Fréttablaðið - 05.07.2008, Side 27
[ ]
Bílaleigan Hertz hefur á sínum
snærum þrjá vetnisbíla sem
eru leigðir út til viðskipta-
vina. Vetnisbílar eru sérlega
umhverfisvænir og útblástur
þeirra er gufa.
Bílaleigan Hertz hóf að leigja
vetnisbílana út í nóvembermán-
uði síðastliðnum. „Hvatinn er
þetta vetnisverkefni sem hefur
verið í gangi síðustu ár. Nýorka
hefur séð um að stýra þessu
verkefni og þá helst Jón Björn
Skúlason. Hann hafði samband
við okkur í Hertz í aðdraganda
þess að reynt var að gera magn-
kaup á vetnisbílum inn til lands-
ins,“ segir Hreinn Sigmarsson,
flotastjóri hjá bílaleigunni
Hertz.
Þegar Nýorka hafði samband
við Hertz var fyrirtækið komið
langt í að móta sér umhverfis-
stefnu þar sem fyrirtækið stefn-
ir að því að verða fyrsta bílaleig-
an til að fá vottun ISO 14001.
Þetta hvatti eigendur fyrirtækis-
ins til að skoða málið og ákveðið
var að taka þátt í verkefninu.
Þessi tækni er langt frá því að
vera fullkomin og lítil reynsla er
af henni enda allt enn á tilrauna-
stigi, en tilraunin lofar góðu og
hefur verið vel tekið.
„Hertz hefur þrjá vetnisbíla af
gerðinni Toyota Prius og viðtök-
urnar hafa verið góðar og í raun
framar vonum. Það eru miklar
takmarkanir í notkun þessara
bíla, drægi þeirra á fullum tank
er 160 kílómetrar. Bílarnir eru
aðeins til leigu hérna á höfuð-
borgarsvæðinu því eina
áfyllingar stöð landsins er við
bensínstöðina uppi á Ártúns-
höfða,“ segir Hreinn. „Þetta
verkefni hefur verið mjög lær-
dómsríkt og við erum mjög
ánægðir að hafa tekið það skref
að taka þátt.
Helstu kostirnir eru auðvitað
hversu umhverfisvænir þessir
bílar eru og helstu gallarnir eru
auðvitað þjónustan við þessa
bíla. Þrátt fyrir hvað tæknin er
óþroskuð hefur hún verið mjög
fagleg og það hefur verið
ánægjulegt að vinna með öllu því
fólki sem hefur komið að þessari
tilraun.
Svo verður forvitnilegt að sjá
hvaða orkugjafi verður notaður
fyrir bíla í framtíðinni.“
mikael@frettabladid.is
Í sátt við umhverfið
Hreinn Sigmarsson flotastjóri segir að þjónustu við vetnisbíla sé ábótavant.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Ford Fiesta er meðal þeirra bíla sem tilnefndir eru til
heiðurs titilsins Bíll ársins 2009 í Evrópu. Meðal annarra til-
nefndra eru Ford Kuga, Audi A4, BMW X6 og Renault Mégane.
KERRUÖXLAR
Í ÚRVALI
og hlutir
til kerru-
smíða
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
FÖSTUDAGUR:
Í bítið
Ívar Guðmunds
Rúnar Róberts
Reykjavík síðdegis
LAUGARDAGUR:
Hemmi Gunn og Svansí
4. - 5. júlí
Akranes
Bylgjan og Olís eru komin í sumarskap og
verða á ferðalagi með þér í allt sumar!
Það verður öllu tjaldað til og við hefjum
leik á föstudagsmorgnum með Kollu og
Heimi í bítinu, Ívar tekur við og Siggi Ragg
fylgir fast á eftir. Við endum svo daginn
með strákunum í Rvík síðdegis.
Eftir hádegi á laugardögum eru það Hemmi
Gunn og Svansí sem skemmta hlustendum
auk þess að draga heppinn hlustanda úr
potti Ævintýraeyju Olís, sem er frábær
ferðaleikur fyrir alla fjölskylduna.
Nánari upplýsingar á www.olis.is.
Í dag verðum við á Írskum dögum á Akranesi!
Vertu með Bylgjunni og Olís í allt sumar
– á ferðalagi!
BYLGJAN
á ferðalagi
um landið í sumar
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Auglýsingasími
– Mest lesið