka til að
sína iðrun og skila spilaranum, en
nafn Ásdísar og símanúmer er
grafið aftan á hann. „Annars er
verðið ekkert stórmál. Aðalatriðið
er að einhver fái sig til að gera
svona lagað.“ - ges
Öðrum iPod-spilara ársins var stolið af Ásdísi Jennu sem er mikið fötluð:
Fjölfötluð stúlka ítrekað rænd
ÁSDÍS JENNA ÁSTRÁÐSDÓTTIR Tveim
iPod-spilurum hefur verið stolið frá
henni. Þann síðari fékk hún að gjöf frá
bróður sínum.
DÓMSMÁL Lífeyrissjóðnum Gildi
var óheimilt að draga frá örorku-
lífeyri Margrétar Ingibjargar
Marelsdóttur þann örorkulífeyri
og tekjutryggingu er hún fær frá
Tryggingastofnun ríkisins.
Þetta kom fram í dómi sem
kveðinn var upp í gær í prófmáli
Öryrkjabandalags Íslands fyrir
hönd Margrétar gegn sjóðnum.
Verði dómnum ekki áfrýjað ber
sjóðnum, og sömuleiðis öðrum
lífeyrissjóðum sem drógu sam-
bærilegar upphæðir frá örorku-
lífeyrisþegum, að leiðrétta þær
greiðslur. Alls voru sextán
þúsund einstaklingar sem fengu
skerðingu eða niðurfellingu á
rétti sínum.
Þetta felur þó ekki í sér að
bannað sé að breyta samþykktum
lífeyrisþega héðan í frá þar sem
dómurinn miðast við atburði sem
gerst hafa en ekki það sem síðar
kann að gerast.
Baldur Guðlaugsson ráðuneyt-
isstjóri og undirmenn hans voru
samkvæmt dómnum vanhæfir til
þess að staðfesta breytingar á
samþykktum lífeyrissjóðanna
vegna setu í stjórn Söfnunarsjóðs
lífeyrisréttinda að mati dómsins.
Lífeyrissjóðnum Gildi ber að
greiða Margréti sjö hundruð þús-
und krónur í málskostnað. - ges
Dómur féll í prófmáli Öryrkjabandalagsins gegn lífeyrissjóðnum Gildi í gær:
Öryrkjar sigra lífeyrissjóðina
BALDUR GUÐLAUGSSON Ráðuneytis-
stjórinn og undirmenn hans voru
vanhæfir að mati dómsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SPURNING DAGSINS