Fréttablaðið - 05.07.2008, Page 27

Fréttablaðið - 05.07.2008, Page 27
[ ] Bílaleigan Hertz hefur á sínum snærum þrjá vetnisbíla sem eru leigðir út til viðskipta- vina. Vetnisbílar eru sérlega umhverfisvænir og útblástur þeirra er gufa. Bílaleigan Hertz hóf að leigja vetnisbílana út í nóvembermán- uði síðastliðnum. „Hvatinn er þetta vetnisverkefni sem hefur verið í gangi síðustu ár. Nýorka hefur séð um að stýra þessu verkefni og þá helst Jón Björn Skúlason. Hann hafði samband við okkur í Hertz í aðdraganda þess að reynt var að gera magn- kaup á vetnisbílum inn til lands- ins,“ segir Hreinn Sigmarsson, flotastjóri hjá bílaleigunni Hertz. Þegar Nýorka hafði samband við Hertz var fyrirtækið komið langt í að móta sér umhverfis- stefnu þar sem fyrirtækið stefn- ir að því að verða fyrsta bílaleig- an til að fá vottun ISO 14001. Þetta hvatti eigendur fyrirtækis- ins til að skoða málið og ákveðið var að taka þátt í verkefninu. Þessi tækni er langt frá því að vera fullkomin og lítil reynsla er af henni enda allt enn á tilrauna- stigi, en tilraunin lofar góðu og hefur verið vel tekið. „Hertz hefur þrjá vetnisbíla af gerðinni Toyota Prius og viðtök- urnar hafa verið góðar og í raun framar vonum. Það eru miklar takmarkanir í notkun þessara bíla, drægi þeirra á fullum tank er 160 kílómetrar. Bílarnir eru aðeins til leigu hérna á höfuð- borgarsvæðinu því eina áfyllingar stöð landsins er við bensínstöðina uppi á Ártúns- höfða,“ segir Hreinn. „Þetta verkefni hefur verið mjög lær- dómsríkt og við erum mjög ánægðir að hafa tekið það skref að taka þátt. Helstu kostirnir eru auðvitað hversu umhverfisvænir þessir bílar eru og helstu gallarnir eru auðvitað þjónustan við þessa bíla. Þrátt fyrir hvað tæknin er óþroskuð hefur hún verið mjög fagleg og það hefur verið ánægjulegt að vinna með öllu því fólki sem hefur komið að þessari tilraun. Svo verður forvitnilegt að sjá hvaða orkugjafi verður notaður fyrir bíla í framtíðinni.“ mikael@frettabladid.is Í sátt við umhverfið Hreinn Sigmarsson flotastjóri segir að þjónustu við vetnisbíla sé ábótavant. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Ford Fiesta er meðal þeirra bíla sem tilnefndir eru til heiðurs titilsins Bíll ársins 2009 í Evrópu. Meðal annarra til- nefndra eru Ford Kuga, Audi A4, BMW X6 og Renault Mégane. KERRUÖXLAR Í ÚRVALI og hlutir til kerru- smíða Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 FÖSTUDAGUR: Í bítið Ívar Guðmunds Rúnar Róberts Reykjavík síðdegis LAUGARDAGUR: Hemmi Gunn og Svansí 4. - 5. júlí Akranes Bylgjan og Olís eru komin í sumarskap og verða á ferðalagi með þér í allt sumar! Það verður öllu tjaldað til og við hefjum leik á föstudagsmorgnum með Kollu og Heimi í bítinu, Ívar tekur við og Siggi Ragg fylgir fast á eftir. Við endum svo daginn með strákunum í Rvík síðdegis. Eftir hádegi á laugardögum eru það Hemmi Gunn og Svansí sem skemmta hlustendum auk þess að draga heppinn hlustanda úr potti Ævintýraeyju Olís, sem er frábær ferðaleikur fyrir alla fjölskylduna. Nánari upplýsingar á www.olis.is. Í dag verðum við á Írskum dögum á Akranesi! Vertu með Bylgjunni og Olís í allt sumar – á ferðalagi! BYLGJAN á ferðalagi um landið í sumar Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn... Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.