Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 18
18 5. júlí 2008 LAUGARDAGUR KÆRA DAGBÓK Þráinn Bertelsson skrifar SUNNUDAGUR, 29. JÚNÍ. Segir sá sem vitið hefur Nú ætla ég að vitna í mann sem óumdeilanlega hefur áunnið sér leyfi til að gefa góð ráð og ábend- ingar á sviði fjármála. Maðurinn heitir Jón Ásgeir Jóhannesson og segir m.a. í viðtali við Morgun- blaðið: „Við erum í stórkostlegri tilvistarkreppu með þennan hand- ónýta gjaldmiðil … ekkert nema svartnætti framundan … Eina raunverulega styrking krónunnar sem við getum náð fram, er sú að við lýsum því yfir að við ætlum að hætta með þennan gjaldmiði og undirbúa aðildarumsókn okkar að Evrópu sambandinu. Við ættum að lækka vexti strax og afnema verð- trygging una …“ Varðandi Baugsmálið segir Jón að margir hafi verið þeim feðgum sammála um pólitíska rót þessa máls. Auðvitað er þetta mál er til- komið eins og aðförin að Becket sáluga erkibiskupi í Kantaraborg: Reiður kóngur/einræðisherra fjandskapast við Baug/Becket. Skósveinar sem vilja koma sér vel við valdið leggja af stað í leiðang- ur til að ganga milli bols og höfuðs á þeim sem pirrar valdhafann. Munurinn er sá að Baugur tók til varna en Becket ekki. Þess vegna er hausinn enn á Baugi. Hefur ekkert með lýðræði og réttlæti að gera, heldur bara snaggaraleg varnarviðbrögð. Jón Ásgeir segist ætla að koma í veg fyrir að svona mál endurtaki sig og glaður skal ég halda áfram gera allt sem ég get til að styðja hann í því, en hann verður þá að læra að passa sig á Flokknum þótt mannleg ónátt- úra búi auðvitað víða. Þetta hef ur verið döpur helgi. Hann Krummi, yngri sonur minn, er sorgbitinn. Góður vinur hans og félagi batt enda á líf sitt. Það er erfitt að kynnast sorginni og því hve lífið er veikur logi. MÁNUDAGUR, 30. JÚNÍ. Ágætur bíll en ömurleg þjónusta Það er ekki lítið á sig lagt við að selja fólki fokdýra bíla – en þegar kemur að því að halda þessu drasli gangandi kemur annað hljóð í strokkinn. Allt í einu hætti hætti afturá- bak-gírinn á gamla BMW-inum okkar að virka. Umboðið segir að það sé hægt að fá tíma á verkstæð- inu eftir hálfan mánuð til að gá að afturábak-gírnum. Ef við gætum verið bíllaus í hálfan mánuð þyrftum við ekki að eiga bíl. ÞRIÐJUDAGUR, 1. JÚLÍ. B o r g a r l e s t i n hans Björns, snilldarhug- mynd Andri sonarson- ur okkar var að koma heim úr Ævintýra- landinu á Klepp- járnsreykjum og var ánægður með bæði dvölina og heimkomuna. Ég öfunda hann pínulítið af því að vera tíu ára og geta skroppið til Ævintýralands. Mitt ævintýraland í gamla daga var Vatnaskógur þótt allir yrðu bílveikir í rútunni sem flutti mann þangað. Það er ekki glóra í elds- neytisverði lengur. Það er nokkuð ljóst að í borg eins og Stór-Reykjavík þarf fólk að komast á milli staða. Almenningssam- göngur verða að vera alvöru valkostur, annars líta allir svo á að almenn- ingssamgöngur séu bara handa geðfötluðum og fátækum. Á heimasíðu Björns Kristinssonar, verkfræðings hef ég verið að kynna mér snilldarhugmynd um Metró eða Borgarlest sem tengir saman hina ýmsu borgarhluta þannig að maður kemst leiðar sinnar hraðar en í einkabíl. Til að komast á M-stöðvarnar þarf að hafa hringakstur um nágrenni þeirra, annaðhvort með litlum strætisvögnum, skutlum sem ganga ótt og títt ellegar þá með sporvögnum. Borgarlesta-kerfi er langskyn- samlegasta lausn sem ég hef nokk- urn tímann séð á samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins. Þetta eigum við allt að knýja áfram með íslensku rafmagni og stinga olíu- peningunum í eigin vasa. Ég vil taka það skýrt fram að ég er alfarið á móti því að sletta máln- ingu á hús. En úr því að menn þurftu endilega að grípa til ólög- legra mótmælaaðgerða gegn ein- hverjum embættismanni finnst mér að þeir hafi þó allavega valið að skeyta skapi sínu á réttum aðila. Af öllum þeim embættis- mönnum sem ég hef þurft að reyna að eiga samskipti við um dagana hef ég dapurleg- asta reynslu af Magnúsi Sædal, byggingafulltrúa Reykjavíkur. Þessari reynslu hef ég áður lýst; en þessi embætt- ismaður setti kíkinn fyrir blinda augað og lét af einhverj- um ástæðum byggingaraðila kom- ast upp með að bæta sosum hálf- um metra ofan á samþykktar teikningar af hótelinu sem nú stendur þar sem Hlaðvarpinn stóð áður. Af hverju þessi embættismaður vanrækti skyldu sína í þessu til- viki og af hverju borgaryfirvöld, bæði vinstri- og hægri meirihluti, láta hann komast upp með það er og verður mér hulin ráðgáta. Því að það er ekki eins og ég hafi hylmt yfir þessu með honum. Aumingjadómur eða spilling? Ég bara veit það ekki. Til að porra sig upp og dreifa huganum frá ákúrum vegna for- ystu- og lánleysis þjóðarinnar brá forsætisráðherra undir sig betri fætinum og fór í dag í opinbera heim- sókn til Ríkis- lögreglustjóra – væntanlega til að sýna flokksbróður sínum stuðning og velþóknun – og fékk að sjá flott- asta einkennisbúning sem sést hefur á Íslandi síðan óperettusýn- ingar duttu úr tísku. Ef Napóleon sem háði allar sínar orustur í gráum frakka úr ullar- vaðmáli hefði haft jafngóða klæð- skera og Ríkislögreglustjóri finnst mér ólíklegt að hann hefði tapað orustunni við Waterloo. Það getur verið að hérna á Íslandi séu heimóttar- legustu valdsmenn norðan Alpafjalla en því getur eng- inn neitað að þeir eru allra manna flottastir í tau- inu. MIÐVIKUDAGUR, 2. JÚLÍ. Skíttu-á-þig-rökfræðin Björgvin G Sigurðsson, viðskipta- ráðherra kemur fram með þá skynsamlegu yfirlýsingu að Sjálf- stæðisflokkurinn verði að gera upp Evrópumálin fyrr en síðar og nú sé brýnna en nokkru sinni að undirbúa aðild að ESB. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ráð- herrann „varpa reyksprengjum“ og undrast að hann „efni til ófrið- ar“ í stjórnarsamstarfinu með þessum hætti. Þetta er íslensk stjórnmálaum- ræða í hnotskurn. Einhver stingur upp á að eitthvað sé gert og fær það svar að hann sé að efna til ófriðar og varpa reyksprengjum. Svona þrætubók hét á götumáli „skítt’-á-þig“-rökfræði þegar ég var að alast upp – og var frekar til marks um barnslega trú á lík- amlega yfirburði umfram andlega getu. Stundum verð ég þreyttur á því þegar fábjánar tala til þjóðarinnar og þar með mín eins og við séum líka fábjánar – jafnvel þótt þeir hafi álpast inn á þing. FIMMTUDAGUR, 3. JÚLÍ. Blind mannvonska lög- regluríkisins Í morgun sótti Krummi bílinn okkar á verkstæði B&L þar sem enga þjónustu var að fá fyrr en eftir dúk og disk og kom honum á verkstæði í neðanjarðarhagkerf- inu. Ekki veit ég hvort þjóðhagsleg- ur sparnaður verður af þessu, en hitt veit ég að ég hyggst aðeins eiga lágmarks viðskipti við B&L í framtíðinni. Jónas Kristjánsson segir í dag á jonas.is: „Paul Ramses er ætt- aður frá Kenía … var í gærmorg- un tekinn fastur af lögreglunni og skyldi flytjast nauðugur úr landi í morgun. Enginn getur gefið skýringar á geggjun íslenzka kerfisins. Sýnir blinda mannvonzku lögregluríkisins, sem Björn Bjarnason og Harald- ur Johannessen eru að byggja upp hér á landi. Auk skálkanna tveggja ber Ingibjörg Sólrún Gísladóttir einnig ábyrgð á glæpnum.“ „Skítt’-á-þig“-rök- fræði handa byrjendum. „Skítt’-á-þig“-rökfræði handa byrjendum Í dagbók Þráins Bertelssonar er fjallað um Metró í Reykjavík, málningarslettur, „skítt’-á-þig“-rökfræð- ina, Baug og Becket og bent á umhugsunarverða málverkasýningu. SAMSETT MYND SAMSETT MYNDSAMSETT MYND M Á L S & M E N N I N G A R L A U G A V E G I 1 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.