Fréttablaðið - 05.07.2008, Page 36
● heimili&hönnun
„Ég segi oft að ég sé að vinna fyrir
Evrópu. Homo Urbanus European-
us, eða HUE eins og ég kalla verkefn-
ið líka, er rammað inn í Evrópu og þá
einna helst evrópskar höfuðborgir,“ út-
skýrir Jean-Marc Caracci, sem sagði
starfi sínu lausu fyrir tveimur árum til
að hella sér út í eigin verkefni.
„Ég var einhleypur, barnlaus og 47
ára og fannst ég þurfa að sinna listinni
betur. Þegar listamenn eru að vinna
venjulegt starf gefst sjaldnast tími
fyrir stór verkefni og því ákvað ég að
hætta og snúa mér að þessu verkefni,“
útskýrir hann. „Ég fjármagna þetta
sjálfur en í fyrsta sinn á ævinni er ég
að gera stórt verkefni og ég trúi því að
önnur fylgi í kjölfarið. Ég er reyndar
alltaf með augun opin fyrir styrktar-
aðilum þannig að þeim er velkomið að
hafa samband,“ segir Caracci og hlær.
Hugmyndin að verkefninu kviknaði
í Chicago fyrir tveimur árum þegar
Caracci sá stórar byggingar, breið
stræti og fjöldann allan af „litlu“ fólki
sem hreyfðist líkt og maurar um göt-
urnar. „Fyrst tók ég myndir af ein-
staklingum sem voru í eigin heimi og
sínu náttúrulega umhverfi, borginni.
HUE-verkefnið fjallar að vissu leyti
um einmanaleikann í borginni. Þegar
myndirnar mínar eru skoðaðar fær
áhorfandinn á tilfinninguna að hann
sé þátttakandi í mjög persónulegu
augnabliki í lífi einhvers sem er ætlað
honum einum, þó svo að myndirnar séu
teknar á almannafæri,“ útskýrir hann.
Skammstöfun verkefnisins, HUE, á
vel við þar sem „hue“ þýðir litblær eða
blæbrigði á ensku en Caracci fæst við
hin ýmsu blæbrigði mannlífsins.
„Það skiptir ekki öllu hvort lönd-
in eru í Evrópusambandinu eða ekki.
HUE er leið til að sýna fram á að við
erum meira lík en ólík. Ég vona að
myndirnar verði okkur hvatning til að
sameina Evrópu enn frekar og styrkja
samhygð og samábyrgð,“ segir Caracci
dreyminn. Hann bætir við að hann
forðist að afla sér dæmigerðra upp-
lýsinga fyrir ferðamenn áður en hann
heimsæki borgir. „Ég vil vera alveg
„hreinn“ þegar ég byrja að mynda. Ég
geng bara og geng þar til ég gleymi
mér í borginni líkt og veiðimaður sem
gleymir sér í skóginum.“
Ekki hefur enn verið ákveðin sýning
á verkum Caraccis á Íslandi en hann
segir að það væri sér mikill heiður að
sýna verk sín hér einhvern tímann.
- hs
Veiðimaður í borginni
● Ljósmyndaverkefnið Homo Urbanus Europeanus er hugarfóstur franska ljósmyndarans Jean-Marc
Caracci sem ferðast um Evrópu til að mynda fólk og borgir. Hann er nú kominn til Reykjavíkur þar
sem hann ætlar að viða að sér myndum úr mannlífi borgarinnar.
Ljósmyndarinn Jean-Marc Caracci spáir mikið í fólk og hefur á ferðum sínum kynnst fjölbreyttu
mannlífi. Hann gistir oft hjá heimamönnum og segir það afar lærdómsríkt.
Ríga í ágúst 2007.
Tallinn í júní 2008.
Sofía í nóvember 2007.
Vilníus í september 2007. Á vefsíðunum http://homo.urbanus.free.fr/portfolio/index.html og http://homo.urbanus.free.fr/europeanus má skoða verk Caraccis. MYND/JEAN-MARC CARACCI
5. JÚLÍ 2008 LAUGARDAGUR8