Fréttablaðið - 05.07.2008, Síða 38
● heimili&hönnun
„Við byggjum á aldargömlum
grunni sem byrjaði með smíða-
verkstæði Jóns Halldórssonar
árið 1908, sem varð Gamla komp-
aníið. Þar er komið G-ið í heitinu
GKS. Seinna varð samruni Gamla
kompanísins við Kristján Sigur-
geirsson; honum er helgaður bók-
stafurinn K. Síðar Steinar Stálhús-
gagnagerð, sem er S-ið í heitinu.
Eftir það hefur trésmiðjan Eld-
hús og bað sameinast fyrirtæk-
inu,“ segir Arnar Aðalgeirsson,
framkvæmdastjóri Trésmiðju
GKS, sem um þessar mundir fagn-
ar hundrað ára fagmennsku og ís-
lenskri sérsmíð á innréttingum og
húsmunum.
„Starfsemin byrjaði með smíði
heimilishúsgagna því þá var lít-
ill innflutningur á húsgögnum til
landsins. Í dag erum við mest í
smíði hvers kyns innréttinga fyrir
heimili, stofnanir og fyrirtæki;
bjóðum okkar eigin línur í fata-
skápum, eldhús- og baðinnrétting-
um, og smíðum mikið í samstarfi
við íslenska hönnuði og arkitekta,“
segir Arnar. „Hjá GKS vinna um
35 starfsmenn á sviði húsgagna-
og húsasmíði; sumir með allt að
fjörutíu ára starfsaldur. Fram-
leiðslutækin eru fullkomin. Við
bjóðum nákvæmni í framleiðslu
og samkeppnishæft verð og önn-
umst alla verkþætti, frá tilboði til
uppsetningar. Við leggjum okkur
fram um að vera ávallt trausts-
ins verðir; að gæði framleiðslunn-
ar séu tryggð og afhending ávallt
á réttum tíma.
Við finnum mikla eftirspurn
eftir fínu tréverki og innréttingum
fyrir einbýlishús, þar sem marg-
ir hafa fengið íslenska hönnuði til
að sérteikna innréttingar sem við
smíðum og setjum upp. Við bjóð-
um innréttingar í öllum verðskala,
tugi viðartegunda og úrval borð-
plötulausna, einstakt skipulag á
skúffum og lausnir í fataskápum,“
segir Arnar, en sjón er sögu rík-
ari og vert að benda á sýningarsal
GKS á Funahöfða 19. - þlg
Íslensk sérsmíði í 100 ár
● Ævintýri Trésmiðju GKS hófust fyrir heilli öld, en eru rétt að byrja. Í andrúmi ilmandi
viðaranganar og fagurs ásláttar hamra og sagaróms fæðist alíslensk hönnun og tréverk á
heimsmælikvarða fyrir þá sem kjósa fallegt stáss á heimili sín.
Arnar Aðalgeirsson, framkvæmdastjóri
Trésmiðju GKS. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Falleg og hlýleg baðinnrétting úr sebra-
no og hlyn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fjölbreytt úrval skilrúma í skúffum er
meðal þess sem er í boði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Yndislegt eldhús úr virðulegri
franskri hnotu með samskeytalausri
og plássríkri Swanstone-borðplötu.
Eldhúsinnrétt-
ing sköpuð
úr íslensku
hugviti og
listasmíði.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
5. JÚLÍ 2008 LAUGARDAGUR10