Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 26
[ ]
Sarah Jessica Parker frum-
sýndi ekki kjól frá Ninu Ricci
eins og hún hafði ætlað sér.
Mikið fár var í kringum frum-
sýningu kvikmyndarinnar
Beðmál í borginni og voru kjólar
leikkvennanna þar ekki undan-
skildir. Hönnuðir börðust um að
fá að klæða konurnar fyrir stóra
kvöldið og valdi Sarah Jessica
Parker Ninu Ricci í verkið.
Sarah komst hins vegar að því
nokkru eftir frumsýninguna að
hún var ekki fyrst til að klæðast
kjólnum opinberlega og varð
„fyrir miklum vonbrigðum“ með
uppgötvunina. Það var stuðpían
Lauren Santo Domingo sem hafði
klæðst kjólnum í fylgd yfirhönn-
uðar Ninu Ricci á rauða dreglin-
um nokkru áður. Sarah var
óánægð með að hafa ekki verið
látin vita af þessu en talsmenn
Ninu Ricci sögðust ekki hafa talið
Lauren nógu mikla stjörnu til að
það skipti máli. - mþþ
Rifist yfir kjólnum
Lauren Santo Domingo var í kjólnum
áður en Sarah klæddist honum.
Sarah Jessica Parker vissi ekki betur
en hún væri bæði að frumsýna kjól og
mynd á frumsýningarkvöldi Sex and the
City. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Sólgleraugu eru fylgihlutur sem flestir nota til
varnar sólargeislunum eða bara upp á stílinn. Flott
sólgleraugu geta gert mikið fyrir útlitið.
Erlendir ferðamenn eru ekki aðeins spenntir fyrir
íslenskri náttúru. Ullarvörurnar okkar eru einnig
mjög vinsælar og mikið er keypt af þeim.
Verslanir sem sérhæfa sig í fatnaði og öðrum varningi
fyrir ferðamenn eru margar. Margt er að finna í þess-
um búðum og úrvalið oft alveg ótrúlegt. Hinn íslenski
lopafatnaður er virkilega fjölbreyttur enda vinsæll
bæði hjá erlendum ferðamönnum og okkur hinum.
klara@frettabladid.is
Smart í lopa
Frá íslenska fyrirtækinu Varma
voru að koma girnilegar peysu-
kápur með belti. Íslendingar
jafnt sem erlendir ferðamenn
hafa sýnt þeim mikinn áhuga.
Þær fást í nokkrum litum og
þessi kostar 12.370 krónur hjá
Thorvaldsens Bazar en allur
ágóði verslunarinnar rennur til
góðgerðamála.
Þessi fallega ullarpeysa
frá Sirri fæst í Viking-
búðinni og kostar
12.980 krónur.
Bolero-peysurnar frá
Varma eru nýjar og
hafa runnið út eins
og heitar lummur. Hjá
Thorvaldsens Bazar
fást þær í nokkrum
litum og kosta 3.980
krónur.
Fyrirtækið Sirri hefur hannað margar flíkur
sem eru afar vinsælar hjá bæði Íslendingum
og erlendum ferðamönnum. Þessi ullarkjóll er
engin undantekning. Hann fæst í Víking-búð-
inni í Hafnarstræti og kostar 15.990 krónur.
Þessi jakkapeysa frá Sirri hefur verið mjög
vinsæl meðal ferðamanna undanfarið.
Hún fæst í Víking-búðinni í Hafnarstræti
og kostar 24.900 krónur.
Þessi svarti jakki úr soðinni ull frá Icelandic Design sló í
gegn hjá ferðamönnum í fyrra og er enn mjög vinsæll.
Hann fæst í rauðu og svörtu og kostar 23.900 krónur.
Einnig er hægt að fá vesti í sama stíl, í grænu og svörtu,
og kosta þau 18.900 krónur. Þessar flíkur fást í Ramma-
gerðinni í Hafnarstræti.
Mörkinni 6, s. 588 5518
ú
ts
a
la
vera
Laugavegi 49
÷40%
vera
÷50%
krónum lagið
Frá
Fyll'ann takk!
Á Tónlist.is getur þú nálgast yfir 50.000 lög og fyllt
spilarann þinn af topptónlist. Allt efni á Tónlist.is er
ólæst (DRM laust) og kostar frá 79 krónum lagið.
Þannig getur þú fært tónlistina hindrunarlaust á milli
tölvunnar, spilarans og farsímans.
Vertu tilbúinn í sumarfríið!