Fréttablaðið - 05.07.2008, Side 23
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Anna Guðný Tryggvadóttir nemi ferðast ekki á
neinum smábíl heldur risastórum Ford 150-
jeppa sem mætti kalla tryllitæki.
Anna Guðný og kærastinn eru mikið áhugafólk um
mótorkross og eiga hvor sitt hjólið og því kemur
jeppinn sér afar vel.
„Við fengum okkur bílinn í fyrrasumar og hann
hefur sannarlega staðið fyrir sínu. Við höfum farið
víða með hjólin en bíllinn var eiginlega fyrst og
fremst keyptur til þess að flytja mótorhjólin okkar,“
segir Anna Guðný.
Allir þeir sem sjá svona stóran jeppa hljóta að
hugsa til bensínverðsins, sem er nú í sögulegu
hámarki á Íslandi, en Anna Guðný hefur sína skoðun
á þeim málum. „Jú, vissulega hefur maður fundið
fyrir því en ég læt það ekkert skemma fyrir. Það er
algjört himnaríki að keyra þennan bíl og þægindin
eru vel til staðar. Hann vekur mikla athygli og ég ótt-
ast stundum að fólk keyri á þegar ég kem akandi
framhjá.“
Anna Guðný hefur ferðast víða á bílnum um landið
og mun halda því ótrauð áfram í sumar. „Ég hef farið
í svo margar ferðir að ef ég ætlaði að telja þær upp
þyrfti heilt Fréttablað undir það. Það er svo þægilegt
að ferðast á þessum bíl um landið en ef ég ætti að
finna einn galla við bílinn þá væri það að finna bíla-
stæði í miðbæ Reykjavíkur,“ segir Anna Guðný sem
er stoltur jeppaeigandi. mikael@frettabladid.is
Fordinn enginn smábíll
Anna Guðný með jeppann góða sem er í stærri kantinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KÍKT Í KAFFI
Á sumrin eru kaffihlað-
borð haldin út um allt
land, jafnt á virkum
dögum sem og um
helgar.
FERÐIR 2
LITRÍKT ÚR LOPA
Íslenskar ullarvörur eru
alltaf jafn vinsælar og bæði
erlendir ferðamenn og
Íslendingar kaupa
mikið af þeim.
TÍSKA 4
flugfelag.is
Skráðu þig í
Netklúbbinn
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Félagar í Netklúbbnum
fá fyrstir upplýsingar
um tilboð og nýjungar
í tölvupósti.
Alltaf ódýrast á netinu
www.flugfelag.is
Þjónustustjóri í fyrirtækjainnheimtu
365 miðlar leita að starfsmanni í fullt starf í fyrirtækjainnheimtu.
Helstu verkefni felast í úthringingum og samskiptum við
viðskiptamenn. Viðkomandi þarf að búa yfir ríkri þjónustulund,
vera jákvæður og samviskusamur.
Umsóknarfrestur er til 13. júlí en sótt er um á vef 365 miðla -
http://www.365midlar.is/Um-365/Storf-hja-365.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Lára Pétursdóttir á
margretl@365.is.